Formenn allra flokka sammælist um að útiloka ofbeldisfull ummæli

Formaður Við­reisnar telur að skýrar sam­eig­in­legar línur og skila­boð af hálfu for­ystufólks í stjórnmálum um að hvers kyns ofbeldi verði ekki liðið væri þýðing­ar­mikil byrjun á kosn­ingaári.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, leggur til að for­menn allra stjórnmálaflokka sem bjóða munu fram lista fyrir næstu alþing­is­kosn­ingar sam­mælist um skýrar leik­reglur sem útil­oki ofbeld­is­full og meið­andi ummæli í aðdrag­anda kosn­inga.

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu hennar í dag. Tilefni skrif­anna er meðal ann­ars atvik sem fjallað hefur verið um í fjöl­miðlum síð­ustu daga en skotið var með byssu á bíl Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra ein­hvern­ tím­ann í síð­ustu viku.

„Árásir á stjórn­mála­fólk og höf­uð­stöðvar stjórn­mála­flokka eru sterk áminn­ing til allra sem taka þátt í opin­berri umræðu um að sýna ábyrgð, aðgát og mann­virð­ingu. Við sem störfum í stjórn­málum verðum að standa saman gegn þess­ari vá. Öll berum við ábyrgð,“ skrifar hún.

Atlaga að dýrmætu frelsi og lýðræði

[links]Þor­gerður Katrín segir að orð­ræða eða athafnir sem ýta undir ógn og ofbeldi gagn­vart stjórnmálafólki, flokkum eða stofn­unum sé atlaga að dýrmætu frelsi og lýðræði. Að hræða fólk frá því að fylgja hug­sjónum sínum og sann­fær­ingu geri það sama. Fjölbreyttar raddir sem ekki eru endi­lega alltaf sam­mála séu lýð­ræð­inu mik­il­vægar. Að sama skapi skipti miklu máli að virð­ing gagn­vart ólíkum sjón­ar­miðum og almenn hátt­vísi sé í hávegum höfð.

„Skýrar sam­eig­in­legar línur og skila­boð af hálfu for­ystufólks í stjórnmálum um að hvers kyns ofbeldi verði ekki liðið, væri þýðing­ar­mikil byrjun á kosn­ingaári. Látum kosn­ing­arnar snúast um hug­myndir og málefni. Fyrir fólkið okkar. Það er mikið undir. Ég er til,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár