Bolli biðst afsökunar á rangfærslu – Vigdís skýtur til baka á Dag

Borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík segir að heim­ili sitt hafi verið gert að skot­skífu og að það hafi fyllt hann óhug þegar mynd­band af heim­ili hans hóf að birt­ast á vef­miðlum. Vigdís Hauks­dóttir segir borg­ar­stjóra hafa talað um sitt heim­ili á borg­ar­stjórn­ar­fundi.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bolli Krist­ins­son, athafna­maður sem oft er kenndur við Sautján, hefur beðist afsök­unar á einni rang­færslu í mynd­bandi sem bar heitið „Björgum mið­bænum“ og birt var í síð­asta mán­uði. Hann ætlar að biðja um að mynd­bandið verði fjar­lægt. Það hefur enn ekki verið gert.

[links]Bolli er á meðal þeirra sem stóðu að gerð mynd­bands­ins, en hann hefur leitt hóp sem barist hefur af mik­illi hörku gegn götu­lok­unum á Lauga­vegi og Skóla­vörðu­stíg og öðrum breyt­ingum sem borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn, undir for­ystu Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra, hafa beitt sér fyrir.

Í mynd­band­inu, sem horft hefur verið á í yfir 30 þús­und skipti, var því haldið fram að Dagur hefði keypt þrjú bíla­stæði við heim­ili sitt af Reykja­vík­ur­borg án útboðs og að kostn­aður við gerð Óðins­torgs, sem stendur í námunda við heim­ili Dags, hafi verið á 657 millj­ónir króna. Hið rétta er að Dagur og fjöl­skylda hans keyptu tvö stæði fyrir ára­tug síðan af nágrönnum, enda stæðin í einka­eigu. Raun­veru­legur kostn­aður við gerð Óðins­torgs var 60,6 millj­ónir króna sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg sem send var út á föstu­dag.

Í stöðu­upp­færslu sem Bolli setti inn á Facebook-síðu aðgerða­hóps­ins „Opnum Laugaveg og Skóla­vörðu­stíg“ í gær­kvöldi gengst hann ein­ungis við einni rang­færslu, þeirra em snýr að bíla­stæðum við heim­ili borg­ar­stjóra. „„Ég hef aldrei verið ósann­inda­maður og var mér sagt að allt sem þarna er sagt væri eftir áreið­an­legum heim­ild­ar­mönnum,“ skrif­aði Bolli.

Segir heimili sitt hafa verið gert að skotskífu

Í umræddu mynd­bandi var heim­ili borg­ar­stjóra sýnt og sömu­leiðis áður­nefnd bíla­stæði hans. Borg­ar­stjóri var í sama mund sak­aður um spill­ing­u.

Mynd­bandið hefur verið sett í nýtt sam­hengi eftir að byssu­kúlur fund­ust í bif­reið Dags fyrir rúmri viku. Talið er að skotið hafi verið á bif­reið­ina þar sem hún stóð fyrir utan heim­ili borg­ar­stjóra. Skömmu áður hafði verið skotið á skrif­stofu Sam­fylk­ing­ar­innar.

Dagur sagði í Silfri Egils í gær að hann gæti ekki full­yrt um orsaka­sam­hengi milli mynd­bands­ins og skotárás­ar­innar. „Hins­vegar sagði ég strax þegar farið var að keyra þetta á stærstu net­miðlum lands­ins að þetta ylli mér óhug. Ég var ekk­ert einn í fjöl­skyld­unni um það. Okkur fannst þetta mjög óhugn­an­legt. Mér fannst þarna verið að fara inn á alveg nýjar brautir í íslenskri póli­tík, færa mörkin og gera heim­ili mitt að skot­skífu. Þá grun­aði mig ekki það sem núna gerð­ist.“

[adspot]Karl­maður um sex­tugt var á laug­ar­dag í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur úrskurð­aður í gæslu­varð­hald til 1. febr­úar á grund­velli rann­sókn­ar­hags­muna að kröfu Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u vegna máls­ins. Annar karl­maður hefur einnig rétt­ar­stöðu sak­born­ings í mál­inu.

Vigdís skýtur til baka

Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, kom einnig að gerð mynd­bands­ins með því að lesa yfir það. Í stöðu­upp­færslu á Facebook í morgun seg­ist hún að fjöl­miðlar hafi reglu­lega upp­lýst um búsetu kjör­inna full­trúa, og hlekkjar því til stuðn­ings í frétt mbl.is um búsetu borg­ar­full­trúa frá byrjun árs 2018.

Vigdís seg­ist ekki fylgj­andi slíku. „Þá er einnig rétt að upp­lýsa um að borg­ar­stjóri gerði heim­ili mitt að umtals­efni í ræðu sinni á borg­ar­stjórn­ar­fundi á síð­asta ári þegar skipu­lags­mál voru til umræðu Góð þróun? Nei lík­lega ekki.“

Í athuga­semd við eigin færslu bætir Vigdiís svo við að Dagur hafi opnað heim­ili sitt fyrir gestum og gang­andi á hverju ári, og vísar þar í vöflu­kaffi sem borg­ar­stjór­inn og fjöl­skylda hans hafa staðið fyrir á Menn­ing­arnótt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár