„Alvarleg staða“ hjá Hörpu vegna skorts á fjármagni til að sinna viðhaldi

Alls hafa eig­endur Hörpu, ríki og borg, lagt hús­inu til 14,4 millj­arða króna í formi greiðslna af lánum vegna bygg­ingu þess og rekstr­ar­fram­laga. Í fyrra nam rekstr­ar­fram­lag þeirra 728 millj­ónum króna. Mikill vandi framundan vegna upp­safn­aðs við­halds.

Harpa opnaði árið 2011. Kostnaður við rekstur fasteignarinnar og uppsafnað viðhald er að skapa alvarlega stöðu.
Harpa opn­aði árið 2011. Kostn­aður við rekstur fast­eign­ar­innar og upp­safnað við­hald er að skapa alvar­lega stöðu. Mynd: EPA

Eigendur Hörpu, íslenska ríkið og Reykja­vík­ur­borg, lögðu tón­listar- og ráð­stefnu­hús­inu Hörpu til alls 728 millj­ónir króna í rekstr­ar­fram­lag í fyrra. Upp­haf­lega átti rekstr­ar­fram­lagið að vera 450 millj­ónir króna en vegna áhrifa heims­far­ald­urs­ins var það aukið um 278 millj­ónir króna. Aðrar tekjur af starf­semi húss­ins voru 538 millj­ónir króna og dróg­ust saman um 56 pró­sent milli ára. Því var rekstr­ar­fram­lag eig­enda tæp­lega 58 pró­sent af öllum tekjum Hörpu á árinu 2020.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Hörpu fyrir síð­asta ár.

Þar segir að lil við­bótar við fram­lög að fjár­hæð 450 millj­ónir króna árið 2021 hafi eig­endur stað­fest sér­stakt fram­lag vegna áhrifa COVID-19 og muni það tryggja rekstr­ar­hæfi sam­stæð­unnar að óbreyttu út árið 2021. Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) lagði blessun sína yfir við­bót­ar­stuðn­ing eig­enda Hörpu við húsið í des­em­ber í fyrra. ESA veitti eig­endum húss­ins heim­ild til þess að bæta tjón Hörpu vegna heims­far­ald­urs­ins að fullu með fjár­fram­lögum úr opin­berum sjóðum ríkis og borg­ar.

[adspot]Við blasa hins vegar stærri vanda­mál sem þarf að taka á. Í árs­reikn­ingnum segir að rekstr­ar­for­sendur og grund­völlur starf­semi í Hörpu þarfn­ist end­ur­skoð­unar. Sú staða sé ekki ný heldur hafi hún ein­kennt starf­sem­ina frá opnun húss­ins. Skýr­ing­arnar fyrir því eru meðal ann­ars hár kostn­aður við rekstur fast­eign­ar­innar og mun hærri fast­eigna­gjöld en gert hafði verið ráð fyrir. „Alvarleg staða er að skap­ast vegna upp­safn­aðs við­halds á fast­eign og bún­aði sem hefur ekki hefur verið hægt að sinna og sömu­leiðis er skortur á fjár­magni til að sinna til hlítar menn­ing­ar­hlut­verki Hörpu sem kveðið er á um í eig­enda­stefnu Hörpu.“

Ríki og borg tóku yfir

Íslenska ríkið og Reykja­vík­­­­­ur­­­borg sam­­­þykktu að taka yfir og klára bygg­ingu Hörpu snemma árs 2009. Þá höfðu fram­­­kvæmdir við bygg­ingu hús­s­ins, sem Eign­­­ar­halds­­­­­fé­lag­ið Portus stóð fyr­ir, stöðvast í kjöl­far banka­hruns­ins. Ástæðan var sú Portus og dótt­­­ur­­­fé­lög þess, sem voru í eigu Lands­­­banka Íslands og Nýsis, fóru í þrot.

Eftir yfir­­­­­töku ríkis og borgar á verk­efn­inu, sem var gerð þegar Katrín Jak­obs­dótt­ir, nú for­sæt­is­ráð­herra, var mennta­­­mála­ráð­herra og Hanna Birna Krist­jáns­dóttir borg­­­ar­­­stjóri í Reykja­vík, var tekið sam­­­banka­lán hjá íslensku bönk­­­unum til að fjár­­­­­magna yfir­­­tök­una. Í skrif­­­legu svari Katrínar við fyr­ir­­­spurn þing­­­manns­ins Marðar Árna­­­sonar um Hörpu, sem birt var í mars 2011, kom mjög skýrt fram að ekki ætti að setja meira fé en þar var umsamið í Hörpu.

Þar sagði orð­rétt að „for­­­sendur fyrir yfir­­­­­töku verk­efn­is­ins voru þær að ekki þyrftu að koma til önnur fram­lög frá ríki og borg en gert var ráð fyrir í samn­ing­i Aust­­ur­hafn­­ar-TR og Portusar frá 9. mars 2006".

Tón­list­­ar- og ráð­­stefn­u­­húsið Harpan er nú í 54 pró­­sent eigu rík­­is­ins og 46 pró­­sent í eigu Reykja­vík­­­ur­­borg­­ar.

Kostnaður eigenda kominn í 14,4 milljarða króna

Eig­end­urnir hafa alls greitt 11,6 millj­arða króna í end­ur­greiðslu láns vegna bygg­ing­ar­kostn­aðar Hörpu frá því að húsið opn­aði árið 2011. Fyrsti gjald­dagi láns­ins var í maí 2013 og síð­asti gjald­dagi verður þann 15. febr­úar 2046. Áætluð afborgun næsta árs er um 500,6 millj­ónir króna en áætluð heild­ar­greiðsla láns­ins með vöxtum og verð­bótum er 1.201,6 millj­ónir króna á árinu 2021.

Til við­bótar hafa þeir greitt áður­nefnd rekstr­ar­fram­lög sem sam­tals hafa numið rúm­lega 2,8 millj­örðum króna síð­ast­lið­inn ára­tug. Sam­an­lagt hafa ríki og borg því greitt 14,4 millj­arða króna vegna Hörpu á tíma­bil­inu. Í ár munu bæt­ast hátt í tveir millj­arðar króna við þá tölu án tek­ist til­lits til við­bót­ar­kostn­aðar vegna upp­safn­aðs við­halds.

Reykja­vík­ur­borg fær umtals­verðar beinar tekjur vegna húss­ins á móti sínu fram­lagi í formi fast­eigna­gjalda. Þau voru 311 millj­ónir króna í fyrra. Mikillar óánægju hefur gætt á meðal þeirra sem stýra málum hjá Hörpu með það hversu há fast­eigna­gjöld eru lögð á starf­sem­ina. Upp­haf­lega mið­aði Þjóðskrá Íslands fast­eigna­mat Hörpu við bygg­ing­ar­kostnað húss­ins. Rekstr­ar­fé­lag Hörpu var afar ósátt með þá flokkun og málið fór fyrir dóm­stóla, enda ljóst að þorri rekstr­ar­tekna Hörpu fyrstu árin eftir að húsið opn­aði myndi fara til greiðslu fast­eigna­gjalda, sem rukkuð voru af öðrum eig­anda húss­ins. Hæsti­réttur Íslands ógilti úrskurð yfir­fast­eigna­mats­nefndar í mál­inu snemma árs 2016 og við það lækk­uðu fast­eigna­skattar Hörpu umtals­vert. Þeir eru þó enn háir og í fyrra voru þeir til að mynda 58 pró­sent af öllum rekstr­ar­tekjum Hörpu utan fram­lags eig­enda. Það er þó vert að end­ur­taka að þær tekjur rúm­lega helm­ing­uð­ust á milli áranna 2019 og 2019 vegna áhrifa heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár