Bandalag íslenskra listamanna og listráð Hafnarborgar gagnrýna afskipti bæjarstjóra

BÍL kallar eftir fjar­lægð milli póli­tískra vald­hafa frá list­rænum ákvörð­unum. Listráð Hafn­ar­borgar segir nið­ur­töku lista­verks „ófor­svar­an­legt inn­grip í list­ræna starf­semi safns­ins.“ Löng umræða um málið fór fram á fundi bæj­ar­stjórnar Hafn­ar­fjarðar í gær.

Inngrip stjórn­valda í sýn­ingu Libiu Castro og Ólafs Ólafs­sonar í Hafn­ar­borg er rit­skoðun að mati Banda­lags íslenskra lista­manna (BÍL). „Það þarf eng­inn að velkj­ast í vafa um að ákvörðun um að láta fjar­lægja hluta sýn­ing­ar­innar af vegg safns­ins er for­dæma­laus ákvörðun og verður ekki slitin úr sam­hengi við eðli og form sýn­ing­ar­innar, allar eftir á skýr­ingar um leyf­is­veit­ingar eru hefð­bundið yfir­klór og tækni­legar aðfinnslur til að rétt­læta þá rit­skoðun,“ segir í yfir­lýs­inguá vef BÍL. [links]

Í yfir­lýs­ing­unni lýsir BÍL furðu sinni á þeim atburðum sem hafa átt sér stað í tengslum við sýn­ingu lista­mannatvíeyk­is­ins í Hafn­ar­borg. Hafn­ar­borg sé við­ur­kennt safn sam­kvæmt safna­lögum og beri því að starfa sam­kvæmt þeim sem og siða­reglum ICOM, alþjóða­ráðs safna. BÍL segir inn­grip og afskipti stjórn­valda af sýn­ing­unni ganga á svig við þær siða­reglur og meg­in­reglu stjórn­sýslu menn­ing­ar­mála, að „við­hafa fjar­lægð póli­tískra vald­hafa frá list­rænum ákvörð­unum í rekstri safna og menn­ing­ar­stofn­anna.“

Listráð Hafnarborgar fordæmir afskipti stjórnmálamanna

Þá sendi list­ráð Hafn­ar­borgar einnig frá sér yfir­lýs­ingu í gær. Í henni kemur fram að list­ráðið telji nið­ur­töku verks­ins „ófor­svar­an­legt inn­grip í list­ræna starf­semi safns­ins og það setji gott orð­spor og heiður safns­ins í alvar­legt upp­nám.“

List­ráðið segir afskipti bæj­ar­stjóra afar var­huga­verð og að það muni skaða list­rænt frelsi safns­ins auk þess sem list­ráðið for­dæmir afskipti póli­tík­ur­innar.

„Listráð Hafn­ar­borgar for­dæmir öll afskipti stjórn­mála­manna af list­rænni starf­semi safns­ins, hvort sem það varðar val á lista­mönnum og lista­verkum, upp­setn­ingu verka, útfærslu eða tíma­bundna stað­setn­ingu þeirra, innan dyra sem og utan,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. Það kallar eftir því að nið­ur­takan verði aft­ur­kölluð og verk­inu komið fyrir á sama stað og það var.

Löng umræða um málið í bæjarstjórn

Löng umræða um málið fór fram á fundi bæj­ar­stjórnar Hafn­ar­fjarðar í gær. Full­trúar minni­hlut­ans köll­uðu eftir afsök­un­ar­beiðni bæj­ar­stjóra á fjar­læg­ingu lista­verks þeirra Libiu og Ólafs. Full­trú­arnir ósk­uðu eftir upp­lýs­ingum um aðdrag­anda þess að verkið var tekið niður auk þess sem þau köll­uðu þetta rit­skoðun.

Rósa Guð­bjarts­dóttir, bæj­ar­stjóri, sagði það af og frá að um rit­skoðun hafi verið að ræða. Öll ummæli í þá átt dæmi sig sjálf. Hún sagði að til­skilin leyfi fyrir upp­setn­ingu verks­ins hafi ekki verið fyrir hendi. Hún sagði starfs­menn bæj­ar­ins hafa leitað mikið af leyf­inu sem talað hefur verið um að lista­menn­irnir hafi fengið. „Þetta er munn­legt eitt­hvað á milli fólks sem að við höfum ekki verið áheyr­endur að sem að stöndum í þessu máli. Það dugar ekki í stjórn­sýslu Hafn­ar­fjarðar,“ sagði Rósa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár