Verkfallsaðgerðir munu fyrst og fremst hafa áhrif á þjónustu leikskóla í Reykjavík

Komi til þeirra verk­falla sem Efling boðar mun það hafa mest áhrif á leik­skóla- og vel­ferð­ar­þjón­ustu á vegum Reykja­vík­ur­borgar auk sorp­hirðu, vetr­ar­þjón­ustu og umhirðu borg­ar­lands­ins.

Efling hefur boðað til verk­falls­að­gerða næst­kom­andi þriðju­dag frá hádegi til mið­nættis en það er fyrsti dag­ur­inn í boð­uðum verk­falls­að­gerðum. Komi til verk­falla mun það hafa mest áhrif á leik­skóla- og vel­ferð­ar­þjón­ustu á vegum Reykja­vík­ur­borgar auk sorp­hirðu, vetr­ar­þjón­ustu og umhirðu borg­ar­lands­ins. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg í dag.

Þá segir að starfs­fólk Eflingar telji um 1.850 af um 9.000 starfs­mönnum borg­ar­innar. Efl­ing­ar­fólk starfi í fjöl­breyttum störfum á 129 starfs­stöðum hjá Reykja­vík­ur­borg. Um 1.000 starfi á skóla- og frí­stunda­sviði, þar af mik­ill meiri­hluti í leik­skól­unum. Þá starfi um 700 úr Eflingu við vel­ferð­ar­þjón­ustu borg­ar­innar.

Starfsfólk Eflingar í skólum um 1.000 talsins

[links]Samkvæmt Reykja­vík­ur­borg er starfs­fólk Eflingar í skólum á vegum Reykja­vík­ur­borgar um 1.000. Ef til vinnu­stöðv­unar kemur muni það fyrst og fremst leiða til skerð­ingar á þjón­ustu leik­skóla í Reykja­vík en þeir eru 63 tals­ins.

Misjafnt sé eftir leik­skólum hversu mikil skerð­ingin verður en ljóst sé að í mörgum skólum verður hún veru­leg. Mat­ar­þjón­usta verði með ólíkum hætti milli leik­skóla. Stjórn­endur leik­skól­anna muni upp­lýsa for­ráða­menn leik­skóla­barna um þá þjón­ustu sem verður í boði á meðan verk­falls­að­gerðum stendur.

[adspot]

Greiða ekki gjöld vegna verkfalla

For­eldrar greiða ekki gjöld fyrir þá daga sem börn geta ekki sótt leik­skóla vegna verk­falls eða þjón­ustu­skerð­ingar s.s. mat­ar­þjón­ustu, sam­kvæmt borg­inni.

Komi til verk­falls muni það hafa óveru­leg áhrif á grunn­skóla Reykja­víkur. Skóla­stjórn­endur grunn­skóla Reykja­víkur muni upp­lýsa nem­endur og for­ráða­menn nánar eftir því sem við á. Þjónusta frí­stunda­heim­ila verði óbreytt.

Sótt um undanþágu fyrir um 245 stöðugili

Þá kemur enn fremur fram í til­kynn­ing­unni að vel­ferð­ar­svið hafi sótt um und­an­þágu fyrir starfs­fólk Eflingar sem sinnir við­kvæm­ustu þjón­ust­unni sem snýr að umönnun fatl­aðs fólks, aldr­aðra á hjúkr­un­ar­heim­ilum og í heima­húsum, barna og þeirra sem þurfa á neyð­ar­þjón­ustu að halda í gisti­skýlum. Ekki verði hægt að tryggja heil­brigði og öryggi ein­stak­linga sem þurfa ákveðna umönnun eða úrræði ef und­an­þága fæst ekki.

Sótt hafi verið um und­an­þágu fyrir um 245 stöðu­gildi af um 450 hjá vel­ferð­ar­sviði á eft­ir­far­andi starfs­stöðum:

  • Tvö hjúkr­un­ar­heim­ili Drop­laug­ar­staðir (ásamt Foldabæ) og Selja­hlíð
  • 13 starfs­staðir þar sem rekið er hús­næði fyrir fatlað fólk (íbúða­kjarnar og her­bergja­sam­býli)
  • Sex starfs­staðir sem sinna mál­efnum heim­il­is­lausra með miklar og flóknar þjón­ustu­þarfir
  • Nauð­syn­leg örygg­is­þjón­usta á heim­ilum
  • Þjón­ustu­í­búðir á fimm stöðum
  • Fram­leiðslu­eld­hús Lind­ar­götu sem sér um að elda og pakka heim­sendum mat.
  • Vist­heim­ilið Mánaberg

Sorphirða frestast

„Fyr­ir­hugað verk­fall mun t.a.m. hafa þau áhrif á vel­ferð­ar­þjón­ustu borg­ar­innar að ekki verður boðið upp á mat og kaffi­veit­ingar í níu félags­mið­stöðvum fyrir aldr­aða auk þess sem heima­þjón­usta á borð við þrif frest­ast á verk­falls­dögum. Dagdvöl fyrir ein­stak­linga sem búa í heima­húsum sem rekin hefur verið í Þorra­seli mun loka en þar eru að jafn­aði 40 ein­stak­lingar sem njóta þjón­ust­unnar. Þá mun ekki verða hádeg­is­matur í boði fyrir fatlað fólk sem starfar og dvelur í Iðju­bergi og Gylfa­flöt,“ segir í til­kynn­ingu Reykja­vík­ur­borgar.

Jafnfram mun á boð­uðum verk­falls­dögum sorp­hirða frest­ast, sam­kvæmt borg­inni. Þá verði hreinsun í kringum grennd­ar­stöðvar ekki sinnt auk ýmissar umhirðu í borg­ar­land­inu. Öryggis- og bil­ana­vakt borg­ar­lands­ins fellur niður. Snjó­hreinsun og hálku­varnir á aðskildum hjóla­leiðum og stofn­ana­lóðum, til að mynda við leik og grunn­skóla fellur enn fremur niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár