Ragnar Þór: Hótað lífláti og atvinnumissi

Formaður VR segir að fjöl­skyldu hans hafi borist hand­skrifuð bréf með líf­láts­hót­unum. Inni­haldið bendi til þess að hót­an­irnar hafi sprottið úr harðri orð­ræðu í aðdrag­anda Lífs­kjara­samn­ings­ins.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að sér hafi oft og mörgum sinnum verið hótað frá því að hann hóf afskipti að póli­tík og mál­efnum VR og líf­eyr­is­sjóða árið 2009. Vin­sælasta hót­unin sé hvort hann gerir sér ekki grein fyrir því hvaða áhrif skrif hans geti haft á atvinnu­tæki­færi hans í fram­tíð­inni. „Á einum tíma­punkti var mér hótað, skrif­lega, að ákveðin öfl muni tryggja að hvorki ég né fjöl­skylda mín, for­eldrar og börn, fái nokkurn tíma vinnu í íslensku sam­fé­lagi.“

Þetta kemur fram í grein sem Ragnar birtir á Vísi í dag.

Þar segir Ragnar enn enn­fremur að aðrir í þeim hópi sem hóf bar­áttu gegn kerf­inu á þessum vett­vangi hafi allir utan hans og eins ann­ars misst vinn­una, alls fimm manns. „Ein ákvað að þiggja stóra stöðu og fara yfir í hitt liðið.“

[adspot]Hann segir auk þess að honum hafi verið hótað mál­sóknum oftar en hann treysti sér til að telja, án þess að honum hafi nokkru sinni verið stefnt á end­anum. „Fyrir marga eru slíkar hót­anir íþyngj­andi og duga til þögg­unar. Mér per­sónu­lega gæti ekki verið meira sama. Ég hræð­ist ekki þessi öfl, þau hræð­ast mig.“

Ragnar segir að sér hafi einnig verið hótað líf­láti oftar en einu sinni. Einu sinni hafi fjöl­skylda hans þurft að leita til lög­reglu vegna þess að ein­stak­lingur vandi komur sínar á heim­ili hennar með hand­skrif­aðar líf­láts­hót­anir. „Þá var eig­in­konu minni nóg um, og mér auð­vitað líka. Við erum stór fjöl­skylda með fimm börn út og inni af heim­ili okkar og hund­inn Bowie. Lög­reglan afgreiddi málið af mik­illi fag­mennsku og ekki hafa orðið eft­ir­málar af því, ann­ars væri ég ekki að skrifa þetta.“

Fjöl­skyldan dró þá ályktun, að sögn Ragnars, að þetta hafi verið hót­anir sem hafi sprottið úr harðri orð­ræðu í aðdrag­anda Lífs­kjara­samn­ings­ins sem und­ir­rit­aður var í apríl 2019. Innihald bréf­anna hafi gefið það til kynna. „Við vorum úthrópuð stór­hættu­legt „sturlað“ öfga­fólk sem vildi rústa sam­fé­lag­inu með kröfum okkar.“

Skotið á bifreið borgarstjóra

Umræða um hót­anir í garð fólks sem tekur þátt í stjórn­málum eða er í for­ystu víðar í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni hefur verið umtals­verð síð­ustu daga í kjöl­far þess að skemmdir sem virð­ast vera eftir byssu­skot voru unnar á skrif­stofu Sam­fylk­ing­ar­innar og bif­reið Dags B. Egg­erts­sonar, borg­ar­stjóra í Reykja­vík. Byssu­kúlur fund­ust í hurð bif­reiðar Dags fyrir rúmri viku.

[links]Árásin á heim­ili Dags hefur verið sett í sam­hengi við mynd­band sem aðgerð­ar­hópur sem berst fyrir því að bílar fái að keyra um Laugaveg og Skóla­vörðu­stíg setti á Youtube í des­em­ber. Í mynd­band­inu, sem horft hefur verið á í yfir 30 þús­und skipti, var því haldið fram að Dagur hefði keypt þrjú bíla­stæði við heim­ili sitt af Reykja­vík­ur­borg án útboðs og að kostn­aður við gerð Óðins­torgs, sem stendur í námunda við heim­ili Dags, hafi verið á 657 millj­ónir króna. Hið rétta er að Dagur og fjöl­skylda hans keyptu tvö stæði fyrir ára­tug síðan af nágrönn­um, enda stæðin í einka­eigu. Raun­veru­legur kostn­aður við gerð Óðins­torgs var 60,6 millj­ónir króna sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg sem send var út á föstu­dag.

Búið að fjarlæga myndbandið

Einn for­svars­manna hóps­ins, Bolli Krist­ins­son kenndur við Sautján, hefur beðist afsök­unar á einni rang­færslu í mynd­band­inu og það var fjar­lægt af Youtube fyrr í dag.

Dagur sagði í Silfri Egils í gær að hann gæti ekki full­yrt um orsaka­sam­hengi milli mynd­bands­ins og skotárás­ar­inn­ar. „Hins­vegar sagði ég strax þegar farið var að keyra þetta á stærstu net­miðlum lands­ins að þetta ylli mér óhug. Ég var ekk­ert einn í fjöl­skyld­unni um það. Okkur fannst þetta mjög óhugn­an­legt. Mér fannst þarna verið að fara inn á alveg nýjar brautir í íslenskri póli­tík, færa mörkin og gera heim­ili mitt að skot­skífu. Þá grun­aði mig ekki það sem núna gerð­is­t.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár