„Stórfurðulegt og alvarlegt“ að bæjarstjóri biðji um að listaverk sé fjarlægt

Lista­verk Libiu Castro og Ólafs Ólafs­sonar var fjar­lægt af gafli Hafn­ar­borgar í gær­morgun að beiðni bæj­ar­yf­ir­valda í Hafn­ar­firði. Bæj­ar­yf­ir­völd segja leyfi hafa skort en vilja að öðru leyti ekki tjá sig um málið.

Listaverk þeirra Libiu og Ólafs á gafli Hafnarborgar áður en það var fjarlægt.
Lista­verk þeirra Libiu og Ólafs á gafli Hafn­ar­borgar áður en það var fjar­lægt. Mynd: Libia Castro & Ólafur Ólafsson

„Það staf­aði engum hætta af verk­inu og það var allt gert eftir réttum leiðum og leyfi feng­ust. Það er stórfurðu­legt og alvar­legt að bæj­ar­stjóri sjái sig knú­inn til að grípa inn í með þessum drastíska hætti,“ segir lista­mannatvíeykið Libia Castro og Ólafur Ólafsson um beiðni bæj­ar­stjóra Hafn­ar­fjarðar, Rósu Guð­bjarts­dóttur, um að lista­verk Libiu og Ólafs skyldi fjar­lægt af gafli Hafn­ar­borgar – menn­ingar og lista­mið­stöðvar Hafn­ar­fjarðar.

Verkinu var komið fyrir á gafli Hafn­ar­borgar á föstu­dag en í gær­morgun hafði það verið fjar­lægt að beiðni bæj­ar­stjór­ans. „Hvað veldur því að bæj­ar­stjóri fyr­ir­skipar að verk sé tekið niður á sunnu­degi með skyndi, utan opn­un­ar­tíma safns­ins, er enn ósvarað,“ segja þau um málið en sam­kvæmt bæj­ar­yf­ir­völdum lágu ekki til­skilin leyfi fyrir upp­setn­ingu verks­ins.

Náðu sér sjálf í leyfi

Þau segj­ast hafa fengið munn­legt leyfi til að setja verkið upp frá sviðs­stjóra umhverfis- og skipu­lags­sviðs og umsjón­ar­manni fast­eigna bæj­ar­ins. Það hafi hins vegar ekki gengið þrauta­laust fyrir sig því upp­haf­lega fór for­stöðu­maður Hafn­ar­borgar form­lega leið að leyf­is­veit­ingu. For­stöðu­mað­ur­inn sendi inn fyr­ir­spurn til að athuga hvort ekki mætti setja upp verk á gafl Hafn­ar­borgar á síð­asta ári. „Málið var þæft, það feng­ust ekki skýr svör,“ segja þau.

Þau Ólafur og Libia ákváðu í kjöl­farið að afla leyf­is­ins sjálf. Það hafi loks feng­ist á fimmtu­dag þegar munn­legt leyfi fékkst. Þau segj­ast enn ekki vita hvar og hvers vegna upp­haf­leg fyr­ir­spurn safn­stjór­ans strand­aði.

„Við höfum aldrei fengið skrif­leg svör um af hverju þetta var ekki hægt. Við fengum ein­hver óljós svör, það var til dæmis reynt að bera því við að þetta væri kostn­að­ar­samt en það kostar ekk­ert að bora tíu göt og svo er bara fyllt í með múr aftur og málið afgreitt.“

Tilkynnti um þjófnað á verkinu

Libia og Ólafur segja að ekk­ert sam­ráð hafi verið haft við lista­menn­ina eða Hafn­ar­borg áður en verkið var fjar­lægt. Þau hafi fengið sím­tal í gær­morgun þar sem þeim var tjáð að bæj­ar­stjóri hefði óskað eftir því við sviðs­stjóra menn­ing­ar­mála að verkið yrði tekið niður. Að sögn þeirra hafi for­stöðu­maður Hafn­ar­borgar and­mælt því að verkið yrði fjar­lægt með þessum hætti og óskaði for­stöðu­mað­ur­inn eftir því að beðið yrði fram á mánu­dag til að hægt væri að ræða málið. Þegar Libia og Ólafur mæta svo í Hafn­ar­borg um hádeg­is­bil hafi verkið verið horfið.

„Þess vegna hringdi ég í lög­reglu og til­kynnti að það væri búið að fjar­lægja lista­verk okkar af sýn­ing­unni af gafli Hafn­ar­borgar, þannig að ég var í raun og veru að til­kynna þjófnað. Ég sagði líka að við hefðum rök­studdan grun um að bæj­ar­yf­ir­völd hefðu látið fjar­lægja verkið og væri því lík­lega með það,“ segir Ólafur.

Hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ eru menn­ingar- og mark­aðs­mál sem og starf­semi menn­ing­ar­stofn­ana á könnu þjón­ustu- og þró­un­ar­sviðs. Í sam­tali við Kjarnann segir Sigurjón Ólafsson, sviðs­stjóri á þjón­ustu og þró­un­ar­sviði, að yfir­völd í Hafn­ar­firði ætli ekki að tjá sig um málið. „Rósa er búin að tjá sig um þetta mál við Vísi svo ég hef í sjálfu sér ekk­ert við þetta að bæta. Það voru ekki til­skilin leyfi að okkar mati og við erum að skoða þetta,“ segir Sigurjón. Í frétt Vísis sem Sigurjón vísar í var haft eftir Rósu Guð­bjarts­dóttur, bæj­ar­stjóra Hafn­ar­fjarðar, að til­skilin leyfi hefðu ekki verið til staðar og að hún vildi ekki tjá sig nánar um málið.

Verkið hluti af verðlaunagjörningi

Verkið sem um ræðir er nákvæm upp­stækkun á einum af mið­unum sem voru fylltir út af þátt­tak­endum þjóð­fund­ar­ins sem hald­inn var árið 2010. „Þessi þátt­tak­andi hafði skrifað á mið­ann: „Ekki kjafta ykkur frá nið­ur­stöðum stjórn­laga­þings.” Þetta eru skila­boðin á mið­anum og þetta er verkið sem er fjar­lægt,“ segir Ólafur.

Verkið er hluti af stærra verk­efni Libiu og Ólafs, gjörn­ingnum Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri stjórn­ar­skrá fyrir lýð­veldið Ísland. Gjörn­ing­ur­inn fór fram í Hafn­ar­húsi Lista­safns Reykja­víkur og á götum úti við Stjórn­ar­ráðið og Alþingi þann 3. októ­ber síð­ast­lið­inn. Fyrir gjörn­ing­inn hlutu Libia og Ólafur íslensku mynd­list­ar­verð­launin.

Nú stendur yfir sýn­ingin Töfra­fundur – ára­tug síðar í Hafn­ar­borg þar nýja stjórn­ar­skráin er í for­grunni. Í texta á heima­síðu safns­ins segir um sýn­ing­una: „Þessi sýn­ing er næsti kafl­inn í starfi lista­mann­anna, sem ein­kenn­ist af félags­legri virkni og inn­gripi, þar sem þau kanna tengslin á milli listar og aktí­visma, auk þess sem þau vinna með kynngi list­ar­innar og mögu­legan kraft hennar til að stuðla að sam­fé­lags­legum breyt­ingum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár