UNESCO kallar eftir auknum stuðningi við listafólk

Heims­far­ald­ur­inn, ásamt auknu vægi staf­rænnar listar og minni fjár­fest­ingu í menn­ingu hefur dregið úr fjár­hags­legu öryggi lista­fólks, segir UNESCO. Samtökin leggja til að lista­fólk fái lág­marks­laun og veik­inda­daga í nýrri skýrslu.

Minna hefur verið um tónleika eftir að heimsfaraldurinn skall á.
Minna hefur verið um tón­leika eftir að heims­far­ald­ur­inn skall á. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rík­is­stjórnir um allan heim ættu að bæta félags­legt örygg­is­net lista­fólks, þar sem meiri óvissa hefur ríkt um fjár­hags­stöðu þess á síð­ustu árum. Þetta segir mennta-, vís­inda- og menn­ing­ar­mála­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNESCO) í nýbirtri skýrslu sinni um stöðu menn­ing­ar­geirans.

Fleiri neytendur en meiri óvissa

Samkvæmt UNESCO hefur vægi staf­rænnar listar auk­ist hratt á síð­ustu árum, sér­stak­lega eftir að heims­far­ald­ur­inn hófst. Á sama tíma hafa tekjur lista­fólks af lista­við­burðum minnkað og stærri hluti þeirra komið frá alþjóð­legum streym­isveitum.

Samtökin segja þessa staf­ræna umbreyt­ingu menn­ing­ar­af­urða hafa leitt til fjölda vanda­mála fyrir lista­fólk. Þeirra á meðal eru deilur um einka­rétt,, harðn­andi sam­keppni og tekju­kerfi sem skila ekki nægum tekjum til þeirra sem skapa afurð­irnar sjálfar.

Þar að auki nefnir UNESCO að fjár­fest­ingar hins opin­bera í list­greinum, sem 6,2 pró­sent starf­andi fólks vinnur við og stuðli að 3,1 pró­sentum af fram­leiðslu heims­byggð­ar­innar, hafi minnkað á síð­ustu tíu árum.

Ernesto Ottone, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri menn­ingar fyrir UNESCO, sagði í við­tali við Guardian að ákveðin þver­sögn hafi sprottið upp úr ástand­inu, þar sem fleiri neyta nú menn­ing­ar­af­urða um allan heim á meðan erf­ið­ara sé fyrir lista­fólk að finna sér vinnu.

Stuðningur við verktaka nauðsynlegur

Þrátt fyrir að rík­is­stjórnir víða um heim reyndu að bregð­ast við tekju­falli lista­manna vegna far­ald­urs­ins og sótt­varn­ar­að­gerð­anna sem honum fylgdi dróg­ust heild­ar­tekjur skap­andi greina saman um 750 millj­arða Banda­ríkja­dali árið 2020.

Þá segir UNESCO að nauð­syn­legt sé að tryggja lista­fólki fjár­hags­legt stuðn­ings­net, en að stór hluti þess sé annað hvort verk­takar eða sjálf­stætt starf­andi og falli því utan vel­ferð­ar­kerf­is­ins í mörgum ríkjum. Samtökin nefna ekki hvernig stjórn­völd ættu að gera það, en bæta þó við að ákall eftir borg­ara­launum og lág­marks­launum fyrir alla á vinnu­mark­aði hafi auk­ist í kjöl­far far­ald­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár