Samþykkja að hefja undirbúning á Félagsdómsmáli gegn Icelandair

Á síð­asta mið­stjórn­ar­fundi ASÍ sam­þykkti stjórnin bókun Drífu Snædal, for­seta ASÍ, þess efnis að haf­inn verði und­ir­bún­ingur að Félags­dóms­máli gegn Icelandair vegna fram­göngu félags­ins í garð Flug­freyju­fé­lags Íslands.

Drífa Snædal er forseti ASÍ.
Drífa Snædal er for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Mið­stjórn ASÍ hefur sam­þykkt að haf­inn verði und­ir­bún­ingur að Félags­dóms­máli vegna fram­göngu Icelandair í kjara­við­ræðum félags­ins við Flug­freyju­fé­lag Íslands. Á síð­asta mið­stjórn­ar­fundi ASÍ sem hald­inn var þann 19. ágúst síð­ast­lið­inn lagði Drífa Snædal, for­seti ASÍ fram bókun þar sem meðal ann­ars segir: „Nú þegar verði haf­inn und­ir­bún­ingur undir að látið verði reyna fyrir Félags­dómi á lög­mæti fram­göngu Icelandair með stuðn­ingi SA í deil­unni við FFÍ um grund­vall­ar­reglur varð­andi sam­skipti á vinnu­mark­aði.“

Þetta kemur fram í Frétta­molum frá skrif­stofu ASÍ sem eru sendir til mið­stjórnar ASÍ, for­manna allra aðild­ar­sam­taka ASÍ, stjórnar ASÍ-UNG og tengiliða aðild­ar­fé­laga ASÍ.

Þar segir að á mið­stjórn­ar­fund­inum hafi Guðlaug Líney Jóhanns­dóttir, starf­andi Formaður FFÍ, og Berglind Krist­ó­fers­dóttir, stjórn­ar­maður í FFÍ, gert grein fyrir kjara­við­ræðum félags­ins og Icelandair. Þær hafi bent á að samn­ingar FFÍ og Icelandair hefðu verið lausir frá 1. jan­úar 2019 og ekk­ert hefði gengið í við­ræðum um nýjan kjara­samn­ing fram á þetta ár. Samn­ings­til­boð hafi verið lagt fram af Icelandair í apríl sem hafi verið með öllu óásætt­an­legt „og sýni­lega unnið af banda­rísku ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki.“

„Í fram­hald­inu hafi gengið á með hót­unum af hálfu fyr­ir­tæk­is­ins. Síðan var gerður kjara­samn­ingur sem félags­menn FFÍ felldu með 74% atkvæða. Í fram­hald­inu hafi Icelandair sagt upp öllum flug­freyjum og flug­þjónum sem eftir voru og lýst því yfir að gengið yrði til samn­inga við annað stétt­ar­fé­lag þar sem ein­sýnt væri að ekki næð­ust samn­ingar við FFÍ,“ segir um reifun þeirra Guð­laugar og Berg­lindar á kjara­við­ræð­unum í Frétta­mol­unum.

Telja að flugfreyjum sem gengið hafa harðast fram sé refsað

FFÍ hafi svo brugð­ist við með því að boða atkvæða­greiðslu um verk­fall en óskað jafn­framt eftir samn­inga­fundi. Kjara­samn­ingur var síðan und­ir­rit­aður 24. júlí síð­ast­lið­inn og því fylgdi að FFÍ aft­ur­kall­aði verk­falls­hót­un­ina og Icelandair drægi upp­sagnir frá 17. júlí til baka.

„Fram kom að nú séu í gangi end­ur­ráðn­ingar á 190 flug­freyjum og flug­þjónum og að í stað þess að fylgja starfs­ald­urs­lista hafi verið gengið fram hjá aðilum með lengstan starfs­aldur og Icelandair borið ýmis­legt fyrir sig í þeim efnum, auk þess sem ástæða sé til að ætla að verið sé að refsa þeim sem gengið hafa harð­ast fram í kjara­bar­átt­unni,“ segir þar enn fremur.

Álítur Icelandair hafa farið gegn lögum

Á fund­inum fjall­aði Magnús M. Norðdahl um kjara­deilu FFÍ og Icelandair. Í minn­is­blaði sínu leggur hann mat á fram­göngu Icelandair. Nið­ur­staða hans er „að fram­ferði og aðgerðir Icelandair með stuðn­ingi SA brjóti í fyrsta lagi gegn 4.gr. laga nr. 80/1938 þar sem til­gangur aðgerð­ar­innar var aug­ljós­lega sá að hafa áhrif á afstöðu og þátt­töku félags­manna FFÍ í vinnu­deilu félags­ins við Icelandair með því bæði að hóta og hrinda í fram­kvæmd upp­sögnum.“ Þá telur að hann að fjölda­upp­sögnin hafi falið í sér ólög­mætt verk­bann.

Á mið­stjórn­ar­fund­inum kom fram ein­dreg­inn stuðn­ingur við að ASÍ hefji und­ir­bún­ing undir mál­sókn fyrir Félags­dómi á grund­velli minn­is­blaðs og nið­ur­stöðu Magnúsar. Í kjöl­far umræðna hafi Drífa Snædal lagt fram áður­nefnda bókun þess efnis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár