Borgin rekin með hagnaði á næsta ári

Samkvæmt nýrri fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar mun fjár­hagur borg­ar­innar fara batn­andi næstu fimm árin þrátt fyrir mörg og stór verk­efni. En gert er ráð fyrir að borg­ar­sjóður skili 3,6 millj­arða afgangi árið 2019.

Í nýrri fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar fyrir árið 2019 er gert ráð fyrir að borg­ar­sjóður skili 3,6 millj­arða afgangi árið 2019 en jákvæð nið­ur­staða sam­stæðu er áætluð 12,8 millj­arðar króna eftir fjár­magnsliði. Gert er ráð fyrir batn­andi afkomu borg­ar­innar næstu fimm ár. Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg.

Í fjár­hags­á­ætl­un­inni til næstu fimm ára eru m.a. fyrstu áfangar Borg­ar­línu fjár­magn­aðir. Fjölga á NPA samn­ingum innan borg­ar­innar sem og félags­legum íbúðum. Ásamt því er aukið fjár­magn sett í að brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla. Samkvæmt borg­ar­stjóri ber fjár­hags­á­ætl­unin þess skýr merki að Reykja­vík er í milli sókn en til stendur að borgin fjár­festi fyrir 18,8 millj­arði á næsta ári.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir Reykja­vík­ur­borg vera í miklum vexti og það sjá­ist greini­lega á verk­efn­unum í fjár­hags­á­ætlun og fjár­fest­ing­ar­á­ætlun en aukin fram­lög séu til skóla­mála og vel­ferð­ar­mála. Hann segir að fólki fjölgi í borg­inni á hverju ári sem þýðir að borgin þurfi að vaxa, byggja þarf nýjar íbúðir sem kallar á að borgin fjár­festi í innviðum eins og götum, torgum, lögnum, skólum og íþrótta­mann­virkjum auk þjón­ustu í hverfum.

Fjölgun félagsíbúða, uppbygging íþróttamannvirkja og fyrstu skref í átt að Borgarlínu

Í fjár­hags­á­ætl­un­inni er gert ráð fyrir umtals­verðri fjölgun félags­legra íbúða á næstu fimm ár á vegum Félags­bú­staða. Auk þess mun borgin leggja tals­verða fjár­muni í stofn­fram­lög til upp­bygg­ingar íbúða til félaga sem ekki eru rekin í hagn­að­ar­skyni segir í til­kynn­ing­unni. Einnig er stefnt er að mik­illi upp­bygg­ingu í Úlf­arsár­dal en þar eiga rísa íþrótta­hús, menn­ing­ar­mið­stöð og sund­laug. Einnig á að byggja íþrótta­mann­virki í Breið­holti og Graf­ar­vogi.

„Í fyrsta lagi erum við að tryggja fjár­magn til að brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla og til nýrra NPA samn­inga við fatlað fólk. Í öðru lagi erum við í mörgum grænum fjár­fest­ingum á grund­velli aðal­skipu­lags­ins en sú stærsta á þeim vett­vangi er Borg­ar­línan. Í þriðja lagi heldur upp­bygg­ing íþrótta­mann­virkja í aust­ur­hluta borg­ar­innar áfram og fjórða lagi höldum við áfram að efla vel­ferð­ar­þjón­ustu og auka fram­lög til leik- og grunn­skóla í borg­inni. Við höldum líka gjöldum áfram í lág­marki þegar kemur að þjón­ustu borg­ar­innar þannig að það verði áfram hag­stætt fyrir barna­fjöl­skyldur, unga sem aldna að búa í Reykja­vík,“ segir Dagur B. Egg­erts­son.

Fjárhagur batnar enn frekar á næstu árum

Samkvæmt til­kynn­ing­unni er jafn­vægi í rekstri borg­ar­innar, bæði hjá fyr­ir­tækjum hennar og í rekstri A-hlut­ans þótt ýmis blik sé á lofti í efna­hags­málum, en A-hlut­inn heldur utan um hinn eig­in­lega rekstur fags­viða borg­ar­innar. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar kemur fram að skulda­hlut­fall A-hluta borg­ar­innar er langt fyrir neðan við­mið sveita­stjórn­ar­laga.

Rekstr­ar­tekjur A-hluta eru áætl­aðir 127,7 millj­arðar króna en þar af eru skatt­tekjur tæpir 100,8 millj­arðar. Rekstr­ar­út­gjöld A-hluta eru áætluð 118,7 millj­arðar, þar af laun og launa­tengd gjöld 69,0 millj­arðar, breyt­ing líf­eyr­is­skuld­bind­inga 4,6 millj­arðar og annar rekstr­ar­kostn­aður 45,1 millj­arðar.

Framlegð sam­stæð­unnar (EBITDA sem hlut­fall af tekjum) er áætluð 13,7 pró­sent árið 2019 og hækkar í 16,5 pró­sent sam­kvæmt fimm ára áætlun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár