„Eitthvað einstaklega mannfjandsamlegt“ við andstöðu SA við hækkun atvinnuleysisbóta

Drífa Snædal for­seti ASÍ segir að það sé „eitt­hvað ein­stak­lega mann­fjand­sam­legt“ við það að Samtök atvinnu­lífs­ins „séu bein­línis í her­ferð gegn hækkun atvinnu­leys­is­bóta“. Hún seg­ist efast um að aðild­ar­fyr­ir­tæki SA styðji almennt þessa stefnu.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Drífa Snædal for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands segir að það sé „eitt­hvað ein­stak­lega mann­fjand­sam­legt“ við það að Samtök atvinnu­lífs­ins „séu bein­línis í her­ferð gegn hækkun atvinnu­leys­is­bóta“, en for­svars­menn SA hafa und­an­farna daga komið fram í fjöl­miðlum og sagt var­huga­vert að hækka atvinnu­leys­is­trygg­ingar.

Drífa full­yrðir, í færslu á Facebook, að und­ir­liggj­andi í þessum skila­boðum frá SA sé „ótt­inn við að hafa ekki aðgang að vinnu­afli“ og að „þurfi að svelta fólk til að það vinni.“

„Mann­úð­legri stefna er að tryggja að þó fólk missi vinn­una hafi það mögu­leika á að fram­fleyta sér, borga hús­næð­is­kostnað, kaupa í mat­inn og lifa mann­sæm­andi lífi,“ skrifar Drífa, en ASÍ hefur kraf­ist þess að stjórn­völd hækki atvinnu­leys­is­bætur þannig að grunnatvinnu­leys­is­bætur verði 95 pró­sent af lægstu launum á vinnu­mark­aði sam­kvæmt kjara­samn­ingum, eða 318.250 krónur.

Forseti ASÍ seg­ist eiga „erfitt með að trúa því að fyr­ir­tæki innan SA styðji almennt við þessa her­ferð sam­taka sinna.“

„Ef það á að halda fólki við hung­ur­mörk í atvinnu­leysi hefur fólk ekki mögu­leika á að versla við fyr­ir­tæki og halda þeim þannig gang­andi. Það er víta­hringur sem vert er að forð­ast,“ segir Drífa og vísar þannig í titil greinar sem Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, for­stöðu­maður efna­hags­sviðs SA, rit­aði í Frétta­blaðið í síð­ustu viku.

Þar var­aði Anna Hrefna við því að atvinnu­lífið myndi þurfa að standa undir kostn­aði við hærri atvinnu­leys­is­bætur:

„Það er óábyrgt að kalla eftir nýjum lof­orðum án þess að gerð sé grein fyrir afleið­ingum þeirra og kostn­aði fyrir skatt­greið­endur. Enn óábyrg­ara er fyrir stjórn­mála­menn að láta undan slíku ákalli án þess að ganga úr skugga um að hægt sé að fjár­magna lof­orðin á sjálf­bæran hátt. Tekjur rík­is­sjóðs eru tak­mark­aðar. Síaukin skatt­heimta leiðir til stöðn­unar í hag­kerf­inu sem skerðir getu hins opin­bera til að standa undir vel­ferð­ar­sam­fé­lag­inu til lengdar. Það er vara­samur víta­hringur,“ skrif­aði Anna Hrefna meðal ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár