„Lúalegt bragð“ að ala á samviskubiti foreldra

Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands hefur sent borg­ar­ráði opið bréf vegna fyr­ir­hug­aðrar stytt­ingar opn­un­ar­tíma leik­skóla í Reykja­vík­ur­borg.

Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands mót­mælir harð­lega þeirri ákvörðun skóla- og frí­stunda­ráðs Reykja­vík­ur­borgar að mæla með stytt­ingu opn­un­ar­tíma leik­skóla borg­ar­innar, að þeim verði lokað klukkan 16:30 í stað 17:00. Þetta kemur fram í opnu bréfi félags­ins til borg­ar­ráðs.

Í bréf­inu minnir félagið á að öflug starf­semi leik­skóla sé for­senda þess að Ísland hafi náð svo langt sem raun ber vitni í að tryggja jafn­rétti kynj­anna. „Jafn­rétti kvenna og karla verður aldrei náð fyrr en konur hafa fjár­hags­legt sjálf­stæði, og konur ná ekki fjár­hags­legu sjálf­stæði ef þær eru bundnar inni á heim­ilum í ólaun­uðu starfi.“

Full þátt­taka kvenna á íslenskum vinnu­mark­aði sé ekki aðeins for­senda fyrir kven­frelsi, heldur einnig fyrir hag­sæld þjóð­ar­innar þar sem sam­fé­lagið reiði sig á að „við öll tökum virkan þátt í atvinnu­líf­inu og leggjum okkar af mörkum. Í stað þess að skerða þjón­ustu leik­skóla borg­ar­innar væri nær­tæk­ast ef Reykja­vík­ur­borg og sveit­ar­fé­lögin öll á land­inu tækju höndum saman og hækk­uðu laun alls starfs­fólks í leik­skól­unum, lang­flest konur, til muna og borgi þeim verð­skulduð laun.“

Mun líklega bitna frekar á konum en körlum

Einnig er bent á í bréf­inu að úti­vinn­andi for­eldrar vinni flestir fullan vinnu­dag til að geta lagt sitt til sam­fé­lags­ins og í mörgum til­fellum til þess að eiga til hnífs og skeiðar. For­eldrar sé alla jafna að gera sitt allra besta til að láta púslu­spilið ganga upp með það að mark­miði að geta varið sem mestum gæða­tíma með börnum sínum. Að ala á sam­visku­biti for­eldra varð­andi lengd þess tíma sem börnin eru í leik­skóla á hverjum degi sé lúa­legt bragð sem bein­ist meira að mæðrum en feðrum, þar sem það virð­ist enn vera svo að þegar taka þarf ákvörðun um að skera niður vinnu til að sinna börnum séu það mæður í flestum til­vikum sem taka það á sig með til­heyr­andi tekju­skerð­ingu.

„Sú ákvörðun að stytta opn­un­ar­tíma leik­skóla Reykja­víkur er lík­leg til að bitna mun meira á konum en á körlum. Jafnt fæð­ing­ar­or­lof og dag­vistun barna tryggir jafn­ræði atvinnu­þátt­töku kvenna og karla og eykur hag­sæld hér á landi. Leik­skólar eru einn lyk­il­þátt­ur­inn til að tryggja jafn­rétti kynj­anna. Með því að skerða dag­vist­un­ar­úr­ræði er skref tekið aft­urá­bak í jafn­rétt­is­bar­átt­unni,“ segir í bréfi Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands.

Félagið hvetur enn fremur borg­ar­ráð til að hafna þess­ari til­lögu og ræða í kjöl­farið hvernig Reykja­vík­ur­borg geti unnið að „raun­veru­legum kjara­bótum og bættu starfs­um­hverfi fyrir starfs­fólk í leik­skólum borg­ar­innar og á sama tíma brúað bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og dag­vist­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár