Laun þingmanna hækka um 75 þúsund krónur

Þing­far­ar­kaupið er nú orðið 1.285.411 krónur en það hækk­aði um 6,2 pró­sent um síð­ustu mán­aða­mót. Launa­hækk­anir þing­manna taka mið af reglu­legum hækkun reglu­legra launa starfs­manna rík­is­ins.

Þingfararkaupið hækkar
Þing­far­ar­kaupið hækkar Mynd: Birgir Þór Harðarson

Laun þing­manna hækk­uðu um 6,2 pró­sent um síð­ustu mán­aða­mót og eru orðin 1.285.411 krónur á mán­uði. Launa­hækk­unin nemur rúmum 75 þús­und króna en fyrir voru grunn­laun þing­manna 1.210.368 krónur. Það hafa verið mán­að­ar­laun þing­manna frá ára­mótum en þá hækk­uðu launin um 3,4 pró­sent. Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata vekur athygli á þessu á heima­síðu sinni.

Björn bendir á að grunn­laun þing­manna hafa hækkað um 16,7 pró­sent frá því að hann sett­ist inn á þing árið 2016. Kjararáð ákvað í októ­ber árið 2016 að hækka laun þing­manna um 44,3 pró­sent. Kjararáð var síðar leyst upp og ný lög um með­al­tal reglu­legra launa rík­is­starfs­manna voru inn­leidd. Björn segir nýja aðferðin vera góð þar sem hún bygg­ist ekki á geð­þótta­á­kvörð­unum.

Einföld stærðfræði ræður hækkunum en ekki geðþótti

„Ég vil byrja að taka það fram að mér finnst aðferðin sem á að vera notuð til þess að reikna þessar launa­breyt­ingar vera góð - en hún snýst um að laun þing­manna hækka um með­al­tal þess sem reglu­leg laun starfs­manna rík­is­ins hækka á árinu áður, sam­kvæmt útreikn­ingum Hag­stof­unnar. Hér er ekki um neina geð­þótta­á­kvörðun að ræða heldur á þetta að vera ein­föld stærð­fræði. Þessi hækkun er því að segja okkur að á síð­asta ári hækk­uðu laun rík­is­starfs­manna að með­al­tali um 6,2%,“ skrifar Björn.

Hann segir þetta fyr­ir­komu­lag gefa til­efni til nán­ari skoð­unar og ber í kjöl­farið saman launa­hækk­anir þing­manna við hækkun á líf­eyri almanna­trygg­inga. Hækkun líf­eyris fylgir spá um vísi­tölu neyslu­verðs eða launa­þróun kom­andi árs. Hækkun fyrir kom­andi ár er því ákveðin í fjár­lögum hvers árs.

„Síðustu þrjár hækk­anir líf­eyris voru 3,6%, 3,5% og 3,6%. Í töfl­unni hér fyrir neðan eru launa­hækk­anir þing­manna kjara­ráðs­á­kvörð­un­inni 2016. Munurinn á hækkun líf­eyris og launum þing­manna er hér aug­ljós.“

Björn ber einnig saman launa­hækk­anir þing­manna við launa­hækk­anir nokk­urra rík­is­starfs­stétta. Launa­hækk­anir hjá hjúkr­un­ar­fræð­ingum, sjúkra­liðum og fram­halds­skóla­kenn­urum er mis­mikil milli starfs­stétta og ára. „Að ein­hverju leyti er það eðli­legt en á sama tíma áhuga­vert hvar er munur og þá af hverju,“ skrifar Björn og segir núver­andi fyr­ir­komu­lag þing­far­ar­kaups vera sann­gjarnt, þó hann skilji að upp­hæð laun­anna sjálfra sé það kannski ekki. Núver­andi lög um þing­far­ar­kaup útvegi við­mið um reglu­leg laun rík­is­starfs­manna.

Meðaltekjur árið 2020 hálft þingfararkaup

Samkvæmt nýlegum tölum Hagstofu Íslands voru heild­ar­tekjur ein­stak­linga á Íslandi um 591 þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali. Miðgildi heild­ar­tekna var aftur á móti lægra, um 488 þús­und krónur á mán­uði og hafa þær hækkað árlega um þrjú pró­sent. Hæstar tekj­urnar höfðu ein­stak­lingar í ald­urs­hópnum 45 til 49 ára en tekjur þeirra námu um 786 þús­und krónum að með­al­tali í fyrra.

Til sam­an­burðar voru grunn­laun þing­manna um það bil tvö­faldar með­al­tekjur í fyrra, 1.170.569 krónur. Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar er þing­far­ar­kaup á pari við laun yfir­manna og hátt laun­aðra sér­fræð­inga. „Ég er ekk­ert endi­lega viss um að það sé rétt við­mið, en á móti kemur að þing­manna­starfið getur verið enda­laust og er alger­lega án yfir­vinnu. Sitt sýn­ist hverjum,“ skrifar Björn og vísar í óform­lega könnun sem hann gerði árið 2018. Svar­endum könn­un­ar­innar fannst laun þing­manna of há miðað við með­al­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

AðsentKjaramál

Jóhannes Hraunfjörð Karlsson

Fleygur í þjóð­ar­sál: Hug­leið­ingar um almanna­trygg­ingar, við­bót­ar­líf­eyri og dóm um líf­eyr­is­sjóði í árs­lok 2021

Jóhannes Hraun­fjörð Karlsson segir að núver­andi for­sæt­is­ráð­herra hafa fært almennt sið­ferði niður. Í hennar tíð hafi laun þing­manna og emb­ætt­is­manna marg­fald­ast og séu nú að auki vísi­tölu­bundin en slíkt tíðk­ist hvergi nema um lág­marks­laun.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár