Reykjavíkurborg innheimti 22 milljarða króna í fasteignaskatta í fyrra

Þrátt fyrir að íbúða­verð hafi hækkað umtals­vert í Reykja­vík í fyrra þá stóðu tekjur borg­ar­innar vegna fast­eigna­skatta nán­ast í stað. Ástæðan er meðal ann­ars frestur sem borgin gaf á greiðslu fast­eigna­skatta.

Meirihluti borgarstjórnar í Reykjavíkur samanstendur af Samfylkingu, Viðreisn, Pírötum og Vinstri grænum.
Meiri­hluti borg­ar­stjórnar í Reykja­víkur sam­anstendur af Sam­fylk­ingu, Viðreisn, Pírötum og Vinstri grænum. Mynd: Bára Huld Beck

Tekjur Reykja­vík­ur­borgar vegna inn­heimtra fast­eigna­skatta námu 22 millj­örðum króna í fyrra. Þær hækk­uðu alls um 813 millj­ónir króna á milli ára sem var 483 millj­ónum krónum minna en fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar hafði gert ráð fyrir. Alls er hækk­unin á tekju­stoð­inni 3,8 pró­sent.

Þetta kemur fram í skýrslu fjár­mála- og áhættu­stýr­inga­sviðs Reykja­vík­ur­borgar sem fylgdi með árs­reikn­ingi hennar.

Það þarf að leita langt aftur til að finna jafn litla hækkun á inn­heimtum fast­eigna­sköttum og á síð­asta ár, en tekju­stofn­inn hækk­aði um 2,9 millj­arða króna milli 2018 og 2019 og um þrjá millj­arða króna milli 2017 og 2018.

Það var 2,9 millj­örðum krónum meira en borgin inn­heimti í slíka skatta árið áður og 5,9 millj­örðum krónum meira en árið 2017, þegar tekjur hennar vegna þeirra námu námu 15,1 millj­arði króna.

Miklar hækkanir á fasteignaverði skýra auknar tekjur

Sveit­­ar­­fé­lög lands­ins eru með tvo meg­in­­tekju­­stofna. Ann­­ars vegar rukka þau útsvar, sem er beinn skattur á tekjur sem rennur til þess sveit­­ar­­fé­lags sem við­kom­andi býr í. Hins vegar rukka þau fast­­eigna­skatt.

Slík gjöld eru aðal­­­lega tvenns kon­­ar. Ann­­ars vegar er fast­­eigna­skattur og hins vegar lóð­­ar­­leiga. Auk þess þurfa íbúar að greiða sorp­­hirð­u­­gjald og gjald vegna end­­ur­vinnslu­­stöðva sem hluta af fast­­eigna­­gjöldum sín­­um.

Tekjur Reykja­vík­ur­borgar vegna fast­eigna­skatta næstum tvö­föld­uð­ust frá árinu 2013 og fram til loka árs 2019, en á tíma­bil­inu fóru þær úr 11,6 millj­örðum króna í 21,1 millj­arð króna.

[adspot]Ástæðan er sú að fast­eigna­verð í höf­uð­borg­inni hækk­aði mikið á umræddu tíma­bili. Á íbúð­ar­hús­næði hækk­aði það til að mynda um 81 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Frá byrjuð árs í fyrra hefur íbúða­verð áfram hækkað stöðugt á svæð­inu, eða alls um 12,7 pró­sent.

Fast­eigna­skattur á íbúð­ar­hús­næði var lækk­aður um tíu pró­sent á árinu 2017 úr 0,20 í 0,18 pró­sent. Þannig er hann enn. Auk þess voru afslættir aldr­aðra og öryrkja af slíkum gjöldum aukn­ir.

Á meðal þeirra aðgerða til að bregð­ast við þeirri stöðu sem upp er komin vegna efna­hags­legra áhrifa útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum, og borg­ar­ráð sam­þykkti í lok mars 2020, var frestur á greiðslu allt að þriggja gjald­daga fast­­eigna­skatta á árinu 2020. Það úrræði hefur áhrif á tekjur vegna fast­eigna­skatta í fyrra.

Þótt borg­ar­ráð hafi á sama tíma ákveðið að flýta áformum sínum um að lækka fast­eigna­skatta á atvinnu­hús­næði úr 1,65 í 1,60 pró­sent þá tók sú breyt­ing ekki gildi fyrr en um síð­ustu ára­mót.

Tæplega sex milljarða tap á A-hlutanum

Árs­reikn­ingur Reykja­vík­ur­borgar var lagður fyrir borg­ar­ráð á fimmtu­dag. Þar kom fram að sá hluti rekstrar hennar sem fjár­magn­aður er með skatt­tekjum, svo­kall­aður A-hluti, skil­aði 5,8 millj­arða króna tapi í fyrra.

Áætlun hafði gert ráð fyrir því að afkoma af rekstri hans yrði jákvæð um 1,5 millj­arða króna. Því var afkoma A-hlut­ans 7,3 millj­örðum króna undir áætlun.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands vegna þessa sagði að rekstr­ar­nið­ur­staða A-hlut­ans skýrist einkum af áhrifum heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Sala bygg­ing­ar­réttar var ofá­ætluð um 3,2 millj­arða króna, skatt­tekjur voru 2,7 millj­örðum króna undir áætlun, launa­kostn­aður var 1,7 millj­arði króna yfir áætlun og annar ósund­ur­lið­aður rekstr­ar­kostn­aður var tæp­lega 1,2 millj­örðum króna yfir áætlun.

[links]Hinn hlut­inn í rekstri borg­ar­innar, B-hlut­inn, nær yfir afkomu þeirra fyr­ir­tækja sem borgin á að öllu leyti eða að hluta. Fyr­ir­tækin sem telj­ast til B-hlut­ans eru Orku­veita Reykja­vík­ur, Faxa­flóa­hafnir sf., Félags­bú­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði hf., Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Afl­vaka hf og Þjóð­ar­leik­vangs ehf.

Rekstur þess hluta var líka tölu­vert undir áætlun í fyrra, en hann var þó jákvæður um alls þrjá millj­arða króna. Sömu skýr­ingar eru gefnar á þeirri stöðu, áhrif far­ald­urs­ins höfðu nei­kvæð áhrif á til dæmis tekjur Faxa­flóa­hafna, Strætó bs og Sorpu. Þá hafði veik­ing krón­unnar umtals­verð áhrif á erlend lán Orku­veitu.

Sam­an­lagt nam því tap A- og B-hluta Reykja­vík­ur­borgar alls 2,8 millj­örðum króna í fyrra. Áætlun hafði gert ráð fyrir hagn­aði upp á 11,9 millj­arða króna. Því nemur við­snún­ing­ur­inn frá áætlun að veru­leika alls 14,7 millj­örðum króna.

Eignir sam­stæð­unnar voru metnar á 730,4 millj­arða króna í lok síð­ast árs og hækk­uðu um 41,5 millj­arða króna í fyrra. Skuldir hækk­uðu að sama skapi um 40,9 millj­arða króna og stóðu í 385,8 millj­örðum króna um ára­mót. Eig­in­fjár­hlut­fall Reykja­vík­ur­borgar er nú 47,2 pró­sent en var 49,9 pró­sent í lok árs 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár