Dagur: Framkvæmdirnar í Nauthólsvík alvarlegt mál

Borg­ar­stjóri Reykja­víkur segir fregnir af ein­staka reikn­ingum og verk­þáttum und­an­farna daga í Bragga-mál­inu kalla á skýr­ingar og und­ir­strika mik­il­vægi þess að málið sé komið í hendur innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir að end­ur­gerð hús­anna og bragg­ans í Naut­hóls­vík sé alvar­legt dæmi um fram­kvæmd sem fer langt fram úr áætlun, í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni í dag.

„Fregnir af ein­staka reikn­ingum og verk­þáttum und­an­farna daga kalla aug­ljós­lega á skýr­ingar og und­ir­strika mik­il­vægi þess að málið er komið í hendur innri end­ur­skoð­unar Reykja­vík­ur­borgar. Til að und­ir­strika alvöru máls­ins leggur meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn fram til­lögu til sam­þykktar í borg­ar­ráði á morgun til að árétta að eng­inn angi máls­ins skal vera und­an­skil­inn og allt skal upp­lýst í þessu máli frá upp­hafi til enda,“ segir hann í færsl­unni.

Full­trúar meiri­hlut­ans í borg­ar­ráði ætla á morgun að leggja fram til­lögu um að innri end­ur­skoðun Reykja­vík­ur­borgar verði falið að ráð­ast í heild­ar­út­tekt á öllu því ferli sem end­ur­gerð bragg­ans við Naut­hóls­veg 100 fól í sér.

Mikið hefur verið fjallað um Bragga-málið und­an­farið en fram­kvæmd­irnar fóru langt fram úr kostn­að­ar­á­ætlun. Þær hafa nú kostað rúm­lega 400 millj­ónir en upp­haf­leg var gert ráð fyrir að kostn­að­ur­inn yrði um 158 millj­ónir. Þetta kemur fram í frétt RÚV um málið.

Meiri­hlut­inn ákvað á fundi borg­ar­stjórnar í síð­ustu viku að bragg­inn yrði hluti af úttekt innri end­ur­skoð­unar á verk­efnum í tengslum við útboð og inn­kaup. Minni­hlut­inn mót­mælti þessu og taldi brýnt að óháð rann­sókn færi fram.

Á fundi borg­ar­ráðs á morgun verður lögð fram sér­stök til­laga um að innri end­ur­skoðun verði falið að ráð­ast í sér­staka heild­ar­út­tekt á end­ur­gerð bragg­ans. „Enginn angi máls­ins skal vera und­an­skil­inn og allt skal upp­lýst í þessu máli frá upp­hafi til enda,“ segir í til­lög­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár