Ný tegund styrkja borin á borð fyrir íslenska kvikmyndagerðarmenn

Fram­leið­endur íslenskra sjón­varps­þáttar­aða munu brátt geta sótt um sér­staka loka­fjár­mögn­un­ar­styrki í Kvik­mynda­sjóð. Um er að ræða opin­bera styrki sem verða end­ur­heimtir ef fram­leiðslu­verk­efnið gengur vel á erlendum mörk­uðum.

Framleiðendur íslenskra sjónvarpsþáttaraða munu senn geta sótt um sérstaka lokafjármögnunarstyrki fyrir verkefni sín.
Fram­leið­endur íslenskra sjón­varps­þáttar­aða munu senn geta sótt um sér­staka loka­fjár­mögn­un­ar­styrki fyrir verk­efni sín. Mynd: Skjáskot/RÚV

Fram­leið­endur íslenskra sjón­varps­þáttar­aða munu, ef laga­frum­varp og ný reglu­gerð frá ráð­herra menn­ing­ar­mála ná fram að ganga, geta sótt um sér­staka fram­leiðslu­styrki til loka­fjár­mögn­unar, sem eiga að geta numið allt að 200 millj­ónum króna fyrir hverja þátta­röð – en þó að hámarki 25 pró­sentum af heild­ar­fram­leiðslu­kostn­aði verk­efn­is­ins.

Þessir styrkir, sem Lilja Alfreðs­dóttir ráð­herra kynnir í drögum að breyt­ingum á kvik­mynda­lögum og reglu­gerð um Kvik­mynda­sjóð, sem kynnt voru á sam­ráðs­gátt stjórn­valda fyrir helgi, yrðu hrein við­bót við þá fram­leiðslu­styrki sem Kvik­mynda­sjóður veitir nú þegar.

Loka­fjár­mögn­un­ar­styrkirnir eru frá­brugðnir fram­leiðslu­styrkjum sem Kvik­mynda­sjóður veitir í dag að því leyti að ef sjóð­ur­inn veitir slíka styrki til verk­efna fær sjóð­ur­inn rétt á því hluta þeirra tekna sem sjón­varps­þátta­röðin halar inn á heims­vísu.

Ekki er heim­ild í lögum fyrir þessu styrkja­fyr­ir­komu­lagi í dag og því þarf að breyta kvik­mynda­lög­unum, svo hin nýja reglu­gerð um styrk­ina geti tekið gildi.

Samkvæmt því sem fram kemur í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum stendur ekki til að hækka fram­lög til Kvik­mynda­sjóðs vegna þess­arar nýju teg­undar styrkja, en sökum þess að gengið er út frá því að þeir end­ur­heimt­ist er þó búist við því að heild­ar­summan sem Kvik­mynda­sjóður geti úthlutað verði stærri en áður.

Einungis fyrir söluvænlegt efni

Sér­stakir loka­fjár­mögn­un­ar­styrkir fyrir sjón­varps­þátt­araðir eru bundnir all­nokkrum skil­yrðum.

Samkvæmt því sem segir í reglu­gerð­ar­drög­unum verður ein­ungis heim­ilt að veita þeim til leik­inna sjón­varps­þáttar­aða „sem höfða til breiðs hóps áhorf­enda, eru á íslensku eða hafa aðra íslenska menn­ing­ar­lega og sam­fé­lags­lega skírskotun og stuðla að efl­ingu íslenskrar kvik­mynda­gerðar“.

Verk­efnin sem styrkt verða eiga auk þess að hafa „mikla mark­aðs- og dreif­ing­ar­mögu­leika“ og það þarf að vera búið að selja verk­efnið til að minnsta kosti tveggja fjöl­miðla­veitna á ólíkum mark­aðs­svæðum.

[adspot]

Styrk­hæfar þátt­araðir þurfa að vera að lág­marki 150 mín­útur í sýn­ingu og hver þáttur að lág­marki 25 mín­útur að lengd. Að hámarki mega þætt­irnir þó vera 12 í hverri þátta­röð og 600 mín­útur í sýn­ingu í heild sinni. Sjón­varps­myndum má ekki skipta upp í hluta til þess að mæta skil­yrðum reglu­gerð­ar­innar um fjölda þátta.

Samkvæmt drög­unum að reglu­gerð­inni verður ein­ungis heim­ilt að styrkja fyrstu og aðra þátta­röð í fram­leiðslu. Þó eru und­an­teknir frá þeirri reglu, en ef að end­ur­heimt styrks sem veittur er vegna þáttar­aðar númer tvö er hafin, má Kvik­mynda­sjóður styrkja gerð þáttar­aðar númer þrjú.

Ætlað að mæta nýjum tímum

Þetta nýja styrkja­fyr­ir­komu­lag er í sam­ræmi við fyr­ir­ætl­anir sem fólust í sér­stakri kvik­mynda­stefnu íslenska rík­is­ins fram til árið 2030. Í þeirri stefnu, sem kynnt var haustið 2020, sagði að styðja þyrfti við fram­leiðslu, sölu og dreif­ingu leik­inna þáttar­aða í anda þess sem ger­ist hjá Norræna kvik­mynda- og sjón­varps­sjóðnum.

Sá sjóður, sem hefur úthluta loka­fjár­mögn­un­ar­styrkjum til margra íslenskra kvik­mynda­verk­efna á und­an­förnum árum, styrkir fram­leiðslu í formi lána sem end­ur­greið­ast sam­kvæmt reglum sjóðs­ins.

Í sam­ráðs­gátt stjórn­valda segir að áhersla verði lögð á afgreiðslu umsókna um þessa nýju styrki verði verði hraðað eins og unnt er, og að styrkja­flokknum sé ætlað að „koma til móts við nýja tíma í kvik­mynda­gerð, sem ein­kenn­ast af hröðu þró­unar- og fjár­mögn­un­ar­ferli verk­efna“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár