Leggur til skerðingarlaust ár 2022

Forseti ASÍ segir að fólk hafi löngum verið sett í spenni­treyju víxl­verk­andi skerð­inga í vel­ferð­ar­kerf­inu og oft og tíðum gert ómögu­legt að bæta líf sitt án þess að eiga á hættu að missa fram­færslu til fram­tíðar.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

„Árið 2022 gæti orðið skerð­ing­ar­laust ár, svona svipað og skatt­lausa árið á níunda ára­tugnum. Þá hefði fólk tæki­færi til að bæta líf sitt, vinna eftir getu og losna tíma­bundið úr spenni­treyj­unni. Það gefur okkur líka færi á að byggja sann­gjarn­ara vel­ferð­ar­kerfi fyrir alla og taka stórt skref í átt að auknu afkomu­ör­yggi. Það væri við hæfi að gera þetta um leið og við komum saman, föll­umst í faðma og gerum allt sem heims­far­ald­ur­inn hefur komið í veg fyrir.“

Þetta skrifar for­seti ASÍ, Drífa Snædal, í viku­legum pistli sínum í dag. Hún telur að nú þegar við horfum fram á tíma þar sem skerð­ingar á ferða­frelsi og sam­komum falla smám saman niður sé við hæfi að líta til hinna frels­is­skerð­ing­anna sem stórir hópar fólks hafa þurft að búa við á Íslandi vegna skorts á mann­sæm­andi afkomu.

Hún segir á að víða um heim sé farið að reyna veru­lega á þan­þol almenn­ings eftir frels­is­skerð­ingar og afkomu­ó­ör­yggi sem far­ald­ur­inn hefur í för með sér. „Þetta birt­ist í óeirðum og óþoli víða þótt flestir sýni aðdá­un­ar­verða still­ingu. Aukinn ójöfn­uður og ótti um eigin afkomu er hins vegar gam­al­reynd upp­skrift að óánægju, óþoli og jafn­vel óeirðum. Nú ber­ast af því fréttir að rík­ustu fyr­ir­tæki og menn í heimi hafi hagn­ast veru­lega síð­asta árið á sama tíma og fátækt eykst og mörg ríki eru í vand­ræðum með að mæta kostn­aði við bólu­setn­ingar. Ójöfn­uður eykst hratt og millj­ónir hafa misst lífs­við­ur­væri sitt. Fram­tíðin er óviss. Þetta er hinn full­komni jarð­vegur fyrir and­lýð­ræð­is­leg öfl sem stíga gjarnan inn í upp­lausn­ar­á­stand.“

Drífa bendir á að Ísland hafi komið vel út úr far­aldr­inum í alþjóð­legum sam­an­burði og tak­mark­anir á athöfnum dag­legs lífs hafi því ekki verið jafn harka­legar hér og víða ann­ars staðar. Þetta megi þakka öfl­ugu, opin­beru heil­brigð­is­kerfi sem inni­ber nægi­lega sér­fræði­þekk­ingu til að geta veitt stjórn­mál­unum leið­sögn til að takast á við far­ald­ur­inn.

Misréttið var til staðar fyrir kófið

„Stjórn­málin eiga líka sitt, það er að hafa tekið leið­sögn­inni, fremur en að reyna að keyra heims­far­ald­ur­inn í póli­tískan átakaf­ar­veg. Hér á landi hefur hins vegar ekki tek­ist að tryggja afkomu fólks og það er fullt til­efni til að hafa áhyggjur af spill­ingu og auknum ójöfn­uði. Það verður ekki sagt nógu oft að grund­völlur friðar og lýð­ræðis er að tryggja afkomu. Það má eng­inn vera und­an­skil­inn; launa­fólk, atvinnu­leit­endur, öryrkjar, aldr­aðir. Allir eiga að búa við afkomu­ör­yggi í sann­gjörnu sam­fé­lagi. Mis­réttið var til staðar fyrir kófið.

Fólk hefur löngum verið sett í spenni­treyju víxl­verk­andi skerð­inga í vel­ferð­ar­kerf­inu og oft og tíðum gert ómögu­legt að bæta líf sitt án þess að eiga á hættu að missa fram­færslu til fram­tíðar. Þetta er ósann­gjarnt og býr til meiri erf­ið­leika en þurfa að vera. Vís­bend­ingar eru um að kófið muni heldur auka á ójöfnuð og koma verst við þá sem höllum fæti standa en vænka hag hinna,“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár