Málefnin rædd fyrst og verkaskipting í lokin

Oddvitar Fram­sókn­ar­flokks, Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar í Reykja­vík lýsa öll yfir ánægju með við­ræður um myndun meiri­hluta í Borg­ar­stjórn Reykja­víkur sem eru form­lega hafnar. Öll áhersla verður lögð á mál­efni áður en verka­skipt­ing verður rædd.

Meirihlutaviðræður Viðreisnar, Framsóknar, Pírata og Samfylkingar í Reykjavík eru hafnar.
Meiri­hluta­við­ræður Við­reisnar, Fram­sóknar, Pírata og Sam­fylk­ingar í Reykja­vík eru hafnar. Mynd: Bára Huld Beck

Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík, segir að mál­efnin muni ráða för í meiri­hluta­við­ræðum Fram­sókn­ar­flokks við þrjá flokka frá­far­andi meiri­hluta í borg­inni: Sam­fylk­ing­una, Pírata og Viðreisn.

„Ég vil segja fyrir mitt leyti að ég er ánægður með að hefja þessar við­ræður. Við sjáum hvert þær leiða,“ sagði Einar í upp­hafi blaða­manna­fundar flokk­anna fjög­urra í Grósku í dag. Hann segir Framsókn fara inn í við­ræð­urnar með umboð til breyt­inga og seg­ist hann skynja vilja hjá öðrum flokkum til þess.

Aðspurð um hversu langan tíma flokk­arnir ætli að gefa sér í við­ræð­urnar var lítið um skýr svör en Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri sagði að flokk­arnir líti til tveggja dag­setn­inga í því sam­hengi. Annars vegar 1. júní þegar umboð núver­andi meiri­hluta rennur út og hins vegar 7. júní þegar fyrsti fundur nýrrar borg­ar­stjórnar fer fram. „Við horfum á þessar tvær dag­setn­ingar en ætlum ekki að setja okkur óþarf­lega skamman tíma,“ sagði Dagur. Þetta byrjar allt með sam­tal­inu, bætti Einar

[links]Einar boð­aði bak­land sitt á fund í gær­kvöldi þar sem það sem virð­ist vera eini mög­u­­leik­inn í stöð­unni sem stend­ur var rædd­ur: meiri­hluti með Sam­­fylk­ingu, Pírötum og Við­reisn­­. Heim­ildir Kjarn­ans herma að Fram­sókn muni gera þá kröfu að Einar verði borg­ar­stjóri allt kjör­tíma­bilið ef af sam­starf­inu verði.

Dagur setur flokkunum ekki úrslitakosti um borgarstjórastól

Dagur seg­ist ekki hafa gengið til meiri­hluta­við­ræðna sem nú eru hafnar með neina úrslita­kosti. „En við höfum sam­mælst um að ræða mál­efnin fyrst og verka­skipt­ing­una í lokin,“ sagði Dagur. Hann segir mál­efna­leg sam­leið að finna víða innan flokk­anna. „Þar sem er sér­staða þurfum við að ræða sér­stak­lega. Ég kvíði því alls ekki, það getur komið eitt­hvað áhuga­vert út úr þeim sam­ræðum.“

Einar vill ekki setja flokk­unum í meiri­hluta­við­ræð­unum afar­kosti um að fara fram á borg­ar­stjóra­stól­inn. Hann seg­ist vita að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn geri kröfu um það en bendir á að stu’nings­fólk ann­arra flokka vilji líka að odd­vitar þeirra gegni emb­ætti borg­ar­stjóra.

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pirata, segir það hafa verið gagnegt, upp­byggi­legt og lýð­ræð­is­legt að hafa fjóra flokka í meiri­hluta. Hún segir ekki tíma­bært að ræða óska­hlut­verk. „Ég held að við finnum ein­hverja ásætt­an­lega lend­ingu fyrir okkur öll.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár