Tveir starfsmenn og tveir embættismenn höfnuðu flutningi milli ráðuneyta

Fjórir starfs- og emb­ætt­is­menn þáðu ekki boð um flutn­ing milli ráðu­neyta þegar breytt skipan ráðu­neyta tók gildi í jan­úar. Biðlaun ann­ars emb­ætt­is­manns­ins kosta rík­is­sjóð 22 millj­ónir króna.

Fjórir starfsmenn og embættismenn hafa hafnað flutningi milli ráðuneyta í kjölfar breyttrar skipunar stjórnarráðsins sem lögð var til í stjórnarsáttmála endurnýjaðs ríkisstjórnarsamstarfs í lok síðasta árs.
Fjórir starfs­menn og emb­ætt­is­menn hafa hafnað flutn­ingi milli ráðu­neyta í kjöl­far breyttrar skip­unar stjórn­ar­ráðs­ins sem lögð var til í stjórn­ar­sátt­mála end­ur­nýj­aðs rík­is­stjórn­ar­sam­starfs í lok síð­asta árs. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tveir starfs­menn mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins og tveir emb­ætt­is­menn höfn­uðu flutn­ingi milli ráðu­neyta í kjöl­far breyt­inga á skipan ráðu­neyta sem sam­þykkt var á Alþingi í lok jan­úar.

Starfs­menn­irnir tveir sinna áfram störfum í mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­inu. Einn emb­ætt­is­maður lét af störfum og fær bið­launa­greiðslur, alls 22 millj­ónir króna. Þá var einum emb­ætt­is­manni veitt lausn frá emb­ætti með lög­mæltum eft­ir­launum. Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna eft­ir­launa­greiðsln­anna liggja ekki fyrir að því er fram kemur í fyr­ir­spurn Kjarnans til ráðu­neyt­is­ins.

[adspot]Breytt skipan ráðu­neyta, með til­færslu mála­flokka milli ráðu­neyta og fjölgun þeirra úr tíu á tólf, var á meðal þess sem Bjarni Bene­dikts­son, Katrín Jak­obs­dóttir og Sigurður Ingi Jóhanns­son kynntu við und­ir­ritun nýs stjórn­ar­sátt­mála 28. nóv­em­ber í fyrra. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga þess efnis var sam­þykkt í lok 27. jan­úar.

[links]Líkt og Kjarninn hefur greint frá er gert ráð fyrir að kostn­aður þess­ara breyt­inga verði 505 millj­ónir á næsta ári. Ekki er ljóst hvort kostn­aður vegna höfn­unar starfs- og emb­ætt­is­manna á flutn­ingi milli ráðu­neyta sé tek­inn með en slíkt mat hefur að minnsta kosti ekki verið tekið saman sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans.

Samkvæmt frum­varpi til fjár­auka­laga sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra lagði fram í síð­asta mán­uði verða fjár­heim­ildir að upp­hæð 120 millj­arða króna færðar til vegna breyttrar skipan Stjórn­ar­ráðs Íslands.

Aðeins starfs- og embættismenn í mennta- og barnamálaráðuneyti sem höfnuðu flutningi

Með breyttri skipan ráðu­neyta var ráðu­neytum fjölgað úr tíu í tólf, mála­­flokkar færðir til og heiti ráðu­­neyta breyt­­tust. Í stað atvinn­u­­vega- og nýsköp­un­­ar­ráðu­­neyt­is, félags­­­mála­ráðu­­neyt­is, mennta- og menn­ing­­ar­­mála­ráðu­­neyt­is, sam­göngu- og sveit­­ar­­stjórn­­­ar­ráðu­­neytis og umhverf­is- og auð­linda­ráðu­­neytis komu félags- og vinn­u­­mark­aðs­ráðu­­neyti, háskóla-, iðn­­að­­ar- og nýsköp­un­­ar­ráðu­­neyti, inn­­við­a­ráðu­­neyti, mat­væla­ráðu­­neyti, menn­ing­­ar- og við­­skipta­ráðu­­neyti, mennta- og barna­­mála­ráðu­­neyti og umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­­neyti.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á öll tólf ráðu­neytin og óskaði eftir upp­lýs­ingum um hvort starfs­menn eða emb­ætt­is­menn hefðu hafnað flutn­ingi á milli ráðu­neyta.

Engir starfs­menn eða emb­ætt­is­menn í umhverfis- orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu voru fluttir á milli ráðu­neyta. Tveir starfs­menn ann­ars ráðu­neytis þáðu aftur á móti starf hjá ráðu­neyt­inu í tengslum við ný verk­efni sem færð voru til ráðu­neyt­is­ins vegna breyt­ing­anna.

Enginn úr starfs­liði ráðu­neyt­is­ins hafn­aði flutn­ingi í tengslum við breytta skipan ráðu­neyta í Stjórn­ar­ráði Íslands. Fimm ein­stak­lingar, sem sinntu mál­efnum fjar­skipta og net­ör­ygg­is­mála, flutt­ust frá ráðu­neyt­inu, þar af einn emb­ætt­is­maður.

Í svari frá menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyti til Kjarnans segir að þar sem ráðu­neytið var stofnað við breyt­ing­una á Stjórn­ar­ráð­inu voru í raun engir starfs­menn sem höfn­uðu flutn­ingi frá ráðu­neyt­inu, heldur hátt­aði málum svo að starfs­menn komu til menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu (nú mat­væla­ráðu­neyti) og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti (nú mennta og barna­mála­ráðu­neyti) og ráðu­neyt­is­stjóri, Skúli Eggert Þórð­ar­son, kom frá Rík­is­end­ur­skoðun.

Einn starfs­maður fór frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og setti sig ekki upp á móti þeim flutn­ingi.

Engir starfs­menn eða emb­ætt­is­menn mat­væla­ráðu­neyt­is­ins höfn­uðu flutn­ingi þegar mat­væla­ráðu­neytið var stofnað. Það sama gildir um for­sæt­is­ráðu­neytið, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, utan­rík­is­ráðu­neytið, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti, heil­brigð­is­ráðu­neytið og félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár