Eftirlitsstofnun EFTA samþykkir 400 milljóna ríkisaðstoð til Hörpu vegna COVID-19

ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, hefur lagt blessun sína yfir 400 millj­óna króna stuðn­ing við rekstur tón­listar- og ráð­stefnu­húss­ins Hörpu frá eig­end­unum, íslenska rík­inu og Reykja­vík­ur­borg.

Áætlað COVID-tjón Hörpu nemur 466 milljónum króna.
Áætlað COVID-tjón Hörpu nemur 466 millj­ónum króna. Mynd: Bára Huld Beck

Í bréfi sem ESA sendi fjár­mála­ráðu­neyt­inu um ákvörðun sína í dag segir að stuðn­ing­ur­inn, sem skipt­ist hlut­falls­lega á milli ríkis og borgar í sam­ræmi við eign­ar­hlut hvors aðila í Hörpu (54 og 46 pró­sent), sé rík­is­að­stoð sem rúmist innan marka EES samn­ings­ins. ESA mót­mæli því ekki til­hög­un­inni.

Í bréfi eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar segir að íslensk stjórn­völd hafi sagt frá því að COVID-far­ald­ur­inn hafi haft lam­andi áhrif á við­burða­starf­semi á Íslandi, engir stórir við­burðir hafi í raun verið haldnir í land­inu frá því í mars. Fjar­fundir hafi leyst ráð­stefnur af hólmi, á meðan glíman við veiruna stóð yfir.

Íslensk stjórn­völd fóru yfir áhrifin af þessu á starf­semi Hörpu. Í fyrra voru þar 721 tón­leikar og aðrir menn­ing­ar­við­burðir, en í ár er gert ráð fyrir að slíkir við­burðir verði ein­ungis 329 tals­ins. Í fyrra voru 411 ráð­stefnur í hús­inu, en í ár hafa þær ein­ungis verið 137. Aðrir við­burðir í fyrra voru 200 tals­ins, en í ár bara 41.

COVID-tjón Hörpu áætlað 466 milljónir króna

Áhrifin á tekju­streymi tón­listar- og ráð­stefnu­húss­ins, sem rekið er sem opin­bert hluta­fé­lag, hafa verið mikil og fyr­ir­séð er að þau haldi áfram fram á næsta ári.

Samkvæmt útreikn­ingum íslenskra yfir­valda er reiknað með að tjón Hörpu vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins nemi 328,7 millj­ónum króna og búist er við að tjón á fyrstu sex mán­uðum næsta árs nemi 137,3 millj­ónum.

[adspot]

Samtals eru ríkið og Reykja­vík­ur­borg því að bæta Hörpu upp tjón sem nemur 85,8 pró­sentum af ætl­uðu 466 millj­óna króna tjóni. ESA veitir eig­endum húss­ins heim­ild til þess að bæta tjón Hörpu að fullu með fjár­fram­lögum úr opin­berum sjóðum ríkis og borgar.

Samkvæmt bréfi ESA skuld­binda stjórn­völd sig til þess að skila skýrslu fyrir árs­lok 2021 til eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar, þar sem fram kemur nákvæm­lega hversu mikið tjón Harpa hafi fengið bætt. Einnig segj­ast stjórn­völd ætla að tryggja að Harpa fái ekki stuðn­ing umfram það rauntjón sem orðið hefur vegna áhrifa far­ald­urs­ins.

Á annan tug milljarða frá ríki og borg til Hörpu frá 2011

Þessi fram­lög rík­is­ins og borg­ar­innar til að bæta upp COVID-tjónið bæt­ast ofan á önnur fram­lög til rekstrar húss­ins. Kjarninn sagði frá því í sumar að eig­endur Hörpu hefðu sam­an­lagt lagt 1,6 millj­arða króna til húss­ins á árinu 2019. Þá er bæði verið að tala um afborg­anir af lánum vegna bygg­ing­ar­kostn­aðar og bein rekstr­ar­fram­lög til að mæta tap­rekstri.[links]

Bein rekstr­ar­fram­lög frá eig­endum höfðu þá sam­tals numið rúm­lega 2,1 millj­arði króna frá árinu 2011. Þar af hafði ríkið lagt til rúman 1,1 millj­arð króna en borgin 974 millj­ónir króna. Borgin hefur fengið um 1,9 millj­arð króna af heild­ar­fram­lagi sínu til baka vegna álagðra fast­eigna­skatta á Hörpu.

Stóð ekki til að leggja meira fé í reksturinn

Íslenska ríkið og Reykja­vík­­­­­ur­­­borg sam­­­þykktu að taka yfir og klára bygg­ingu Hörpu snemma árs 2009. Þá höfðu fram­­­kvæmdir við bygg­ingu hús­s­ins, sem Eign­­­ar­halds­­­­­fé­lag­ið Portu­s stóð fyr­ir, stöðvast í kjöl­far banka­hruns­ins. Ástæðan var sú Portu­s og dótt­­­ur­­­fé­lög þess, sem voru í eigu Lands­­­banka Íslands og Nýs­is, fóru í þrot.

Eftir yfir­­­­­töku ríkis og borgar á verk­efn­inu, sem var gerð þegar Katrín Jak­obs­dótt­ir, nú for­sæt­is­ráð­herra, var mennta­­­mála­ráð­herra og Hanna Birna Krist­jáns­dóttir borg­­­ar­­­stjóri í Reykja­vík, var tekið sam­­­banka­lán hjá íslensku bönk­­­unum til að fjár­­­­­magna yfir­­­tök­una. Í skrif­­­legu svari Katrínar við fyr­ir­­­spurn þing­­­manns­ins Marðar Árna­­­sonar um Hörpu, sem birt var í mars 2011, kom mjög skýrt fram að ekki ætti að setja meira fé en þar var umsamið í Hörpu.

Þar sagði orð­rétt að „for­­­sendur fyrir yfir­­­­­töku verk­efn­is­ins voru þær að ekki þyrftu að koma til önnur fram­lög frá ríki og borg en gert var ráð fyrir í samn­ing­i Aust­­ur­hafn­­ar-TR og Portus­ar frá 9. mars 2006". En síðan þá hefur afkoma rekstr­ar­reikn­ings Hörpu oft­ast verið nei­kvæð.

Þórður Sverr­is­­son, þá frá­­far­andi stjórn­­­ar­­for­­maður Hörpu, sagði á árs­fundi Hörpu í fyrra að tapið skýr­ð­ist af því fyr­ir­komu­lagi að skulda­bréfa­lán til 35 ára, sem tekið var til að fjár­­­magna bygg­ingu hús­s­ins, væri vistað í dótt­­ur­­fé­lag­i ­fyr­ir­tæk­is­ins.

„Það er morg­un­­ljóst að þetta rekstr­­ar­­módel Hörpu hefur aldrei verið og getur aldrei orðið sjálf­­bært. Því verður að breyta til að ná að skapa Hörpu­­ ohf, sem hluta­­fé­lagi eðli­­legan rekstr­­ar­grund­­völl til fram­­tíðar þannig að það nái að starfa sem sjálf­­bært fyr­ir­tæki og geti gegnt sínu mik­il­væga hlut­verki,“ sagði Þórður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár