Fjölgun ráðuneyta og tilfærsla málaflokka kostar hálfan milljarð króna

Fjölgun ráðu­neyta og ráð­herra, í sam­ræmi við stjórn­ar­sátt­mála, kostar 505 millj­ónir króna á næsta ári. Ráð­herrar hafa aldrei verið fleiri og aðstoð­ar­menn þeirra eru nú 27. Launa­kostn­aður þess­ara 39 ein­stak­linga er áætl­aður 771 milljón á ári.

Gert er ráð fyrir að breytt skipun stjórn­ar­ráðs­ins, sem felur í sér til­færslu mála­flokka milli ráðu­neyta og fjölgun þeirra úr tíu í tólf, kosti 505 millj­ónir króna á næsta ári.

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar um fjár­laga­frum­varpið, sem sam­anstendur af nefnd­ar­mönnum stjórn­ar­flokk­anna þriggja, er gerð til­laga um að sam­svar­andi upp­hæð verði ráð­stafað úr rík­is­sjóði á árinu 2022 vegna þessa kostn­aðar til við­bótar við það sem rekstur stjórn­ar­ráðs­ins kost­aði áður.

Þegar end­ur­nýjað sam­starf Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks var kynnt greindu for­menn flokk­anna frá því að þeir ætl­uðu að fjölga ráð­herrum í tólf. Þeir hafa aldrei verið fleiri hér­lend­is.

Auk þess voru mála­flokkar færðir til og kynnt að heiti ráðu­neyta myndu breyt­ast. Í stað atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is, félags­mála­ráðu­neyt­is, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytis og umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neytis koma félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyti, háskóla-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti, inn­við­a­ráðu­neyti, mat­væla­ráðu­neyti, menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neyti, mennta- og barna­mála­ráðu­neyti og umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyti.

Ráðuneytisstjóri, ritari, bílstjóri

Samkvæmt for­sendum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis nemur árlegur launa­kostn­aður ásamt launa­tengdum gjöldum vegna stofn­unar nýs ráðu­neytis um 130 millj­ónum króna vegna ráðu­neyt­is­stjóra, rit­ara, bíl­stjóra og þriggja almennra starfs­manna. Annar rekstr­ar­kostn­aður er áætl­aður um 40 millj­ónir króna á ári fyrir hvort ráðu­neyti.

[adspot]Því til við­bótar þarf að gera ráð fyrir tíma­bundnum við­bót­ar­kostn­aði við húsa­leigu fyrir eitt ráðu­neyti, sem metin er á 40 mill­ljónir króna á ári. Jafn­framt þarf að gera ráð fyrir ein­skipt­is­fjár­fest­ingu í bún­aði og tækjum, fyrir hvort ráðu­neyti, og áætl­aður kostn­aður vegna þessa er 15 millj­ónir króna.

Í nefnd­ar­á­lit­inu segir að .ar sem ekki liggi fyrir á þessu stigi end­an­legt innra skipu­lag nýrra ráðu­neyta, til­færsla núver­andi starfs­manna og breyttar starfs­á­herslur, meðal ann­ars í tengslum við stefnu­mál rík­is­stjórn­ar­innar sam­kvæmt stjórn­ar­sátt­mála, sé óvissa um í hvaða mæli ráða þarf til starfa aukið starfs­lið. „Að sam­an­lögðu má telja að heild­ar­kostn­aður við stofnun tveggja nýrra ráðu­neyta gæti numið um 505 m.kr. fyrsta árið, en þar af fær­ast 450 m.kr. á þennan mála­flokk.“

Laun ráðherra og aðstoðarmanna verða 771 milljón

Það sem upp á vantar fellur til vegna rekst­urs rík­­is­­stjórnar Íslands. Undir þann lið falla launa­greiðslur ráð­herra og aðstoð­­ar­­manna þeirra.

Hann var áætl­­aður 714,9 millj­ónir króna á næsta ári sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi, sem er um fimm pró­sent meiri kostn­aður en áætlun vegna árs­ins 2021 gerir ráð fyr­ir, en þá á rekst­ur­inn að kosta 681,3 millj­ónir króna.

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar er gerð til­laga um að útgjöld vegna þessa liðar verði hækkuð um 56,3 millj­ónir króna. Ástæðan er sögð fjölgun ráð­herra og aðstoð­ar­manna í sam­ræmi við skipan nýrrar rík­is­stjórnar í lok nóv­em­ber, þegar ráð­herrum var fjölgað um einn í tólf og aðstoð­ar­mönnum um tvo.

Alls má rík­­is­­stjórnin því ráða 27 aðstoð­­ar­­menn sem stend­ur en fyrir utan þá tvo sem hver ráð­herra hefur getur rík­is­stjórnin sjálf ráðið þrjá, þar á meðal einn upp­lýs­inga­full­trúa.

Því mun kostn­aður vegna launa­greiðslna til ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra verða 771,2 millj­ónir króna á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár