Ríki og borg samtals búin að leggja Hörpu til 12,5 milljarða króna

Eigendur Hörpu, sem eru ann­ars vegar íslenska ríkið og hins vegar Reykja­vík­ur­borg, lögðu 1,6 millj­arða króna til húss­ins í fyrra.

Hapa
Hapa Mynd: Bára Huld Beck

Alls hefur tón­listar- og ráð­stefnu­húsið Harpa kostað íslenska ríkið og Reykja­vík­ur­borg 12,5 millj­arða króna í fram­lög frá því að húsið var opnað 2011 og út síð­asta ár. Sú tala miðar við fast verð­lag. Rek­star­fram­lag náði hámarki í fyrra ef horft er á fram­lag á verð­lagi hvers árs, þegar íslenska ríkið lagði 877 millj­ónir króna til rekst­urs­ins en borgin 747 millj­ónir króna. Um er að ræða bæði fram­lag til end­ur­greiðslu lána vegna bygg­ing­ar­kostn­aðar og beint rekstr­ar­fram­lag. Þegar horft er á fram­lög á föstu verð­lagi, og miðað við verð­lag í jan­úar 2020, var árið 2017 metár í fram­lögum, en ekki munar miklu á því fram­lagi og greiðsl­unum í fyrra.

Alls hefur ríkið greitt 5,6 millj­arða króna í fram­lag vegna end­ur­greiðslu láns vegna bygg­ing­ar­kostn­aðar á umræddu tíma­bili og Reykja­vík­ur­borg tæp­lega 4,8 millj­arða króna. Beint rekstr­ar­fram­lag, til að mæta miklum tap­rekstri Hörpu, hefur sam­tals numið rúm­lega 2,1 millj­arði króna frá 2011. Þar af hefur ríkið lagt til rúman 1,1 millj­arð króna en borgin 974 millj­ónir króna. Borgin hefur fengið um 1,9 millj­arð króna af heild­ar­fram­lagi sínu til baka vegna álagðra fast­eigna­skatta á Hörpu.

[adspot]Stað­virtur heild­ar­kostn­aður við bygg­ingu Hörpu án lóðar, miðað við bygg­ing­ar­vísi­tölu í jan­úar 2020, er um 24,9 millj­arðar króna en með lóð um 26,6 millj­arðar króna.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Bergþórs Ólasonar, þing­manns Mið­flokks­ins, um málið sem birt var í gær.

Átti ekki að setja meira fé í reksturinn

Íslenska ríkið og Reykja­vík­­­ur­­borg sam­­þykktu að taka yfir og klára bygg­ingu Hörpu snemma árs 2009. Þá höfðu fram­­kvæmdir við bygg­ingu hús­s­ins, sem Eign­­ar­halds­­­fé­lag­ið Portus stóð fyr­ir, stöðvast í kjöl­far banka­hruns­ins. Ástæðan var sú Portus og dótt­­ur­­fé­lög þess, sem voru í eigu Lands­­banka Íslands og Nýsis, fóru í þrot.

Eftir yfir­­­töku ríkis og borgar á verk­efn­inu, sem var gerð þegar Katrín Jak­obs­dóttir, nú for­sæt­is­ráð­herra, var mennta­­mála­ráð­herra og Hanna Birna Krist­jáns­dóttir borg­­ar­­stjóri í Reykja­vík, var tekið sam­­banka­lán hjá íslensku bönk­­unum til að fjár­­­magna yfir­­tök­una. Í skrif­­legu svari Katrínar við fyr­ir­­spurn þing­­manns­ins Marðar Árna­­sonar um Hörpu, sem birt var í mars 2011, kom mjög skýrt fram að ekki ætti að setja meira fé en þar var umsamið í Hörpu.

Þar sagði orð­rétt að „for­­sendur fyrir yfir­­­töku verk­efn­is­ins voru þær að ekki þyrftu að koma til önnur fram­lög frá ríki og borg en gert var ráð fyrir í samn­ingi Aust­ur­hafn­ar-TR og Portusar frá 9. mars 2006".

Tón­list­ar- og ráð­stefnu­húsið Harpan er nú í 54 pró­sent eigu rík­is­ins og 46 pró­sent í eigu Reykja­vík­ur­borg­ar.

Ekki sjálfbært rekstrarmódel

Harpa hefur ekki birt árs­reikn­ing fyrir árið 2019. Árið á undan, 2018, var afkoma rekstr­ar­reikn­ings­ Hörpu hins vegar var nei­kvæð um 461,5 millj­ónir króna og jókst mikið milli ára.

Þórður Sverr­is­son, þá frá­far­andi stjórn­ar­for­maður Hörpu, sagði í á árs­fundi Hörpu í fyrra að tapið skýr­ðist af því fyr­ir­komu­lagi að skulda­bréfa­lán til 35 ára, sem tekið var til að fjár­magna bygg­ingu húss­ins, væri vistað í dótt­ur­fé­lag­i ­fyr­ir­tæk­is­ins. „Það er morg­un­ljóst að þetta rekstr­ar­módel Hörpu hefur aldrei verið og getur aldrei orðið sjálf­bært. Því verður að breyta til að ná að skapa Hörpu­ ohf, sem hluta­fé­lagi eðli­legan rekstr­ar­grund­völl til fram­tíðar þannig að það nái að starfa sem sjálf­bært fyr­ir­tæki og geti gegnt sínu mik­il­væga hlut­verki.“

Núver­andi stjórn­ar­for­maður Hörpu er Ingi­björg Ösp Stef­áns­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár