Byssukúlur fundust í bílhurð borgarstjóra

Byssu­kúlur fund­ust í hurð­inni á bíl í eigu fjöl­skyldu Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra í síð­ustu viku, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu neitar að stað­festa þetta eða tjá sig nokkuð frekar um málið að svo stöddu.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Byssu­kúlur fund­ust í hurð­inni á bíl í eigu fjöl­skyldu Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra í síð­ustu viku, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu neitar að stað­festa þetta og seg­ist ekki ætla að veita frek­ari upp­lýs­ingar en komu fram um málið í til­kynn­ingu í morgun, að svo stöddu.[links]

Í til­kynn­ingu lög­reglu sagði að verið væri að rann­saka hvort skot­vopni hefði verið beitt er skemmdir voru unnar á bílnum og að einnig væri rann­sakað hvort málið tengd­ist árás sem gerð var á skrif­stofur Sam­fylk­ing­ar­innar í Sóltúni í síð­ustu viku. Málið væri litið mjög alvar­legum augum.

Kjarninn spurði lög­reglu meðal ann­ars að því hvort kúl­urnar sem fund­ust í bíl­hurð borg­ar­stjóra hefðu verið af sömu gerð og fund­ust á skrif­stofum Sam­fylk­ing­ar­innar, en fram hefur komið að þar hafi fund­ist tvær útflattar blý­kúlur, að lík­indum 22 kalí­bera byssu­kúlu.

„Það fannst út­flatt blý og menn frá tækni­deild lög­reglu reikn­uðu með því að að þetta væru 22 kalí­bera kúl­ur,“ seg­ir Kar­en Kjart­ans­dóttir fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar við mbl.is, en fram kom í sömu frétt að talið væri að loft- eða gas­byssa hefði verið notuð við verkn­að­inn, en í slíkar byssur er hægt að setja smærri byssu­kúlur.

Myndband sem borgarfulltrúi kom að fordæmt

Á vef Rík­is­út­varps­ins segir að lög­regla hafi vaktað heim­ili borg­ar­stjóra um helg­ina, en borg­ar­stjóri býr í mið­borg Reykja­víkur.

Í ljósi atburð­anna sem lög­regla greindi frá í dag hefur mynd­band sem birt var á YouTube í des­em­ber­mán­uði, en í mynd­band­inu var heim­ili borg­ar­stjóra sýnt og sömu­leiðis bíla­stæði hans. Borg­ar­stjóri var í sama mund sak­aður um spill­ingu. Vigdís Hauks­dóttir borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins las inn á mynd­bandið, sem var á vegum hóps sem kallar sig Björgum mið­bænum. Bolli Krist­ins­son athafna­maður, oft kenndur við Sautján, hefur verið í for­svari fyrir hóp­inn.

Borg­ar­stjóri sagði sjálfur að honum hefði verið veru­lega brugðið vegna mynd­bands­ins og að það væri alveg nýtt í íslenskri póli­tík að heim­ili fólks væri gert að skot­marki. „Mér sýn­ist vera brotið í blað í þess­ari aug­lýs­ingu sem Bolli Krist­ins­son, fyrr­ver­andi kaup­maður, ber ábyrgð á. Í fyrsta lagi að auð­maður fjár­magni rógs­her­ferð í krafti auðs til að sann­færa almenn­ing um hluti sem eru rangir og hafa verið hraktir í öllum fréttum. Og hins vegar að Bolli skuli hafa geð í sér til að gera myndir af heim­ili mínu að aðal­at­riði á meðan dylgjur og raka­lausar ásak­anir eru lesnar yfir. Þetta er mínu mati ömur­legt og nýtt á Íslandi,“ var haft eftir borg­ar­stjóra í Frétta­blað­inu.

„Þetta mynd­band er svo mik­ill við­bjóður. Svo and­styggi­legt, ómál­efna­legt og sið­laust. Fyrir utan afleið­ing­arnar sem það gæti haft í för með sér þegar kjör­inn full­trúi hegðar sér með þesssum óábyrga og ósvífna hætti; mark­laust og sið­spillt. Ég for­dæmi þetta,“ skrifar Líf Magneu­dóttir borg­ar­full­trúi Vinstri grænna á Twitter í dag.

Pawel Bartoszek borg­ar­full­trúi Við­reisnar hafði áður gagn­rýnt mynd­bandið harð­lega, skömmu eftir að það birt­ist rétt fyrir jól. „Ekki fal­legt að sjá spons­aðar aug­lýs­ingar þar sem keyrt er fram­hjá heim­ili borg­ar­stjóra og það sýnt frá ólíkum sjón­ar­hornum í dumb­ungs­birtu. Við getum verið ósam­mála um margt póli­tík, til þess er hún, en að nota "drive-by" sem taktík finnst mér heldur ófram­bæri­legt,“ skrif­aði Pawel þá. „Mánuður síðan mér ofbauð þetta. Fólk sem tekur þátt opin­berri umræðu þarf að sýna ábyrgð,“ segir Pawel nú.

Skotið á höfuðstöðvar flokka og Samtaka atvinnulífsins

Eftir að skotið var á skrif­stofu Sam­fylk­ing­ar­innar í síð­ustu viku spurð­ist það út að á síð­ustu miss­erum hefði end­ur­tekið verið skotið á rúður í höf­uð­stöðvum íslenskra stjórn­mála­sam­taka. Lögregla sagði frá því að skotið hefði verið á skrif­stofur Við­reisnar, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Samtaka atvinnu­lífs­ins á und­an­förnu ári og einnig voru sagðar fréttir af sam­bæri­legum skemmd­ar­verkum eða árásum á skrif­stofur Pírata árin 2018 og 2019.

Ekkert þess­ara mála hafði ratað í fjöl­miðla.

Kjarninn spurði lög­reglu að því hvort sér­stakar áhyggjur væru af því að árásin beind­ist að einum til­teknum nafn­greindum stjórn­mála­manni, á meðan að fyrri skotárásir hefðu beinst gegn sam­tökum. Lögregla sagð­ist í svari til Kjarnans ekki ætla að veita neinar frek­ari upp­lýs­ingar að svo stöddu, eins og áður hefur komið fram.

Stundin sagði frá því eftir árás­ina á hús­næði Sam­fylk­ing­ar­innar að stjórn­mála­fólki hefði verið upp­álagt að hafa var­ann á. Þau skila­boð munu hafa komið frá lög­regl­unni, sam­kvæmt frétt blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár