Fordæma aðgerðir Icelandair í kjaraviðræðum

Norræna flutn­inga­manna­sam­bandið sendi frá sér til­kynn­ingu í gær þar sem það for­dæmir aðgerðir Icelandair í nýlegum kjara­samn­inga­við­ræðum. Samtökin segja þrýst­ing á stétt­ar­fé­lög í formi hót­ana ekki leysa rekstr­ar­vand­ann sem upp er kom­inn vegna COVID-19.

Norræna flutn­iniga­manna­sam­bandið (NTF) for­dæmir fram­komu Icelandair í garð Flug­freyju­fé­lags Íslands (FFÍ) í nýlegum kjara­samn­inga­við­ræðum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá NTF sem sam­bandið sendi frá sér í gær.

Icelandair sleit samn­inga­við­ræðum við FFÍ og sagði upp öllum flug­freyjum sínum um miðjan júlí. Í kjöl­farið áttu flug­menn að taka að sér störf örygg­is­liða um borð í vélum Icelandair og félagið ætl­aði að leita eftir samn­ingum við annan samn­ings­að­ila. Nokkrum dögum síðar var nýr kjara­samn­ingur milli Icelandair og FFÍ und­ir­rit­aður.

Í til­kynn­ing­unni lýsir NTF yfir miklum von­brigðum með þessa ákvörðun Icelandair. Samtökin segja það einnig áhyggju­efni að slíkum brögðum sé beitt. Því miður hafi sams­konar aðgerðum verið beitt í kjara­við­ræðum ann­ars flug­fé­lags og nú, mörgum árum síðar, er and­inn í starfs­manna­hópi þess flug­fé­lags enn ekki samur að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur leikið fyr­ir­tæki í hinum ýmsu geirum grátt og ekki síst fyr­ir­tæki sem sinna fólks­flutn­ingum. Að mati NTF er það ekki lausn á þeim rekstr­ar­vanda sem fyr­ir­tækin standa frammi fyrir að þrýsta á stétt­ar­fé­lög með hót­unum sem ógni heild­ar­samn­ingum.

Líkt og áður segir for­dæma sam­tökin þessa til­högun en þau hvetja jafn­framt Icelandair til þess að reyna að hlúa að vinnu­um­hverf­inu til þess að efla traust milli allra þeirra sem hlut eiga að máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár