Listaverk sem fjarlægt var af bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði komið upp á nýjan leik

Lista­verk þeirra Libiu Castro og Ólafs Ólafs­sonar var fjar­lægt af gafli Hafn­ar­borgar fyrr í þessum mán­uði að beiðni bæj­ar­yf­ir­valda. Lista­verkið er nú aftur komið upp en lík­lega hafa bæj­ar­yf­ir­völd látið undan þrýst­ingi fag­fé­laga að mati lista­mann­anna.

Græni miðinn er aftur kominn upp á gafl Hafnarborgar.
Græni mið­inn er aftur kom­inn upp á gafl Hafn­ar­borgar. Mynd: Libia Castro & Ólafur Ólafsson

Lista­verk þeirra Libiu Castro og Ólafs Ólafs­sonar sem fjar­lægt var af gafli Hafn­ar­borgar í byrjun mán­að­ar­ins er komið aftur á sinn stað á gafli húss­ins. Í sam­tali við Kjarnann segir tvíeykið að ef til vill hafi þrýst­ingur á bæj­ar­yf­ir­völd orðið þess vald­andi að leyfi fyrir upp­setn­ingu verks­ins að nýju hafi verið veitt.

Að sögn tvíeyk­is­ins liggur ekki ljóst fyrir hvað gerði úts­lagið í bar­áttu þeirra fyrir því að fá verkið aftur upp en yfir­lýs­ingar frá Banda­lagi íslenskra lista­manna (BÍL) og ICOM, alþjóða­ráði safna hafa ef til vill haft eitt­hvað að segja. „Það var komin yfir­lýs­ing frá ICOM og frá BÍL þar sem SÍM (Samband íslenskra mynd­list­ar­manna) er nátt­úr­lega með og Myndstef var á leið­inni og svo kom yfir­lýs­ing frá list­ráði Hafn­ar­borgar sem var mjög mik­il­væg. Þau voru bara algjör­lega á sömu línu og BÍL og ICOM. Ég veit ekki hvað, þau hafa fundið fyrir þrýst­ingnum held ég og orðið að sjá að sér,“ segir Ólafur.

Lista­verk þeirra Libiu og Ólafs, upp­stækkun af miða sem fylltur var út af þátt­tak­enda þjóð­fund­ar­ins 2010, var sett upp föstu­dag­inn 30. mars. Aðdrag­and­inn að því hafði verið langur. For­stöðu­maður Hafn­ar­borgar hafði sótt um form­legt leyfi haustið 2020 en lítið gekk. Libia og Ólafur ákváðu því að sækja leyfið sjálf og það fengu þau frá sviðs­stjóra umhverfis- og skipu­lags­sviðs og umsjón­ar­manni fast­eigna.

Tveimur dögum eftir að verk­inu var komið fyrir á gafli húss­ins var það svo tekið niður að fyr­ir­skipan Rósu Guð­bjarts­dóttur bæj­ar­stjóra Hafn­ar­fjarðar. Skortur á við­eig­andi leyfum var skýr­ingin sem Rósa og bæj­ar­yf­ir­völd gáfu fyrir nið­ur­töku verks­ins.

Stóð alltaf til að setja upp verk

Lista­menn­irnir segja að frá upp­hafi hafi verk eftir þau átt að fara á gafl húss­ins, það sé venjan á sýn­ingum þeirra víða um heim auk þess sem þau höfðu skilað inn til­lögum að upp­setn­ingu áður en sýn­ingin opn­aði.

„Þetta sner­ist alltaf bara um að það færi ekki verk út á gafl húss­ins frá þessu verk­efni. Enda voru það fyrstu við­brögð for­stöðu­manns Hafn­ar­borgar, hún sagði: „Bæj­ar­stjórnin verður ekki hrifin af þessu,“ þegar við kynntum að við ætl­uðum að setja verk út á gafl húss­ins,“ segir Ólafur. [links]

Málið var tekið fyrir bæði á bæj­ar­ráðs­fundi sem og á bæj­ar­stjórn­ar­fundi. Á bæj­ar­ráðs­fund­inum var til­laga sam­þykkt um að verk­inu yrði fund­inn nýr staður og því komið upp frístand­andi í grennd safns­ins. Það er nokkuð á skjön við hefð­bundnar vinnu­að­ferðir Libiu og Ólafs en á sýn­ingum þeirra teygja verkin sig iðu­lega út fyrir veggi lista­safna og utan á þau.

Í lið­inni viku fékkst aftur á móti leyfi frá bygg­ing­ar­full­trúa fyrir því að verkið yrði sett aftur upp á gafl húss­ins. Það er því komið upp á nýjan leik.

Málinu ekki lokið

Málinu er þó enn ekki lokið en Ólafur segir list­ráð Hafn­ar­borgar eiga eftir að koma saman og fara yfir nið­ur­stöð­urnar. Að hans sögn ríkir óánægja innan list­ráðs­ins með nýja ferla sem inn­leiddir hafa verið í kjöl­far máls­ins, ferla sem hafa með upp­setn­ingu lista­verka í almanna­rými.

„Nú á að setja þetta í ein­hver skýr­ari ferli og það hljómar eins og það eigi að setja hömlur á list í almenn­ings­rými á og í kringum hafn­ar­borg. Jafnvel bara almennt. Það hljómar ekki eins og það eigi að vinna fyrir list­ina og setja skýrar reglur svo að yfir­völd fari ekki að skipta sér af,“ segir Ólafur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár