Líst ekki vel á tillögu ASÍ um skerðingarlaust ár

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra telur að til­laga for­seta ASÍ um skerð­ing­ar­laust ár 2022 sé alger­lega „and­stætt allri annarri hug­mynda­fræði sem hefur stafað frá ASÍ“.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Það kom Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, tals­vert á óvart að sjá til­lögu ASÍ um skerð­ing­ar­laust ár 2022 sem Drífa Snædal, for­seti ASÍ, setti fram í pistli fyrir helgi. Þetta kom fram í máli ráð­herr­ans í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag en Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, spurði Bjarna hvernig honum lit­ist á þessa til­lögu.

[links]Guð­mundur Ingi hóf fyr­ir­spurn sína á því að segja að undur og stór­merki hefðu gerst því ASÍ hefði rumskað af þyrni­rós­ar­svefni og hrokkið upp með and­fælum af skerð­ing­ar­svefn­inum langa. Vitnaði hann í orð Drífu í fyrr­nefndum pistli þar sem hún sagði að hér á landi hefði ekki tek­ist að tryggja afkomu fólks og að fullt til­efni væri til að hafa áhyggjur af spill­ingu og auknum ójöfn­uði. Það yrði ekki sagt nógu oft að grund­völlur friðar og lýð­ræðis væri að tryggja afkomu, eng­inn mætti vera und­an­skil­inn; launa­fólk, atvinnu­rek­endur, öryrkjar og aldr­aðir. Allir ættu að búa við afkomu­ör­yggi í sann­gjörnu sam­fé­lagi.

Hann sagði að Drífa væri í pistli sínum að kynna hug­myndir um skerð­ing­ar­laust ár og að Flokkur fólks­ins hefði ítrekað sett fram frum­varp um skerð­ing­ar­laus tvö ár. Svo Guð­mundur Ingi spurði Bjarna hvernig honum lit­ist á þessar hug­myndir ASÍ. Einnig spurði hann í þessu sam­hengi hvernig honum lit­ist á að stöðva skerð­ingar á húsa­leigu­bótum og sér­stökum húsa­leigu­bótum.

Stöndum okkur „afburðavel“ í því að skipta því sem er til skiptanna með sanngjörnum hætti

Bjarni svar­aði og sagði: „Ef við horfum á hóp þeirra sem sæta skerð­ingum vegna tekna í almanna­trygg­inga­kerf­inu vill ASÍ leggja upp með þá stefnu að við skilum mestu til þeirra úr þessum hópi sem hafa það best. Með afnámi skerð­inga koma flestar krónur til þeirra sem hafa það best af þeim sem yfir höfuð sæta skerð­ingum, alveg aug­ljóst. Þeir skerð­ast minnst sem hafa minnst. Þannig virkar kerfið í dag,“ sagði hann. „Ef þú afnemur allar skerð­ing­arnar eru það þeir sem búa við minnstar skerð­ingar sem eru neðst í stig­anum. Þetta kemur á óvart vegna þess að þetta er alger­lega and­stætt allri annarri hug­mynda­fræði sem hefur stafað frá ASÍ, til dæmis í skatta­málum, og við höfum á þessu kjör­tíma­bili einmitt lagt áherslu á að við skatta­lækk­anir þá skil­uðum við mestu þar sem þörfin væri mest.“

Vildi ráð­herr­ann „minna á nokkrar grund­vall­ar­stað­reyndir um ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­il­anna í land­inu. Á Íslandi eru með­al­tekjur meðal þess hæsta sem þekk­ist hvort sem litið er til Norð­ur­land­anna eða OECD-ríkj­anna. Á sama tíma er jöfn­uður hvað mestur og stuðn­ings­kerfin fyrir fjöl­skyldur eru, sam­kvæmt skýrslu Axels Halls, á pari eða betri fyrir fjöl­skyldu­fólk en á Norð­ur­lönd­unum þannig að það er nán­ast sama í hvaða átt litið er. Við stöndum okkur afburða­vel í því að skipta því sem er til skipt­anna í þjóð­fé­lagi okkar með sann­gjörnum hætti meðal íbúa lands­ins,“ sagði hann.

„Segðu að þetta sé best haldna fólkið“

Í seinni ræðu sinni sagði Guð­mundur Ingi að hann skildi ekki svör ráð­herr­ans. „Hvernig í ósköp­unum fær hann það út að þeir sem fá sér­stakar húsa­leigu­bætur standi vel og séu alger­lega á góðum stað? Og hvernig í ósköp­unum dettur honum í hug að ein­hver borði með­al­tal launa? Það borðar eng­inn með­al­tal launa, það er úti­lokað. Þú borðað það sem þú færð. Þeir sem eru til dæmis að detta út af atvinnu­leys­is­skrá, hvert fara þeir? Þeir fara á félags­lega kerfið. Hvernig virkar félags­lega kerfið? Ef það eru ein­hvers staðar skerð­ingar þá eru þær þar. Þar er króna á móti krónu skerð­ing, skerð­ingar vegna maka. Þetta er svo ömur­legt.

Það er verið að setja fólk í þær aðstæður að það hefur ekki efni á húsa­leigu, hefur ekki efni á mat fyrir börnin sín eða neitt vegna þess að það á að lifa á einni fyr­ir­vinnu og það gat ekki einu sinni áður lifað á tveimur. Segðu að þetta sé best haldna fólkið, að þetta sé fólkið sem hefur það best og þar af leið­andi eigi ekki að taka skerð­ingar af því,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Þingmanni tekist að snúa öllu á hvolf

Bjarni kom aftur í pontu og sagði að því miður hefði þing­mann­inum tek­ist að snúa öllu á hvolf í þess­ari umræðu og lagt honum orð í munn.

„Ég var ekki að ræða sér­stak­lega um þá hópa sem hann nefnir hér að þyrftu að hafa betri kjör og meira á milli hand­anna. Ég verð að benda á þá stað­reynd, vegna þess að hann kemur hér upp með hug­mynd­ina um að afnema allar skerð­ingar. Það er hug­myndin sem hátt­virtur þing­maður viðr­aði í ræðu­stól, að afnema allar skerð­ingar almanna­trygg­inga eins og ASÍ, hann tal­aði um að ASÍ hefði vaknað af þyrni­rós­ar­svefni og komið með þá góðu hug­mynd. Þá benti ég á að það kæmi mér á óvart að heyra það úr þeirri átt vegna þess að það er svo auð­velt að sjá fyrir sér að þeir sem eru með fanta­góðar líf­eyr­is­tekjur myndu, við það að við myndum afnema allar skerð­ingar, halda þessum líf­eyr­is­tekjum bara óbreyttum og fá bætur úr almanna­trygg­ingum. Það segi ég að er ein­fald­lega rangt,“ sagði ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár