Samþykkt að fara í verkfallsaðgerðir gegn Reykjavíkurborg

Mikill meiri­hluti þeirra sem þátt tóku í atkvæða­greiðslu Eflingar um verk­falls­að­gerðir gegn Reykja­vík­ur­borg eða 95,5% sam­þykkti verk­falls­boðun.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Mikill meiri­hluti þeirra sem þátt tóku í atkvæða­greiðslu Eflingar um verk­falls­að­gerðir gegn Reykja­vík­ur­borg eða 95,5% hefur sam­þykkt verk­falls­boðun.

Atkvæða­greiðslan stóð yfir í fimm daga og lauk á hádegi í dag, sunnu­dag­inn 26. jan­úar.

Í til­kynn­ingu frá Eflingu kemur fram að met­þátt­taka hafi verið í atkvæða­greiðsl­unni eða 59,2%. Alls voru 1.894 félags­menn Eflingar sem starfa hjá Reykja­vík­ur­borg á kjör­skrá. Af þeim greiddi 1.121 atkvæði. Af greiddum atkvæðum sam­þykkti 1.071 verk­falls­boðun. 34 á móti eða 3,1% og 16 tóku ekki afstöðu eða 1,4%.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, fagnar því að félags­menn hafi tekið undir til­lögu samn­inga­nefndar um boðun verk­falls­að­gerða. „Ég hef fundið fyrir gríð­ar­legum bar­áttu­vilja meðal starfs­manna í fjöl­mörgum heim­sóknum mínum á vinnu­staði borg­ar­innar síðan í haust,“ er haft eftir henni í til­kynn­ingu Eflingar. „Fólk er orðið lang­þreytt á því að vinna fyrir sult­ar­launum við vax­andi álag og erf­iðar aðstæður. Met­kosn­inga­þátt­taka, svo ekki sé talað um yfir­gnæf­andi vilja til aðgerða, sýnir svo ekki verður um villst að við erum á réttri leið og höfum fjöld­ann á bak­við okkur. Með þennan vind í segl­unum eru okkur allir vegir færir í bar­átt­unni við borg­ina.“

Með atkvæða­greiðsl­unni hafa fél­gs­menn Eflingar sam­þykkt verk­falls­boðun gagn­vart Reykja­vík­ur­borg. Formleg verk­falls­boðun verður afhent borg­ar­yf­ir­völdum og rík­is­sátta­semj­ara fyrir hádegi á morgun, mánu­dag­inn 27. jan­úar.

Skipulag verk­falls­að­gerða verður með eft­ir­far­andi hætti:

· Þriðju­dagur 4. febr­úar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 12:30 og fram til klukkan 23:59.

· Fimmtu­dagur 6. febr­úar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.

· Þriðju­dagur 11. febr­úar: Vinna lögð niður frá klukkan 12:30 og fram til klukkan 23:59.

· Mið­viku­dagur 12. febr­úar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.

· Fimmtu­dagur 13. febr­úar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59.

· Mánu­dagur 17. febr­úar: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og ótíma­bundið eftir það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár