Ríkisendurskoðandi skipaður ráðuneytisstjóri

Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­end­ur­skoð­andi hefur verið skip­aður ráðu­neyt­is­stjóri í nýju menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyti.

Skúli Eggert Þórðarson hefur verið skipaður ráðuneytisstjóri hins nýja menningar- og viðskiptaráðuneytis.
Skúli Eggert Þórð­ar­son hefur verið skip­aður ráðu­neyt­is­stjóri hins nýja menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neytis. Mynd: Skjáskot/RÚV

Skúli Eggert Þórð­ar­son, sem verið hefur rík­is­end­ur­skoð­andi frá árinu 2018, hefur verið skip­aður ráðu­neyt­is­stjóri nýs menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neytis og hefur störf þann 1. febr­úar.

Þetta kom fram í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag, en það er Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, ferða­mála-, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, sem skipar í emb­ættið.

Í til­kynn­ing­unni segir að ákvörðun um flutn­ing Skúla Eggerts í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra er tekin á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins þar sem kveðið er á um heim­ild til flutn­ings emb­ætt­is­manna rík­is­ins milli starfa.

Skúli Eggert var kjör­inn rík­is­end­ur­skoð­andi af Alþingi árið 2018 og var fjórði ein­stak­ling­ur­inn til að gegna því emb­ætti frá því að því var komið á fót árið 1987.

Kjör hans í emb­ættið var til sex ára og því ljóst að finna þarf nýjan rík­is­end­ur­skoð­anda fyrr en áætlað hafði verið.

[adspot]

Áður en Skúli Eggert var kjör­inn rík­is­end­ur­skoð­andi hafði hann verið rík­is­skatt­stjóri frá 2007 til 2018 og þar áður skatt­rann­sókn­ar­stjóri frá árinu 1993. Áður hafði hann svo gegnt starfi vara­rík­is­skatt­stjóra á árunum 1990-1993. Hann er fæddur árið 1953 og er lög­fræð­ingur að mennt.

Benedikt Árnason ráðuneytisstjóri matvælaráðuneytis

Breytt skipan ráðu­neyta í Stjórn­ar­ráði Íslands felur í sér að atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið verður lagt niður nú um mán­að­ar­mótin.

Verkefni þess munu fær­ast að mestu í tvö ný ráðu­neyti; menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyti þar sem mæt­ast mála­flokkar menn­ingar, við­skipta og ferða­þjón­ustu og mat­væla­ráðu­neyti með mála­flokkum sjáv­ar­út­vegs, fisk­eldis, land­bún­aðar, skóg­ræktar og land­græðslu.

Þrír mála­flokkar fær­ast til ann­arra ráðu­neyta, en orku­mál verða í umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyti og iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­mál í háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti.

Benedikt Árnason, sem verið hefur ráðu­neyt­is­stjóri atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins verður ráðu­neyt­is­stjóri í nýju mat­væla­ráðu­neyti, þar sem Svandís Svav­ars­dóttir er mat­væla­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár