Borgin hefur keypt af H. Pálsson fyrir 37 milljónir frá 2008

Reykja­vík­ur­borg hefur keypt þjón­ustu af H. Pálsson ehf. fyrir 37,2 millj­ónir króna frá árinu 2008 og út ágúst­mánuð 2014. Þjón­ustan sem um ræðir er umbrot og birt­ingar aug­lýs­inga, en allar aug­lýs­ingar sem borgin birtir í gegnum H. Pálsson ehf. birt­ast ein­vörð­ungu í Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu. Þorri við­skipt­anna er vegna birt­inga aug­lýs­inga á vegum umhverfis- og skipu­lags­sviðs. Skrif­stofu­stjóri þess segir ástæð­una fyrir því að við­skipt­unum sé beint til H. Pálsson ehf. vera þá að fyr­ir­tækið nái betri afsláttum á birt­ingum aug­lýs­inga hjá Frétta­blað­inu en borg­inni býðst. Samkvæmt atvinnu­greina­flokkum rík­is­skatt­stjóra er H. Pálsson ehf. „Heild­verslun með aðrar ótaldar vélar og tæki".

Aug­lýs­inga­kaup Reykja­vík­ur­borgar komust í sviðs­ljósið eftir að Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, borg­ar­ráðs­full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, lagði fram fyr­ir­spurn um þau í borg­ar­ráði. Hún fékk svör við fyr­ir­spurn­inni í síð­ustu viku. Þar kom í ljós að H.Pálsson ehf. var það fyr­ir­tæki, á eftir Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu, sem var í mestum við­skiptum við borg­ina þegar kom að aug­lýs­ingum og birt­ingum.

Viðskiptin byggja á gamalli hefð


Hákon Pálsson, fram­kvæmda­stjóri H. Pálsson ehf., segir að við­skipti fyr­ir­tæk­is­ins við Reykja­vík­ur­borg byggi á gam­alli hefð. Fyr­ir­tækið sé með nokkra aðra kúnna í birt­ingum og aug­lýs­inga­gerð en sá hópur sé ekki mjög stór. Hluti af starf­semi H.Pálsson snú­ist um birt­ingar. „Við erum hefð­bundið fyr­ir­tæki úr prent­iðn­aði. Það sem við erum að gera fyrir borg­ina eru lög­bundnar aug­lýs­ingar. Þessi við­skipti voru skoðuð fyrir nokkrum árum og borgin ákvað þá ekki að breyta neinu.“

Að sögn Hákonar fer þorri þeirrar upp­hæðar sem borgin greiðir til fyr­ir­tækis hans vegna birt­inga áfram til fjöl­miðl­anna sem birta aug­lýs­ing­arnar. „Við tökum mjög hóf­legt gjald fyrir upp­setn­ing­una. Megnið af þessum kostn­aði er birt­ingar.“

[caption id="attachment_8976" align="aligncenter" width="640"] Reykja­vík­ur­borg hefur sam­tals keypt þjón­ustu af H. Pálsson fyrir rúm­lega 37 millj­ónir króna frá árinu 2008.[/caption]

Engin gildandi samningur


Í svari Birgis. B. Sig­ur­jóns­sonar, fjár­mála­stjóra Reykja­vík­ur­borgar, við fyr­ir­spurn Kjarnans um magn við­skipta borg­ar­innar við H. Pálsson vegna birt­inga aug­lýs­inga, segir að „flest öll við­skipti eru að eiga sér stað frá skipu­lags­full­trúa á Umhverfis- og skipu­lags­sviði[...]eða yfir 90% við­skipta kom frá kostn­að­ar­stöðum sem til­heyra þeim“.

Aðspurður hvort við­skipti Reykja­vík­ur­borgar við H. Pálsson séu á grunni ein­hvers konar samn­ings svarar Birgir því neit­andi. „Engin gild­andi samn­ingur er á milli Reykja­vík­ur­borgar og H. Pálsson ehf. sem Inn­kaup­deild Reykja­vík­ur­borgar hefur staðið að; þetta fyr­ir­tæki er ekki aðili að ramma­samn­ingi við Reykja­vík­ur­borg né samn­ingi um afslátt­ar­kjör. Samkvæmt upp­lýs­ingum er verið að greiða fyrir birt­ingar í miðlum Frétta­blaðs­ins og Morg­un­blaðs­ins ásamt umbrotsvinnu við gerð aug­lýs­inga þessa,“ segir Birgir.

Ná betri afslætti hjá Fréttablaðinu


Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til umhverfis- og skipu­lags­sviðs Reykja­víkur vegna við­skipta þess við H. Pálsson. Í svari Niku­lásar Úlfars Mássonar, skrif­stofu­stjóra sviðs­ins, segir að H. Pálsson sé „aug­lýs­inga­stofa [sem] sér um aug­lýs­ingar í dag­blöðum fyrir umhverfis- og skipu­lags­svið og er milli­liður á milli sviðs­ins ann­ars vegar og Morg­un­blaðs­ins og Frétta­blaðs­ins hins­vegar. Ekki er til sér­stakur samn­ingur um þessa þjón­ustu en við­skiptin hafa gengið mjög vel í mörg ár.“

[caption id="attachment_9191" align="alignnone" width="640"] Að sögn skrif­stofu­stjóra hjá umhverfis- og skipu­lags­sviði borg­ar­innar fær H. Pálsson ehf. allt að 40 pró­sent afslátt á birt­ingum hjá Frétta­blað­inu, sem er meira en borg­inni býðst í beinum við­skiptum.[/caption]

Nikulás Úlfar segir að þjón­ustan sem H. Pálsson veitir sé að setja upp aug­lýs­ingar, passa upp á allar birt­ingar í dag­blöðum, fara yfir texta og dag­setn­ingar, senda PDF-skjal til yfir­lestrar áður en aug­lýs­ing er birt og senda úrklippur úr blöðum með reikn­ingum sem sendir eru á borg­ina.

Hann segir sviðið hafa verið í sam­skiptum við inn­kaupa­skrif­stofu vegna þess­ara við­skipta. „Þau hafa ekk­ert við þetta að athuga þar sem H. Pálsson hefur náð meiri afslætti við Frétta­blaðið vegna aug­lýs­inga fyrir sviðið heldur en Reykja­vík­ur­borg. Reykja­vík­ur­borg fær 20% afslátt af aug­lýs­ingum hjá báðum þessum aðilum en H. Pálsson fær 40% afslátt hjá Frétta­blað­inu en 20% afslátt hjá Morg­un­blað­inu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár