Brýna fyrir bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði að kynna sér siðareglur og virða þær

Íslands­deild Alþjóða­ráðs safna segir inn­grip bæj­ar­stjóra vekja áleitnar spurn­ingar um sjálf­stæði safna. Það sem gerð­ist í Hafn­ar­borg sé „hvorki í sam­ræmi við siða­reglur né safna­lög, og telst vera óeðli­leg afskipti af stjórnun safns,“ segir í ályktun.

Listaverk Libiu Castro og Ólafs Ólafssonar á gafli Hafnarborgar á meðan það hékk þar.
Lista­verk Libiu Castro og Ólafs Ólafs­sonar á gafli Hafn­ar­borgar á meðan það hékk þar. Mynd: Libia Castro & Ólafur Ólafsson

Stjórn Íslands­deildar ICOM, alþjóða­ráðs safna, brýnir fyrir bæj­ar­yf­ir­völdum í Hafn­ar­firði að kynna sér siða­reglur ICOM og virða þær í hví­vetna. Þetta kemur fram í ályktun frá Íslands­deild ICOM sem stjórn deild­ar­innar sendi frá sér í dag. Í álykt­un­inni kemur fram að Hafn­ar­borg sé við­ur­kennt safn sam­kvæmt safna­lögum en í tíundu grein lag­anna kemur fram að skil­yrði fyrir við­ur­kenn­ingu safns er að safn starfi í sam­ræmi við siða­reglur ICOM. [links]

Ástæða álykt­un­ar­innar er sú að lista­verk lista­mannatvíeyk­is­ins Libiu Castro og Ólafs Ólafs­sonar var fjar­lægt af gafli Hafn­ar­borgar að fyr­ir­skipun bæj­ar­stjóra Hafn­ar­fjarðar, Rósu Guð­bjarts­dóttur, líkt og Kjarninn hefur fjallað um. Verkið er hluti af yfir­stand­andi sýn­ingu þeirra í safn­inu, Töfra­fundur - ára­tug síðar. Í ályktun Íslands­deildar ICOM segir að í kjöl­far þessa atburðar vakni áleitnar spurn­ingar um sjálf­stæði safna.

Fram kemur í álykt­un­inni að henni sé beint til bæj­ar­yf­ir­valda í Hafn­ar­firði sem eig­enda og ábyrgð­ar­að­ila safns­ins. Í siða­reglum komi fram að yfir­stjórn safns skuli aldrei fara fram á að starfs­fólk safns geri neitt það sem talið er að stríði gegn siða­reglum ICOM.

„Þá vill stjórn Íslands­deildar ICOM árétta að for­stöðu­maður ber beina ábyrgð gagn­vart yfir­stjórn safns­ins. Inngrip yfir­stjórnar í starf­semi safns af því tagi sem hér hefur átt sér stað er því hvorki í sam­ræmi við siða­reglur né safna­lög, og telst vera óeðli­leg afskipti af stjórnun safns,“ segir í álykt­un­inni. Sem eig­andi Hafn­ar­borgar verði Hafn­ar­fjarð­ar­bær að tryggja að starf­semi safns­ins end­ur­spegli fag­lega ábyrgð eins og kveðið er á um í siða­reglum ICOM og lögum.

Málið tekið fyrir á bæjarráðsfundi

Lista­verk­inu sem um ræðir var komið fyrir á gafli Hafn­ar­borgar föstu­dag­inn 30. mars eftir að lista­menn­irnir Libia og Ólafur höfðu útvegað sér munn­legs leyfis fyrir upp­setn­ingu verks­ins hjá þar til bærum emb­ætt­is­manni. Tveimur dögum síðar, að morgni sunnu­dags, var verkið svo fjar­lægt að beiðni bæj­ar­stjór­ans. Í sam­tali við Kjarnann sagði lista­mannatvíeykið það „stórfurðu­legt og alvar­legt að bæj­ar­stjóri sjái sig knú­inn til að grípa inn í með þessum drastíska hætti.“

Málið var tekið fyrir á bæj­ar­ráðs­fundi í síð­ustu viku þar sem full­trúar minni­hlut­ans gerðu alvar­legar athuga­semdir við það sem þau köll­uðu rit­skoðun bæj­ar­stjór­ans og lögðu það til að verkið yrði sett aftur upp svo til taf­ar­laust og lista­menn­irnir beðnir afsök­unar. Tillagan var felld og til­laga meiri­hlut­ans sam­þykkt um að tvíeykið skyldi sækja form­lega um leyfi fyrir upp­setn­ingu verks­ins.

Í bókun sinni á fund­inum vís­aði Rósa Guð­bjarts­dóttir því alfarið á bug að um rit­skoðun væri að ræða, verkið hefði verið sett upp í leyf­is­leysi og þar við sæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár