Áhugakona um hættulegar hugmyndir um breyttan heim gefur út skaldsögu

Mold­viðri er fyrsta skáld­saga Sig­ur­bjargar A Sæm. Hún safnar nú fyrir útgáfu­kostn­aði á Karolina Fund.

Sig­ur­björg A Sæm er skáld­kona og skrif­ari, fædd árið 1981. Hún er akti­visti og áhuga­kona um hættu­legar hug­myndir um breyttan heim. Eftir hana hafa komið út tvær ljóða­bækur; Mjálm (2015) og Til­eink­anir (2020). Þá var ljóð hennar, Skammt­ar­inn, birt í TMM snemma árs 2016. Eins var hún með ljóð í safn­verk­inu Vilja­verk í Palest­ínu sem kom út árið 2014 á vegum vefrits­ins Starafugls. 
Hún deilir heim­ili með 7 ára fræði­manni, 15 ára lista­konu, þrí­tugum hippa og þrem ein­stökum köttum.

Nú er hún að leggja loka­hönd á sína fyrstu skáld­sögu sem ber tit­il­inn Mold­viðri. Höfundur er með Facebook-síðu sem hægt er að sjá hér.

Sett hefur verið af stað söfnun fyrir útgáfu­kostn­aði á Karolina Fund.

Sig­ur­björg segir að Mold­viðri hafi byrjað sem stutt prósa­ljóð árið 2014. „Hug­myndin að prósa­ljóð­inu kvikn­aði því ég fékk ein­hverja djúp­stæða þörf til að segja sögu stúlkna og kvenna sem lifa við með­fædda skömm. Kvenna sem eru beittar órétti og ofbeldi. Kvenna sem eru sterk­ari en allt sem sterkt er. Og mig lang­aði að blanda súr­r­eal­isma, popp­kúltúr ásamt óhefl­uðu orð­bragði í þetta mengi. Ljóðið varð svo að nokk­urs konar ljóða­bálki sem varð að smá­sögu sem sprengdi svo loks þann kvóta. Og ég fann að þetta yrði mín fyrsta skáld­saga. Byrjaði svo mark­visst að skrifa þessa sögu eftir erf­iðan skilnað árið 2017. Skrift­irnar urðu að nokk­urs konar catharsis eftir erfið ár.“

[adspot]Hún segir sög­una vera snar­fem­iníska sem fjalli um glæp einnar konu og leit hennar að sann­leik­anum. „Meðfædd sekt­ar­kennd kvenna spilar það stórt hlut­verk að hún er eig­in­lega­hálf mann­leg per­sóna í bók­inni. Skilin milli veru­leika og ímyndana eru mis­skýr og við dönsum á mörkum hins óþægi­lega og óvið­eig­andi þegar nóttin kemur. Sögu­hetjan okkar heitir María og hún er ég, hún er þú, hún er hin og hún er við allar.“

Sig­ur­björg segir að eftir 7 ára vinnslu á sög­unni finn­ist henni tíma­bært að hún komi út. „Hún hefur gengið ansi nærri mér á þessum árum, en ég finn svo sterkt að þetta er mik­il­væg saga að segja. Ég skrif­aði sög­una fyrir okkur bar­áttu­konur allra kyn­slóða og okkur sem erum orðin þreytt á að berj­ast. Þetta er skáld­saga fyrir fólk af öllum kynjum sem fílar grótesk sögur, þetta er bók fyrir unn­endur Undra­lands, þetta er bók fyrir karl­rétt­inda­sinna. Því öll höfum við upp­lifað örlítið mold­viðri.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bók

Mest lesið undanfarið ár