Skipa hönnunarteymi fyrir fyrstu tvo áfanga Borgarlínu

Verk­efna­stofa Borg­ar­línu hefur skipað hönn­un­arteymi fyrir fyrstu tvo áfanga Borg­ar­línu. Vinna við hönnun er þegar hafin.

Á myndinni sjást fyrirhugaðir fyrstu tveir áfangar Borgarlínu. Rauð leið Hamraborg – Hlemmur og Græn leið Ártún – Hlemmur.
Á mynd­inni sjást fyr­ir­hug­aðir fyrstu tveir áfangar Borg­ar­línu. Rauð leið Hamra­borg – Hlemmur og Græn leið Ártún – Hlemmur. Mynd: Aðsend

Verk­efna­stofa Borg­ar­línu hefur skipað hönn­un­arteymi fyrir fyrstu tvo áfanga Borg­ar­línu. Hönn­una­s­rteymið mun vinna frum­drög að fyrstu fram­kvæmdum Borg­ar­línu. Um er að ræða tvær fram­kvæmda­lotur sem alls munu verða um 13 kíló­metrar. Hamra­borg – Hlemmur og Ártún – Hlemmur. Vinna við hönnun er þegar hafin og er gert ráð fyrir að fyrstu til­lögur verði til­búnar í vor.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Borg­ar­línu.

Hrafn­kell Ásólfur Proppé, verk­efna­stjóri Borg­ar­línu, segir það vera einkar ánægju­legt að ná þessu hönn­un­arteymi saman, allt sé þetta úrvals fólk og til­búið í verk­efnið. „Þegar afrakst­ur­inn liggur fyrir í vor þá mun fólks átta sig betur á hvernig Borg­ar­línan mun hafa jákvæðar breyt­ingar á borg­ar­um­hverfið með bættum aðstæðum fyrir almenn­ings­sam­göngur, gang­andi og hjólandi. Jafn­framt mun á þeim tíma liggja fyrir til­laga að leið­ar­kerfi, grein­ing á vagna­kostum m.t.t. lofts­lags­mála, grein­ing á rekst­ar­kostn­aði og mat á hag­rænum sem sam­fé­lags­legum þáttum.“

Samkvæmt Borg­ar­línu mun hönn­un­arteymið heyra undir Verk­efna­stofu Borg­ar­línu. Erlendir ráð­gjafar frá BRTPlan munu veita hönn­un­arteym­inu sér­fræði­ráð­gjöf á sviði BRT (Bus Rapid Transit) kerfa. Þá kemur fram í til­kynn­ing­unni að BRTPLan starfi í New York í Banda­ríkj­unum og hafi fyr­ir­tækið komið að skipu­lagi og fram­kvæmdum kerfa í Norður- og Suður-Ameríku, Asíu, Afríku og Evrópu. Við hönnun verði horft til sam­gangna, upp­bygg­ingar hús­næðis og mann­lífs. Leitað hafi verið til íslenskra verk­fræði­stofa og sveit­ar­fé­lag­ana á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eftir sér­fræð­ingum í hönn­un­arteymið sem er skipað eft­ir­far­andi sér­fræð­ingum.

Hönn­un­arteymi Borg­ar­línu er sem hér segir: Hall­björn R. Hall­björns­son, Vega­gerð­inni, Kristinn H. Guð­bjarts­son, Verkís, Ingólfur Ing­ólfs­son, Hnit, Svan­hildur Jóns­dóttir, VSÓ, Stefán Gunnar Thors, VSÓ, Edda Ívars­dóttir, Umhverfis- og skipu­lags­svið Reykja­víkur, Hrafn­kell Ásólfur Próppé, Verk­efna­stofu Borg­ar­línu (VB). Neðri röð: Birkir Ingi­bjarts­son, Umhverfis- og skipu­lags­svið Reykja­víkur, Hildur Inga Rós Raffnsöe, Umhverf­is­svið Kópavogs, Walter Hook BRTPlan. Bryndís Frið­riks­dóttir og Lilja G. Karls­dóttir báðar frá VB.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

PistillBorgarlína

Jökull Sólberg Auðunsson

Sjálf­keyr­andi vagnar hafa ekk­ert í Borg­ar­línu

Jökull Sólberg ber saman Borg­ar­línu og sjálf­keyr­andi bif­reiðar. „Í mörgum til­fellum er sami hópur afar svart­sýnn á fjár­hags­mat Borg­ar­línu­verk­efn­is­ins og vill veðja á tækni sem er bók­staf­lega ekki til, hvað þá búin að sanna sig við þau skil­yrði sem við gerum kröfu um á næstu árum eftir því sem borgin þétt­ist og fólki fjölgar.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár