Oddvitar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar í Reykjavík ætla að kynna nýjan meirihluta í borginni og málefnasamning flokkanna á sameiginlegum blaðamannafundi á bak við stöðvarstjórahúsið í Elliðaárdal. Frá þessu greinir Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, í tilkynningu til fjölmiðla. Fundurinn fer fram utandyra.
[links]Meirihlutaviðræður Samfylkingar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar hafa staðið yfir síðan 24. maí, 10 dögum eftir kosningar.
Í upphafi viðræðnanna sagði Einar að öll áhersla yrði lögð á málefni áður en til verkaskiptingar kæmi. Hann hefur ekki gert kröfu um borgarstjórastólinn og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagðist ekki ganga ilt meirihlutaviðræðanna með neina úrslitakosti.
[adspot]Fyrsti borgarstjórnarfundur eftir kosningar er á morgun, þriðjudag, og hafa oddvitar flokkanna lýst því yfir í fjölmiðlum síðustu daga að unnið hefur verið að því að ljúka málefnasamningi og verkaskiptingu fyrir þann fund.
Það virðist hafa tekist og verður afraksturinn kynntur í Elliðaárdal í dag, þar sem meirihlutaviðræðurnar hafa staðið yfir síðustu daga.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir