Orku náttúrunnar gert að slökkva á 156 götuhleðslum í Reykjavík

Straumur verður rof­inn af öllum götu­hleðslum ON í Reykja­vík frá og með mánu­deg­inum 28. júní næst­kom­andi. Óvíst er hvenær hægt verður að hleypa straumi á þær að nýju.

Straumur verður rof­inn af öllum götu­hleðslum Orku nátt­úr­unnar (ON) í Reykja­vík frá og með mánu­deg­inum 28. júní næst­kom­andi. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu í dag.

Í henni segir að fyr­ir­tækið sjái sig knúið til þess að taka straum­inn af þeim 156 götu­hleðslum sem fyr­ir­tækið hefur sett upp víðs­vegar í Reykja­vík. Það sé gert í kjöl­far þess að Ísorka kvart­aði yfir því að hleðsl­urnar væru opnar hverjum sem er gjald­frjálst. Óvíst er, sam­kvæmt ON, hvenær hægt verður að hleypa straumi á þær að nýju. Við­skipta­vinum ON er bent á að hrað­hleðslur þeirra verða enn opnar sem og götu­hleðslur í Garðabæ.

[adspot]

Berglind Rán Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stýra ON, segir þetta vera ömur­lega stöðu, bæði fyrir þau sem byggt hafa upp þessar götu­hleðslur en ekki síður fyrir raf­bíla­eig­endur.

„Þetta er fyrst og fremst að koma niður á þeim fjöl­mörgu raf­bíla­eig­endum sem geta ekki haft eigin bíla­stæði við heim­ili sín til að setja upp heima­hleðslur eða hafa ein­fald­lega ekki efni á því. Það er ein­læg ósk mín að aðilar deilu Reykja­vík­ur­borgar og Ísorku komi málum svo skjótt sem unnt er í far­veg sem tryggir að deilan tefji ekki það mik­il­væga verk­efni sem orku­skiptin í sam­göngum er,“ segir hún í til­kynn­ing­unni.

Sigurður Ást­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Ísorku, sendi frá sér yfir­lýs­ingu síð­degis í dag þar sem því er hafnað að fyr­ir­tækið hafi lagt fram kvörtun eða kröfu um að slökkt yrði á hleðslu­stöðv­unum. „Ísorka lagði fram kvörtun til kæru­nefndar útboð­mála 2020. Samhliða rann­sókn þeirrar kæru ákvað RVK að krefja ON um að setja stöðv­arnar upp vit­andi að málið var í rann­sókn. Kæru­nefndir ógildi samn­ing­inn og sektaði Reykja­vík­ur­borg. Reykja­vík­ur­borg er sú sem er rót vand­ans. ON setti stöðv­arnar upp að beiðni Reykja­vík­ur­borgar. Ég harma að Ísorka sé gerð ábyrgð fyrir afleið­ingum á brotum og ákvörðun Reykja­vík­ur­borgar. Ísorku er það alveg að meina­lausu að stöðv­arnar standi og hlaði bíla raf­bíla­eig­enda þar til Reykja­vík­ur­borg býður út að nýju.“

Reykjavíkurborg hefði átt að bjóða verkið út á Evrópska efnahagssvæðinu

Forsaga máls­ins er rakin í til­kynn­ingu ON en Reykja­vík­ur­borg bauð út upp­setn­ingu og rekstur götu­hleðsla og tók til­boði frá ON sem bauð lægst í verk­efnið. Úrskurð­ar­nefnd útboðs­mála komst síðan að þeirri nið­ur­stöðu eftir kæru Ísorku að Reykja­vík­ur­borg hefði átt að bjóða verkið út á Evrópska efna­hags­svæð­inu. Ekki hafi verið tekið undir önnur sjón­ar­mið Ísorku.

„Samkvæmt nið­ur­stöðu úrskurð­ar­nefndar er ON hvorki heim­ilt að taka gjald fyrir afnot af götu­hleðsl­unum né að sér­merkja bíla­stæðin sem þær standa við. Í stað þess að slökkva á hleðsl­unum og þannig gera raf­bíla­eig­endum sem treysta á umræddar hleðslur erfitt fyrir ákvað ON að hætta að rukka og taka niður merk­ingar við stæðin. Hleðslur yrðu þá aðgengi­legar öllum á meðan næstu skref væru metin. Þannig hlítti ON nið­ur­stöð­unni en styddi áfram það mik­il­væga verk­efni sem orku­skiptin í sam­göngum er,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Ísorka hefur nú aftur sent kvörtun til kæru­nefnd­ar­innar, nú vegna þess hvernig ON hefur brugð­ist við þeirri nið­ur­stöðu hennar að Reykja­vík­ur­borg hefði átt að bjóða út á evr­ópska efna­hags­svæð­inu.

Borgin telur nauðsynlegt að óska eftir því að ON rjúfi strauminn

Í bréfi sem barst ON frá Reykja­vík­ur­borg í morgun segir að vegna athuga­semda Ísorku telji borgin nauð­syn­legt að óska eftir því að ON rjúfi straum til umræddra hleðslu­stöðva. Þá segir einnig að Reykja­vík­ur­borg hafi farið þess á leit við kæru­nefnd útboðs­mála að rétt­ar­á­hrifum úrskurð­ar­ins verði frestað. „Á meðan kæru­nefnd tekur afstöðu til þeirrar beiðni er ráð­legt að ekki sé aðgengi að raf­orku á umræddum hleðslu­stöðvum,“ segir í bréfi Reykja­vík­ur­borgar til ON.

ON tekur það sér­stak­lega fram í til­kynn­ing­unni að fyr­ir­tækið hafi ekki mark­aðs­ráð­andi stöðu og telur sig því ekki skylt að rukka fyrir götu­hleðsl­urnar. Bendir fyr­ir­tækið á að bæði Ísorka og Orku­salan séu með hleðslu­staura víða um borg þar sem raf­magn er gefið.

Þetta „mun leiða til mikilla óþæginda fyrir íbúa borgarinnar“

Reykja­vík­ur­borg hefur einnig sent frá sér til­kynn­ingu um málið en borgin hefur, eins og áður segir, farið fram á frestun rétt­ar­á­hrifa úrskurðar kæru­nefndar útboðs­mála frá 11. júní sem kveður á um óvirkni samn­ings Reykja­vík­ur­borgar við ON um upp­setn­ingu og rekstur á hleðslu­stöðvum frá úrskurð­ar­degi.

„Upp­setn­ing hleðslu­stöðva og bætt aðgengi að orku víðs­vegar um Reykja­vík er ætlað að hvetja borg­ara til orku­skipta í sam­ræmi við mark­mið borg­ar­innar á sviði orku­mála um að borgin verði kolefn­is­laus árið 2040. Fjöldi raf­bíla hefur á stuttum tíma farið vax­andi innan Reykja­víkur en sam­kvæmt tölum frá Félagi íslenskra bif­reiða­eig­enda voru raf­bílar um 45,5 pró­sent nýskráðra bíla á fyrstu fimm mán­uðum 2021.

Upp­setn­ing og rekstur hleðslu­stöðva sem boðnar voru út í útboð­inu er ætlað að mæta þörfum þeirra sem ekki geta hlaðið bíla sína við heim­ili sín og gera þeim kleift að eiga og reka raf­bíla. Krafa um taf­ar­lausa óvirkni samn­ings­ins mun leiða til mik­illa óþæg­inda fyrir íbúa borg­ar­innar sem nota þær 156 hleðslu­stöðvar sem ON rekur sam­kvæmt samn­ingnum, og munu nú þurfa að loka fyrir aðgang að, þótt óljóst sé hversu lengi sú lokun muni vara,“ segir í til­kynn­ingu Reykja­vík­ur­borgar.

Kanna grundvöll þess að láta reyna á lögmæti úrskurðarins

Reykja­vík­ur­borg telur að sér­stakar ástæður rétt­læti að beiðni um frestun á rétt­ar­á­hrifum verði tekin til greina. Í fyrsta lagi hafi aðal­skylda samn­ings­ins um upp­setn­ingu hleðslu­stöðva þegar verið upp­fyllt að næstum öllu leyti og þjón­usta verið við borg­ar­búa til sam­ræmis við ákvæði samn­ings­ins um nokk­urt skeið. Því sé nið­ur­staða úrskurð­ar­ins veru­lega íþyngj­andi fyrir aðila máls og íbúa og gesti Reykja­víkur.

Í öðru lagi sé fyr­ir­séð að óvirkni samn­ings­ins, jafn­vel þótt hún kunni ein­vörð­ungu að vara um skamman tíma, muni leiða til þess að eig­endur raf­bíla sem hafa fjár­fest í þeim í trausti þess að eiga auð­velt aðgengi að hraðri hleðslu þeirra eigi nú erf­ið­ara um vik með að nýta sér þá.

Í þriðja lagi hafi ákvörðun kæru­nefndar útboðs­mála frá 22. októ­ber síð­ast­liðnum þar sem kröfu Ísorku ehf. um að umrætt útboð yrði stöðvað um stund­ar­sakir verið hafnað. Báðir samn­ings­að­ilar, Reykja­vík­ur­borg og ON, hafi því í góðri trú haldið áfram með að efna samn­ing­inn sem komst á í kjöl­far hins kærða útboðs.

Af hálfu Reykja­vík­ur­borgar stendur yfir vinna við að kanna grund­völl þess að láta reyna á lög­mæti úrskurð­ar­ins sem eins og áður hefur komið fram, lýtur að áætl­aðu verð­mæti samn­ings, kostn­að­ar­á­ætlun, og hvort bjóða hefði átt út sér­leyf­is­samn­ing á Evrópska efna­hags­svæð­inu í stað almenns útboðs sem fór fram inn­an­lands. Samhliða því sé unnið að und­ir­bún­ingi nýs útboðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár