Foreldrar beðnir um að stinga upp á húsnæði sem hentar undir leikskólastarf

Skrif­stofu­stjóri leik­skóla­hluta skóla- og frí­stunda­sviðs óskar eftir upp­á­stungum frá for­eldrum barna á Granda­borg um hús­næði sem rúmar alla starf­semi leik­skól­ans. Leik­skól­anum hefur verið lokað vegna raka- og myglu­skemmda og skólp­meng­unar.

Leikskólanum Grandaborg við Boðagranda hefur verið lokað vegna myglu- og rakaskemmda og skólpmengunar. Skólinn starfar á þremur mismunandi stöðum í borginni en borgin hefur óskað eftir uppástungum frá foreldrum um hentungt leikskólahúsnæði.
Leik­skól­anum Granda­borg við Boða­granda hefur verið lokað vegna myglu- og raka­skemmda og skólp­meng­unar. Skólinn starfar á þremur mis­mun­andi stöðum í borg­inni en borgin hefur óskað eftir upp­á­stungum frá for­eldrum um hentungt leik­skóla­hús­næði. Mynd: Reykjavíkurborg

Skóla- og frí­stunda­svið Reykja­vík­ur­borgar hefur beðið for­eldra barna á leik­skól­anum Granda­borg að stinga upp á hús­næði sem hentar fyrir alla starf­semi leik­skól­ans.

Granda­borg í vest­urbæ Reykja­víkur er einn 24 leik- og grunn­skóla borg­ar­innar þar sem greinst hefur mygla og einn fimm skóla sem þurft hefur að flytja starf­semi sína annað.

Leik­skól­anum var lokað í byrjun októ­ber en grunur um „slæma inni­vist“, eins og það er orðað í pósti til for­eldra og for­ráða­manna, kom fyrst upp sum­arið 2021. Þá var ráð­ist í end­ur­nýjun á hús­næði skól­ans. Þegar starfs­fólk sneri aftur eftir sum­ar­frí í ágúst síð­ast­liðnum fann hluti þeirra fyrir ein­kennum sem rekja má til myglu- og raka­skemmda. Eftir úttekt heil­brigð­is­eft­ir­lits borg­ar­innar og verk­fræði­stof­unnar Eflu kom í ljós að auk raka­skemmda fór skól­plögn í sundur undir nýrra húsi leik­skól­ans og mengun greind­ist í jarð­vegi.

Granda­borg, auk Haga­skóla, hefur þurft að skipta starf­semi sinni í þrennt. Yngsta deild leik­skól­ans er með starf­semi í Ævin­týra­borg við Naut­hóls­veg og elsta deildin var flutt í Ævin­týra­borg á Egg­erts­götu. Þá eru tvær deildir leik­skól­ans með aðsetur á neðstu hæð í gamla Morg­un­blaðs­hús­inu í Kringl­unni þar sem leik­skól­inn Sunnuás hefur einnig starfað tíma­bundið.

„Allar ábendingar eru vel þegnar!“

Á upp­lýs­inga­fundi með for­eldrum í byrjun októ­ber kom fram að ekki liggur fyrir hversu langan tíma fram­kvæmdir við Granda­borg munu taka. Áætlað var að boða til ann­ars upp­lýs­inga­fundar um miðjan mán­uð­inn en svo hefur ekki verið gert.

Hvorki skóla­stjórn­endur né for­eldrar hafa fengið fund­ar­boð frá borg­inni en í pósti sem Ólafur Brynjar Bjarka­son, skrif­stofu­stjóri leik­skóla­hluta fag­skrif­stofu skóla- og frí­stunda­sviðs, sendi for­eldrum og for­ráða­mönnum á þriðju­dag er óskað eftir til­lögum frá for­eldrum um hús­næði sem gæti hentað fyrir alla starf­semi leik­skól­ans.

Í póst­inum segir að ýmsir mögu­leikar varð­andi hús­næði hafi verið skoð­aðir, til að mynda JL-húsið, hús­næði á Fiski­slóð og húsa­kostur KR en ekk­ert af þeim hafi komið til greina. Í póst­inum segir að borg­inni sé þröngur stakkur snið­inn þegar kemur að hús­næði sem upp­fyllir kröfur um leik­skóla­starf. For­eldrar eru því endi­lega beðnir um að láta vita ef þau hafa hug­myndir um hús­næði sem mögu­lega væri hægt að nota. „Allar ábend­ingar eru vel þegnar!“ segir í póst­inum.

Áætlað er að funda með for­eldrum og for­ráða­mönnum á ný þegar frek­ari upp­lýs­ingar um húsa­kost eða fram­kvæmda­á­ætlun liggja fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár