ÓGN: Ráðgátan um Dísar-Svan

Hrund Hlöðvers­dóttir hefur skrifað bók sem er óður til nátt­úr­unnar, tón­listar og íslenskrar þjóð­menn­ingar. Hún safnar nú fyrir útgáfu­kostn­aði á Karolina Fund.

Hrund Hlöðvers­dóttir hefur átt þann draum frá því að hún var lítil að skrifa bók. Nú þegar
ævin er lík­leg­ast nokkurn vegin hálfnuð fannst henni kom­inn tími til að láta draum­inn ræt­ast.
Safnað er fyrir útgáfu­kostn­aði á Karolina Fund. 

Hrund segir að hug­myndin að verk­efn­inu hafi fyrst vaknað fyrir sjö árum síðan eða árið 2014, þegar hún fór ásamt nem­endum og starfs­fólki Hrafna­gils­skóla í
göngu upp að Hraunsvatni í Öxnadal. „Þar er mikil nátt­úru­feg­urð þar sem Hraun­drang­arnir
tróna yfir manni. Á þessum tíma hafði ég verið að kynna mér þjóð­sögur og lesið um álfa,
huldu­fólk, skrímsli og aðrar kynja­skepnur.
Eftir ferð­ina að Hraunsvatni fékk ég þá hug­mynd að skrifa ung­menna­bók sem gerð­ist í
þessu ævin­týra­lega umhverfi. Mig lang­aði til að nýta þjóð­sagna­arf­inn, ævin­týra­heim­inn
sem hefur gengið mann fram af manni og tengja hann venju­legu fólki í raun­heimum.
Bókin var skrifuð með hléum á tveggja ára tíma­bili en síðan þá hefur hún verið end­ur­rituð
og betrumbætt nokkrum sinnum.“

[adspot]Meg­in­þema bók­ar­innar eru að sögn höf­und­ar­ins huldu­heimar, sá heimur sem til­heyri álfum og huldu­fólki og
sem margir trúa enn dag að séu til. „Barátta huldu­fólks­ins og skugga er bar­átta góðs og ills
sem er að finna víðs­vegar um heim­inn og einnig í sér­hverri mann­eskju.


Bókin fjallar um Svandísi sem er fjórtán ára stelpa sem flytur úr borg­inni norður í
land. Þar eign­ast hún vin­ina Brján og Sylvíu en saknar vin­konu sinnar Láru og getur ekki
beðið eftir að hún komi í heim­sókn í jóla­frí­inu. Í kringum Svandísi er margt ein­kenni­legt
á kreiki. Köttur með rauð augu, dul­ar­fullir hestar og fólk sem ef til vill er annað en það
sýn­ist vera. Hún flæk­ist inn í bar­áttu góðs og ills, kynn­ist ást­inni og þarf ásamt vinum
sínum að glíma við ógur­legar kynja­skepnur.“

Hrund segir að sagan sé líka óður til nátt­úr­unnar, tón­listar og íslenskrar
þjóð­menn­ingar. „Hún tengir saman nýja og gamla tíma, yngri kyn­slóðir við þær eldri. Hún
spenn­andi ævin­týra­saga sem ungir jafnt sem gamlir ættu að hafa gaman að.“

Hér er hægt að taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bók

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár