Ólafur geldur orða sinna og víkur úr ráðum borgarinnar

Ólafur Guð­munds­son vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks mun ekki sitja áfram sem vara­maður í þremur ráðum borg­ar­innar, vegna ummæla sem hann lét falla um skotárás á bíl borg­ar­stjóra í gær. Hann seg­ist þó áfram verða vara­borg­ar­full­trúi.

Ólafur Guðmundsson varaborgarfulltrúi mun víkja sem varamaður í þremur ráðum borgarinnar vegna ummæla sem hann lét falla um skotárás á bíl borgarstjóra.
Ólafur Guð­munds­son vara­borg­ar­full­trúi mun víkja sem vara­maður í þremur ráðum borg­ar­innar vegna ummæla sem hann lét falla um skotárás á bíl borg­ar­stjóra. Mynd: FÍB

Ólafur Guð­munds­son vara­borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem í gær­kvöldi lét þau orð falla í athuga­semda­kerfi Vísis um skotárás á bíl borg­ar­stjóra að borg­ar­stjóri ætti að byrja á sjálfum sér, bylt­ingin væri „komin heim“ og því ætti borg­ar­stjór­inn bara að taka, mun víkja úr þremur ráðum borg­ar­innar vegna orða sinna.[links]

Þetta kom fyrst fram á Vísi og var haft eftir odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, Eyþóri Arnalds. Ólafur mun ekki lengur vera vara­maður í skipu­lags- og sam­göngu­ráði, öld­unga­ráði og inn­kaupa- og fram­kvæmda­ráði Reykja­vík­ur­borgar. Þrátt fyrir það verður hann áfram vara­borg­ar­full­trúi, en það segir hann sjálfur í sam­tali við RÚV.

„Bríerí“ og „eðli Facebook“

Ólafur hefur eytt athuga­semd sinni í dag, en þurft að svara fyrir orð sín, sem víða hafa verið harð­lega gagn­rýnd. Hann sagði við Mannlíf í morgun að hann hefði látið orð sín falla „í brí­eríi rétt fyrir svefn­inn“, þau hefðu verið mis­tök og að umræða um afsögn hans sem vara­borg­ar­full­trúa ætti ekki rétt á sér.

Við RÚV sagði Ólafur fyrir að orð sín hefðu verið óheppi­leg mis­tök. „Þetta var í gær­kvöldi rétt áður en ég fór að sofa. Þetta er auð­vitað eðli Facebook og maður getur gert mis­tök,“ sagði Ólafur. Hann hefur sent borg­ar­stjóra afsök­un­ar­beiðni, að eigin sögn.

Ummælin fordæmd

Fjöl­margir, kjörnir full­trúar og aðrir, hafa for­dæmt orð Ólafs í dag, en með þeim virt­ist hann rétt­læta skotárás á einka­bíl borg­ar­stjóra.

[adspot]

„Hafi það verið ein­hverjum vafa und­ir­orpið, þá for­dæmi ég þessi dap­ur­legu ummæli Ólafs. Það hlýtur að vera algjört grund­vall­ar­at­riði í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi að fólk geti tekið þátt í póli­tískri umræðu án þess að öryggi þess sé ógnað eða frið­helgi heim­ilis og fjöl­skyldu rofin,“ sagði Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks á Twitter í dag.

Forsætisnefnd fordæmir nýlegar árásir

For­sætis­nefnd Reykja­vík­ur­borgar kom saman í dag og ræddi um nýlegar árásir á höf­uð­stöðvar stjórn­mála­flokka og bif­reið borg­ar­stjóra. Þær eru for­dæmdar, í bókun sem for­sætis­nefnd sam­þykkti á fundi sínum og litnar mjög alvar­legum augum.

„Því miður hafa marg­ir kjörn­ir full­trú­ar áður fengið hót­an­ir vegna starfa sinna. Allt slíkt of­beldi er aðför að okk­ar frjálsa, lýð­ræðis­lega sam­fé­lagi og með öllu óá­sætt­an­legt. For­seta er falið að ræða við borg­ar­rit­ara og lög­reglu­yf­ir­völd og grípa til nauð­syn­legra ráð­staf­ana til að tryggja ör­yggi kjör­inna full­trúa. Gæta verður hófs í umræðu um kjörna full­trúa og frið­helgi einka­lífs þeirra virt. Við vilj­um ekki sam­fé­lag þar sem fólk sem helg­ar sig sam­fé­lags­mál­um þurfi að ótt­ast um ör­yggi sitt,“ seg­ir í bók­un­ for­sætis­nefndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár