Upphafleg umsögn borgarinnar um afglæpavæðingu „óþarflega neikvæð“

Borg­ar­full­trúi Pírata óskaði eftir að Reykjvík­ur­borg upp­færði umsögn sína um frum­varp um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta þar sem ekki kom nógu skýrt fram að borgin styðji frum­varpið.

Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata.
Alex­andra Briem, borg­ar­full­trúi Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Reykja­vík­ur­borg hefur skilað inn upp­færðri umsögn um frum­varp um afglæpa­væð­ingu vörslu neyslu­skammta að frum­kvæði Alexöndru Briem, borg­ar­full­trúa Pírata.

Alex­andra segir í sam­tali við Kjarnann að upp­haf­leg umsögn borg­ar­innar, sem er und­ir­rituð af borg­ar­rit­ara og unnin í sam­ráði við sam­ráðs­hóp Reykja­vík­ur­borgar um for­varnir og mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­skrif­stofu borg­ar­innar, fari ekki saman við stefnu borg­ar­innar um skaða­minnkun í vel­ferð­ar­málum.

„Við hljótum að styðja þetta frum­varp. Það er að minnsta kosti gall­hörð afstaða Pírata og ég myndi ekki sætta mig við ef það ætti að breyta því án þess að ræða við mig,“ segir Alex­andra.

Í upp­haf­legri umsögn borg­ar­innar, sem hefur nú verið fjar­lægð af vef Alþingis, eru gerðar nokkrar athuga­semdir við frum­varpið. Í umsögn­inni segir meðal ann­ars að gera megi ráð fyrir að frum­varpið, verði það að lögum, muni bæta stöðu ein­hverra vímu­efna­neyt­enda en lík­legt sé að breyt­ing­arnar muni hafa áhrif á allt sam­fé­lagið. Borgin lýsir yfir áhyggjum af nei­kvæðum áhrifum á börn, ung­linga og for­eldra þeirra.

Þá segir borgin það gagn­rýn­is­vert að ekki sé sett fram heild­stæð stefna um for­varnir og aukna heil­brigð­is­þjón­ustu heldur eigi að bíða og sjá hver áhrif laga­breyt­ing­ar­innar verði.

Í umsögn­inni metur borgin það svo að með afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta megi gera ráð fyrir að aðgengi að vímu­efnum verði meira.

„Þó að það sé jákvætt að draga úr for­dómum og nei­kvæðu við­horfi til hópa sem neyta vímu­efna er áhyggju­efni að það hafi einnig jákvæð áhrif til vÍmu­efn­anna sjálfra í sam­fé­lag­inu og þá sér­stak­lega meðal ung­linga. Það hefur verið reynslan að jákvæð­ari við­horf geri það að verkum að fleiri prufi að nota efnin, þá bæði full­orðnir og ung­lingar,“ segir í upp­haf­legu umsögn­inni, sem Alex­andra segir að hafi verið óþarf­lega nei­kvæð og lík­lega gætti mis­skiln­ings um til­gang lög­gjaf­ar­innar.

Snýst um hvernig komið er fram við fólk í neyslu

„Þetta fjallar ekki um lög­leið­ingu almennt, þetta er ekki for­varna­mál og sam­an­burður við áfeng­is­kaupa­aldur er svo­lítið út úr kú líka þar sem þetta fjallar ekki um það heldur. Þetta er ekki lög­leið­ing­ar­mál heldur snýst þetta um hvernig við höndlum fólk sem er í neyslu og hvort kerfið líti á þau sem glæpa­menn eða fólk sem þarn­ast félags­legrar þjón­ustu og heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Alex­andra segir að umsagn­ar­ferlið hafi ekki verið nógu skýrt. „Það var feng­inn hópur til að veita umsögn sem fór svo út en þetta fór aldrei fyrir póli­tík­ina. Við þurfum aðeins að skoða það í fram­tíð­inni.“

Alex­andra kom að upp­færðri umsögn sem send var til vel­ferð­ar­nefndar Alþingis í gær. Þar er tekið fram að Reykja­vík­ur­borg styður frum­varp til afglæpa­væð­ingar vörslu neyslu­skammta, „enda er það í góðu sam­ræmi við sam­þykkta stefnu­mörkun borg­ar­innar þar sem áhersla er lögð á aðferða­fræði skaða­minnk­unar“.

Þau sem eru í nánari samskiptum við notendur fái sæti í starfshópi ráðherra

Í umsögn­inni er gerð athuga­semd við sam­setn­ingu starfs­hóps sem lagt er til að heil­brigð­is­ráð­herra skipi til að hafa eft­ir­lit með áhrifum og ávinn­ingi af afglæpa­væð­ingu vörslu neyslu­skammta vímu­efna. Borgin leggur til að full­trúar Rót­ar­innar - félags um vel­ferð og lífs­gæði kvenna, Frú Ragn­heiðar sem vinnur í miklu návígi við hóp vímu­efna­neyt­enda og VOR teymis vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar sem aðstoðar fólk sem er heim­il­is­laust og með vímu­efna­vanda og geð­vanda, eigi sæti í starfs­hópnum vegna inn­sýnar þeirra í áhrif frum­varps­ins.

Þá bendir borgin á að verði frum­varpið sam­þykkt er um nokkra stefnu­breyt­ingu að ræða og telur borgin eðli­legt að í kjöl­farið verði stefna stjórn­valda í mál­efnum áfengis- og vímu­efna end­ur­skoðuð heild­rænt til að gæta sam­ræmis. Einnig færi vel á að gera áhættu­mat með til­liti til barna og ung­linga.

Frum­varpið var lagt fram á Alþingi í síð­asta mán­uði og er þetta í fjórða sinn sem Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, leggur fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta.

[links]Svan­­­dís Svav­­­­­ar­s­dótt­ir, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, lagði fram frum­varp um afglæpa­væð­ingu neyslu­­­skammta í apríl 2021 og byggði það að hluta til á vinnu við og umsögnum um frum­varp Hall­­­dóru og með­­­­­flutn­ings­­­fólks henn­­­ar. Til stóð að end­ur­flytja frum­varpið með breyt­ingum af Willum Þór Þórs­syni heil­brigð­is­ráð­herra á síð­asta þingi. Frum­varpið var hins vegar fellt niður af þing­mála­skrá í mars.

Í svari ráðu­­­neyt­is­ins til Kjarn­ans í vor vegna ákvörð­un­­­ar­innar sagði að ráð­herra hefði ákveðið að vinna að frek­­­ari útfærslu á frum­varp­inu, meðal ann­­­ars með því að skil­­­greina hug­takið neyslu­­­skammt­­­ur. Því hafi verið skip­aður starfs­hóp­ur. Hann hefur verið að störfum frá því í febr­úar en ekki enn skilað til­lögum.

Kristján Ernir Björg­vins­son á sæti í hópnum og sagði hann í sam­tali við Kjarnann um síð­ustu helgi að hann væri óviss hvort hópnum tak­ist ætl­un­ar­verk sitt, að skil­greina neyslu­skammta, ekki síst vegna tregðu lög­regl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár