Ríkisstjórnin setur 450 milljónir króna í aðgerðir fyrir tónlist og sviðslistir

Við­bót­ar­lista­manna­laun verða að stóru leyti eyrna­merkt tón­listar- og sviðs­li­st­ar­fólki undir 35 ára aldri og fjár­munir verða settir í að styðja við ýmis konar við­burð­ar­hald til að mæta miklum sam­drætti í tekjum í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

Lilja Alfreðsdóttir er ráðherra menningarmála.
Lilja Alfreðs­dóttir er ráð­herra menn­ing­ar­mála. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­stjórn Íslands hefur ákveðið að setja 450 millj­ónir króna í við­spyrnu­að­gerðir í þágu tón­listar- og sviðs­lista­geir­anna vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru.

Í til­kynn­ingu sem birt hefur verið á vef stjórn­ar­ráðs­ins vegna þessa kemur fram að þeir sem hafa helst tekjur af við­burð­ar­haldi hafi séð þær skreppa gríð­ar­lega saman á þeim 22 mán­uðum sem liðnir eru frá því að far­ald­ur­inn skall á. Þannig voru greiðslur til rétt­hafa í tón­list vegna tón­leika­halds á árinu 2021 til að mynda 87 pró­sent lægri en sam­svar­andi tekjur árið 2019. Auk þess hafi sjálf­stæð leik­hús og leik­hópar farið veru­lega illa út úr far­aldr­inum vegna sótt­varn­ar­að­gerða og lokanna.

Á meðal aðgerða sem gripuð verður til er að eyrna­merkja fólki undir 35 ára aldri lista­manna­laun í fyrsta sinn. Það er gert ann­ars vegar þannig að 75 milljón króna við­bót­ar­fram­lag, alls 150 mán­að­ar­laun lista­manna, verður sett í starfs­laun lista­manna í gegnum launa­sjóð tón­list­ar­flytj­enda. Þar af verður úthlutun 50 mán­að­ar­launa bundin því skil­yrði að ungt tón­list­ar­fólk undir 35 ára aldri njóti góðs af þeim. Hins vegar verða 50 millj­ónir króna, alls 100 mán­að­ar­laun lista­manna, settar í starfs­laun lista­manna í gegnum launa­sjóð sviðs­lista­fólks og 50 mán­að­ar­laun verða „bundin því skil­yrði að ungt sviðs­lista­fólk undir 35 ára aldri njóti góðs af þeim.“

[adspot]Fyrr í þessum mán­uði úthlut­aði Launa­sjóður lista­manna alls 1.600 mán­að­ar­launum til lista­manna. Kostn­aður vegna þeirra er 785 millj­ónir króna. Alls fengu 236 lista­menn úthlutað launum en 1.117 ein­stak­lingar eða hópar sóttu um. Því er ljóst að mun fleiri sótt­ust eftir að fá slík en fengu. Starfs­laun lista­manna eru 490.920 krónur á mán­uði sam­kvæmt fjár­lögum 2022. Um verk­taka­greiðslur er að ræða.

Þá mun rík­is­sjóður standa að 150 milljón króna greiðslu til tón­höf­unda, sem hafa séð tekjur sínar af tón­leika­haldi rýrna um 80 pró­sent milli 2019 og 2020 og álíka mikið milli 2020 og 2021. Tekjur af dans­leikja­haldi rýrn­uðu einnig um 82 pró­sent milli áranna 2019 og 2021. „Með fram­lag­inu er hægt að styrkja rétt­hafa beint í gegnum STEF sam­tökin, en þeim verður falið að setja við­mið um úthlutun fjár­ins sem næðu hvoru­tveggja til þeirra sem höfðu tekjur af höf­unda­rétt­ar­gjöldum fyrir heims­far­ald­ur­inn og þeirra sem hafa komið nýir inn á mark­að­inn und­an­farið.“

Tón­list­ar­sjóður fær 50 milljón króna við­bót­ar­fram­lag til að styðja við við­burða­hald á árinu 2022, Hljóð­rita­sjóður fær 40 millj­ónir króna og ÚTON fær tíu millj­ónir króna til að koma til móts við íslenskt tón­list­ar­fólk sem sækir fram á erlendri grundu. Þá fær Tón­verka­mið­stöðin tíu millj­ónir króna.

Sviðs­lista­sjóður fær svo 25 millj­ónir króna til að styðja við við­burð­ar­hald á árinu 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár