Dagur: „Í mínu hjarta þá er komið hingað og ekki lengra”

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir við RÚV að skotárás á bif­reið fjöl­skyldu hans hafi upp­götvast á laug­ar­dag. Hún hafi verið áfall og ætti að verða til­efni til umræðna um hvernig við viljum hafa þjóð­fé­lags­um­ræð­una.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er höggvið ansi nærri manni þegar heim­ilið er ann­ars vegar, því þar býr ekki bara ég heldur fjöl­skylda mín og krakk­arnir,“ sagði Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri í við­tali við Rík­is­út­varpið í dag. Eins og greint var frá í morgun var skotið með byssu á bíl Dags, ein­hvern­tím­ann í síð­ustu viku.

Borg­ar­stjóri seg­ist í við­tal­inu hafa tekið eftir skot­götum á fjöl­skyldu­bif­reið­inni síð­asta laug­ar­dag, er hann var að ganga inn í bíl­inn. Lögregla hafi síðan fengið bíl­inn í hendur, tekið hann til rann­sóknar og fundið kúlur inni í hurð­inni. Dagur segir í við­tal­inu að ekki liggi nákvæm­lega ljóst fyrir hvenær skotið var á bíl­inn eða hvort bíll­inn hafi þá staðið fyrir utan heim­ili hans. Þessir hlutir séu á meðal þess sem lög­regla rann­sakar nú.[links]

Í við­tal­inu við RÚV stað­festir Dagur að gripið hafi verið til ráð­staf­ana fyrir utan heim­ili hans í kjöl­far þess að skot­götin upp­götv­uð­ust. „Við erum bara þakk­lát fyrir það,“ sagði Dagur.

Hann segir að fjöl­skyldan hafi reynt að halda sjó síð­ustu daga, en þetta hafi verið mikið áfall. „Þetta auð­vitað tekur svo­lítið yfir lífið, ég neita því ekki, en um leið og við gefum lög­reglu núna bara færi á að vinna málið þá vil ég bara slá skjóli um fjöl­skyld­una og hafa það bara út af fyrir okkur,“ sagði Dagur.

Tilefni til umræðna um hörkuna í umræðunni

Hann sagði aðspurður að hann von­aði að þetta mál væri ekki til marks um að við værum að ganga inn í nýja tíma í póli­tík á Íslandi, þar sem opin­berar per­sónur gætu átt von á svona lög­uðu. Þetta ætti þó að verða til­efni til umræðna um hvernig við viljum hafa umræð­una, sam­fé­lagið.

[adspot]

„Það taka allir eftir þeirri hörku sem er hlaupin í ýmis sam­skipti, það eru stór orð sem eru notuð og þar berum við öll sem sam­fé­lag ábyrgð. Hvar við drögum mörkin. Hættan er alltaf sú að línan færi alltaf aðeins lengra … og í mínu hjarta þá er komið hingað og ekki lengra,” sagði Dagur sem hálf­part­inn komst við á þessum tíma­punkti í við­tal­inu.

Dagur tjáði sig sömu­leiðis um mynd­band á vegum póli­tískra and­stæð­inga hans sem birt­ist skömmu fyrir jól, en þar sást heim­ili hans glögg­lega undir orðum Vigdísar Hauks­dóttur borg­ar­full­trúa, sem sak­aði Dag um spill­ingu. Í dag hefur þetta mynd­band verið sett í sam­hengi við skotárás­ina á bif­reið Dags og fjöl­skyldu, meðal ann­ars af hálfu borg­ar­full­trúa meiri­hlut­ans.

„Ég lá ekk­ert á því á sínum tíma að það vakti með mér óhug og mér fannst þarna verið að fara í ein­hverja nýja átt sem við höfum ekki séð áður í íslenskri póli­tík eða sam­fé­lags­um­ræðu - að birta aug­lýs­ingar sem bein­ast að heim­ili fólks. Og ég stend við það. Við vitum hins vegar ekk­ert um þetta atvik sem getur fengið mig til að full­yrða um ein­hver orsaka­tengsl. Þetta er bara hluti af þessu umhverfi sem við hljótum öll að vera hugsi yfir. Og þurfum að spyrna fótum við. Mér fannst það þá og ekki síður í dag,” sagði borg­ar­stjóri við RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár