Bæjarstjóri hafnar því að hafa gerst sek um ritskoðun þegar listaverk var fjarlægt

Full­trúar minni­hlut­ans í Hafn­ar­firðii segja fjar­læg­ingu lista­verks Libiu Castro og Ólafs Ólafs­sonar af gafli Hafn­ar­borgar síð­ast­lið­inn sunnu­dag „alvar­lega aðför að tján­ing­ar­frelsi“ og vilja að bæj­ar­yf­ir­völd biðji tvíeykið afsök­unar.

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og verk Libiu og Ólafs áður en það var tekið niður af gafli Hafnarborgar.
Rósa Guð­bjarts­dóttir, bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar, og verk Libiu og Ólafs áður en það var tekið niður af gafli Hafn­ar­borgar. Mynd: Samsett

Rósa Guð­bjarts­dóttir, bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar, hafnar því að um rit­skoðun hafi verið að ræða þegar lista­verk Libiu Castro og Ólafs Ólafs­sonar var fjar­lægt af gafli Hafn­ar­borgar síð­ast­lið­inn Sunnudag. Þetta kemur fram í bókun sem Rósa lagði fram á bæj­ar­ráðs­fundi í gær. Þar sagð­ist hún hafa verið með­vit­aða um upp­setn­ingu sýn­ing­ar­innar Töfra­fundur – ára­tug síðar og fylgst með áhuga í kringum sýn­ing­una. „Því er algjör­lega vísað á bug að þótt verk af sýn­ing­unni sem sett var upp í leyf­is­leysi á hús bæj­ar­ins hafi verið tekið niður sé um rit­skoðun að ræða.“

[links]Lista­verk Libiu og Ólafs var sett upp á gafl Hafn­ar­borgar síð­ast­lið­inn föstu­dag eftir að lista­menn­irnir höfðu að eigin sögn útvegað sér munn­legs leyfis fyrir upp­setn­ingu verks­ins. Tveimur dögum síðar var verkið tekið niður og því borið við að leyfi fyrir upp­setn­ingu hafi skort. Lista­verkið sem um ræðir er nákvæm upp­stækkun á einum af mið­unum sem voru fylltir út af þátt­tak­endum þjóð­fund­ar­ins sem hald­inn var árið 2010 í aðdrag­anda þess að Stjórn­laga­ráð (áður nefnt Stjórn­laga­þing) tók til starfa. Á þessum miða hafði verið skrifað „Ekki kjafta ykkur frá nið­ur­stöðum Stjórn­laga­þings.“

Ólíkar tillögur á bæjarráðsfundi

Í umfjölun um málið á bæj­ar­ráðs­fundi lögðu full­trúar Sam­fylk­ingar og Við­reisnar fram til­lögu þess efnis að verkið skyldi sett upp eigi síðar en föstu­dag­inn 7. maí, þ.e. í dag, og að Libia og Ólafur yrðu beðin afsök­unar á því að verkið hefði verið fjar­lægt án sam­ráðs við þau. Sú til­laga var felld með atkvæðum meiri­hluta gegn minni­hluta en full­trúi Mið­flokks sat hjá.

Meiri­hlut­inn lagði í kjöl­farið fram svohljóð­andi til­lögu: „Bæjarráð leggur til að sótt verði um til­skilin leyfi til bygg­ing­ar­full­trúa um að umræddu verki verði komið upp frístand­andi fyrir utan húsið og verði stað­sett á þann hátt að merki Hafn­ar­borgar verði sýni­legt. Umhverfis- og fram­kvæmda­sviði verði falið að útfæra upp­setn­ing­una í sam­ráði við lista­menn­ina og for­stöðu­mann Hafn­ar­borgar.“

Sú til­laga var sam­þykkt með atkvæðum Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sóknar og Mið­flokks en full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar sat hjá.

Í kjöl­farið lagði Rósa fram áður­nefnda bókun en í henni segir að Rósa hafi lagt fram til­lögu að mála­miðlun milli bæj­ar­ins og lista­mann­anna. Í bók­un­inni segir enn fremur að til­skilin leyfi hafi vantað fyrir upp­setn­ingu verks­ins. Þegar óskað er eftir því að sett sé upp skilti, mynd­verk eða annað á eða við hús­næði í eigu bæj­ar­ins þurfi slíkt erindi að fara í form­legt ferli. „Þar gengur það sama yfir alla sem áhuga hafa á slíku. Ekkert slíkt liggur fyrir í þessu máli.“

Verkið hafi verið sett upp í leyf­is­leysi og því hafnar Rósa að um rit­skoðun hafi verið að ræða. Í bók­un­inni segir að fullur skiln­ingur sé á því að sýn­ing af þessu tagi geti teygt sig út fyrir inn­an­húss­rými sýn­ing­ar­innar. Þar af leið­andi var lagt til að sótt verði um leyfi til bygg­ing­ar­full­trúa um að verk­inu verði komið upp frístandi fyrir utan safnið líkt og áður segir.

Rósa tjáir sig ekki um málið

Kjarninn hafði sam­band við Rósu til að fal­ast eftir frek­ari útskýr­ingu á aðdrag­anda þess að verkið var tekið niður. Í sam­tali við Kjarnann vís­aði Rósa til bók­un­ar­innar sem hún lagði fram á bæj­ar­ráðs­fundi. „Ég hef í raun­inni ekk­ert annað um málið að segja. Þar rek ég málið og fer yfir það,“ sagði Rósa. „Það kemur allt fram þar sem þarf að koma fram.“

Rósa er einn þriggja stjórn­ar­manna í stjórn Hafn­ar­borgar. Spurð að því hvort fjar­læg­ing bæj­ar­yf­ir­valda á verk­inu hafi ekki verið óþarf­lega mikið inn­grip í starf­semi safns­ins end­ur­tók Rósa fyrri svör, hún hefði ekk­ert um málið að segja umfram það sem fram kom í bókun hennar og til­lögu meiri­hlut­ans.

„Alvarleg aðför að tjáningarfrelsi“

Um málið voru tvær bók­anir lagðar fram til við­bótar. Sú fyrri af Guðlugu Svölu Krist­ó­fers­dóttur, full­trúa Bæj­ar­list­ans. Í bókun sinni sagð­ist hún gelda var­hug „við því að kjörnir full­trúar hafi afskipti af list­rænni stjórn menn­ing­ar­stofn­ana bæj­ar­ins og þar með frjálsri tján­ingu lista­fólks á vett­vangi þeirra.“ Inngrip bæj­ar­stjóra hefðu í raun styrkt skili­aboð sýn­ing­ar­innar, að mati Guð­laugar.

Full­trúar Sam­fylk­ingar og Við­reisnar, þau Adda María Jóhanns­dóttir og Jón Ingi Hákon­ar­son, tóku í sama streng í sinni bókun og gerðu alvar­legar athuga­semdir við það sem þau köll­uðu rit­skoðun bæj­ar­stjór­ans. Ekkert hafi verið lagt fram sem sýnir að leyfi hafi vantað. „Það að til­skilin leyfi hafi vantað er ekki á rökum byggt enda hafa engin gögn verið lögð fram því til stað­fest­ingar. Það er sorg­legt, og með öllu óásætt­an­legt að bæj­ar­stjóri blandi sér með þessum hætti í list­t­ján­ingu og hlýtur að telj­ast alvar­leg aðför að tján­ing­ar­frelsi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár