Stjórnmálastéttin ekki með hugrekkið til að færa láglaunafólki það sem því er skuldað

Formaður Eflingar segir að ef við hlýðum „lög­málum mark­að­ar­ins“ séum við ein­fald­lega að dæma fjölda fólks til áfram­hald­andi efna­hags­legrar kúg­unnar sjúkrar heims­myndar.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

„Eitt af því mik­il­væg­asta sem þarf að gera hér er opin­bert átaks­verk­efni í hús­næð­is­málum. Það væri „atvinnu­skap­andi“ fyrir verka­fólk og jafn­framt það eitt það mik­il­væg­asta í að gera efna­hags­lega til­veru verka- og lág­launa­fólks betri.“

Þetta segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, á Facebook í dag. Tilefnið er frétt RÚV þar sem fram kemur að mjög hátt verð á lóðum og tak­markað fram­boð nýrra íbúða sé meðal þess sem veldur því að íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé mun hærra en það þyrfti að vera. Sögulega lágir vextir hafi einnig áhrif á verðið.

Sólveig Anna segir að í stað þess að geta aldrei um frjálst höfuð strokið vegna hins sjúka og ömur­lega seinna arð­ráns sem hús­næð­is­mark­að­ur­inn er, gæti vinnu­aflið lifað við þau rétt­indi, sem sum myndu kalla grund­vall­ar­rétt­indi, að hafa aðgang að öruggu, góðu og fal­legu hús­næði fyrir sig og sína. „Ekki er hægt að hugsa sér mik­il­væg­ari skila­boð til lág­launa­fólks og barna þeirra um að þau séu mik­il­vægur (jafn­vel ómissandi ...?) hluti sam­fé­lags­ins en að farið væri í opin­bert bygg­ingar-átaks-verk­efni,“ skrifar hún. Sólveig Anna spyr hvers vegna það sé þá ekki gert.

Tilbúin til að láta sjúkt og mannfjandsamlegt ástand vaxa og dafna

„Öll hér vita og hafa lengi vitað að hús­næð­is­mark­aður höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er ekk­ert nema leik­völlur fjár­magns­eig­enda sem hafa kom­ist upp með algjöra vöru­væð­ingu grunn­þarf­anna. Verk­lýðs­hreyf­ingin reynir að stoppa í eitt gat með hús­næð­is­fé­lag­inu Bjargi en jafn­vel þar er leigan und­ir­seld mark­aðslög­málum vegna þess að ann­ars hefur félagið ekki aðgang að lánsfé til bygg­ing­ar­fram­kvæmda. Og á meðan nokkrum mann­eskjum er komið í (dýrt) skjól þar halda öll hin götin áfram að stækka og ný að verða til. Og eng­inn gerir neitt. Þrátt fyrir að öll viti. Hvers vegna? Jú, vegna þess að frjáls­lynt nútíma full­trúa­lýð­ræðið hræð­ist ekk­ert meira en ægi­vald kap­ít­als­ins. Hræðist ekk­ert meira en að finna nægi­legt hug­rekki til að við­ur­kenna að gjáin sem skilur að hið opin­bera og mark­að­inn er ekk­ert annað er ógeðs­leg blekk­ing,“ skrifar hún.

Mark­aðslög­mála­gjáin sem hræði kjörna full­trúa svo hræði­lega að þau séu til­búin til að láta sjúkt og mann­fjand­sam­legt ástand vaxa og dafna í eigin sam­fé­lagi er ekk­ert nema tíbrá búin til úr sjúkri og yfir­gengi­legri frekju eigna­stétt­ar­innar. „Tíbrá sem öllu máli skiptir að við öll látum að sé raun­veru­leg svo að ekki opin­ber­ist hversu geig­væn­legt hug­leysið er og hve sjúk­leg græðgin er.“

Sólveig Anna segir að það að hræð­ast að finna hug­rekki ætti að vera þver­sögn. Mann­eskja ætti að þrá að finna hug­rekkið til að gera það sem hún veit að þarf að gera. „En frjáls­lynt full­trúa­lýð­ræði nýfrjáls­hyggj­unnar þarf mest að öllu að til­einka hér algjört hug­leysi þegar kemur að því að takast á við sjúk­lega ólýð­ræð­is­legt valda­ó­jafn­vægið í sam­fé­lag­inu, slétt­skipt­ing­una og mis­skipt­ing­una. Það er örugg­ast fyrir með­limi þess að telja sjálfum sér trú um að þau geti í raun ekk­ert gert því þau eru á end­anum ekki hrædd­ari við neitt en að afneita ólýð­ræð­is­legum leik­reglum arð­ráns­ins. Og til þess að breiða yfir eigin hug­leysi láta þau ein­fald­lega eins og risa­stórt vanda­mál, risa­stórt sam­fé­lags­legt vanda­mál sé ekki til. Hugrekki eiga þau ekki til en eru í stað þess upp­full af tóm­inu sem skortur á ímynd­un­ar­afli og dirfsku býr til.

Jafnvel á þeirri sögu­legu stundu þegar öllum er ljóst að hið opin­bera getur opnað fjár­hirslur sínar upp á gátt svo að með­limir eigna­stétt­ar­innar gangi ekki af göfl­unum og komi í veg fyrir sótt­varn­ar­að­gerðir, þegar öllum er ljóst að gjáin er alls ekki óyf­ir­stíg­an­leg, að gjáin er aðeins látin skilja að hið opin­bera og mark­að­inn til að koma í veg fyrir að mis­skipt­ing og stétt­skipt­ing séu upp­rættar, að gjáin er ekki til í alvöru; jafn­vel á þess­ari sögu­legu stundu er engin úr stjórn­mála­stéttar-valda ver­öld­inni með hug­rekkið, ímynd­un­ar­aflið, dirfsk­una, sam­hygð­ina, GETUNA til að færa lág­launa­fólki og fjöl­skyldum þeirra það sem þeim er skuldað: Að láta þau ekki lengur vera í fjötrum sið­ferði­lega óverj­andi hús­næð­is­kerfis,“ skrifar hún.

Erum að dæma fjölda fólks til áframhaldandi efnahagslegrar kúgunnar

„Eftir að hafa hlustað á mærð­ar­lega sjálfs­upp­hafn­ingu og þjóð­ern­is­inn­blásið orða­salat for­seta og for­sæt­is­ráð­herra um árá­mót, fólks sem lifir í lifa í vellyst­ingum prakt­ug­lega, þar sem þau sem ekk­ert eiga og ekk­ert mega, hin atvinnu­lausu og hin eigna­lausu, þau sem strita á lág­marks­launum og eiga aldrei krónu með gati, þau sem ekki er hægt að nýta til vinnu í arð­ráns-mask­ín­unni, eru ein­fald­lega ekki ávörpuð, ein­fald­lega látið sem þau séu bara ekki til, get ég ekki annað en vonað að öllu hjarta og öllum heila; vonað að við sjálf finnum nægi­legt hug­rekki til að sam­ein­ast í því að ganga í öll þau átaks­verk­efni sem fram­kvæma þarf.

Og á engu væri betra að byrja en að hús­næð­is­kerfi fyrir vinnu­aflið, byggðu af því sjálfu, fyrir það sjálft, með feg­urð og nota­gildi í fyr­ir­rúmi, mann­virð­ingu og ó-arð­rán að leið­ar­ljósi. Við þurfum ein­fald­lega að opna á hug­rekkið sem við vitum að við eigum til og láta það knýja áfram get­una til að geta látið verkin tala. Ef við getum það ekki, ef við hlýðum „lög­málum mark­að­ar­ins“ erum við ein­fald­lega að dæma fjölda fólks til áfram­hald­andi efna­hags­legrar kúg­unnar sjúkrar heims­myndar sem er hvort sem er svo mörkin að hún á ekk­ert annað eftir að gera nema hrynja vegna eigin innri mót­sagna og brjál­semi,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár