Framsókn býður Samfylkingu, Pírötum og Viðreisn til viðræðna um myndun meirihluta

Bandalag þriggja flokka mun ræða við Framsókn um myndun meiri­hluta í Reykja­vík sem myndi hafa 13 af 23 borg­ar­full­trúum á bak­við sig. Boðað hefur verið til blaða­manna­fundar klukkan 11 til að svara spurn­ingum fjöl­miðla um málið.

Einar Þorsteinsson og Þordís Lóa Þórhallsdóttir leiða tvö af þeim fjórum framboðum sem munu ræða saman um myndun meirihluta.
Einar Þor­steins­son og Þordís Lóa Þór­halls­dóttir leiða tvö af þeim fjórum fram­boðum sem munu ræða saman um myndun meiri­hluta. Mynd: Bára Huld Beck

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur boðið Sam­fylk­ingu, Pírötum og Viðreisn til form­legra við­ræðna um myndun meiri­hluta í Borg­ar­stjórn Reykja­víkur. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Einar Þor­steins­son, odd­viti flokks­ins, sendi frá sér rétt í þessu. Þar er auk þess boðað til blaða­manna­fundar í Grósku kl. 11:00 í dag þar sem odd­vitar flokk­anna verða til­búnir að svara spurn­ingum fjöl­miðla.

Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar, gaf út til­kynn­ingu á sunnu­dag þar sem hún sagði það alveg kýrt að flokkur hennar sé í banda­lagi með Pírötum og Sam­­fylk­ing­unni hvað varðar meiri­hluta­við­ræður í kjöl­far borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­anna og að flokk­­ur­inn ætli ekki að leita ann­að. Banda­lagið sé aug­­ljós kostur þegar mál­efna­á­herslur Við­reisnar í kosn­inga­bar­átt­unni séu skoð­að­­ar, sér­­stak­­lega hvað varðar skipu­lags-, sam­göngu- og lofts­lags­­mál. Við­reisn vilji láta reyna á að banda­lagið hefji meiri­hluta­við­ræður við Fram­sókn­ar­flokk­inn, en slíkur meiri­hluti hefði tæp­lega 56 pró­sent atkvæða á bak­við sig og 13 af 23 borg­ar­full­trú­um.

Í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í gær­morgun bætti Þór­dís Lóa við að þótt meiri­hlut­inn hafi fallið í síð­ustu kosn­ing­um, mætti segja að minni­hlut­inn hafi líka gert það. Stjórn­ar­flokk­arnir hafi tapað tveimur mönnum en stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir þrem­ur. „Það er ekki verið að kjósa þá, þeir falla meira en meiri­hlut­inn og þegar við tökum þetta inn þá hugsa ég; hvað er það sem að borg­ar­búar voru að kjósa? Þeir voru að kjósa nýtt afl sann­ar­lega en þeir voru að kjósa eftir stórum lín­um.“

Einar Þor­steins­son boð­aði bak­land sitt á fund í gær­kvöldi þar sem það sem virð­ist vera eini mögu­leik­inn í stöð­unni sem stend­ur var ræddur: meiri­hluti með Sam­fylk­ingu, Pírötum og Við­reisn­. Heim­ildir Kjarnans herma að Framsókn muni gera þá kröfu að Einar verði borg­ar­stjóri allt kjör­tíma­bilið ef af sam­starf­inu verði.

Sagði „þrjóskubandalag“ stunda klækjastjórnmál

Hildur Björns­dótt­ir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, brást við tíð­ind­unum í gær með því að setja stöðu­upp­færslu á Facebook. Þar sagði hún að það sem komið hafi upp úr kjör­köss­unum í kosn­ing­unum fyrir rúmri viku síðan hafi verið skýrt ákall á breytt stjórn­mál. Að hennar mati voru nið­ur­stöð­urnar skýr­ar. Sitj­andi meiri­hluti féll og þeir flokkar sem stóðu utan hans fengu nálægt 60 pró­sent atkvæða.

[adspot]Þetta telur Hildur hafa verið ákall kjós­enda eftir breyt­ingum og að þeir hafi sömu­leiðis verið að hafna klækja­stjórn­málum úr Ráð­húsi Reykja­vík­ur. „Ná­kvæm­lega sömu klækja­stjórn­málum og þrjósku­banda­lag Sam­fylk­ing­ar, Við­reisnar og Pírata beitir nú við meiri­hluta­við­ræð­ur. Banda­lagið þráskall­ast við að halda völdum sem kjós­endur vilja ekki fela þeim lengur – með úti­lok­unum og þving­un­um. Það getur tæp­lega talist upp­taktur að far­sælu sam­starfi fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn.“

[links]Án Við­reisnar á Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ekki leið í meiri­hluta en Sam­fylk­ing­in, Píratar og Sós­í­alista­flokk­ur­inn hafa allir úti­lokað sam­starf við flokk­inn og Vinstri græn hafa gefið það út að þau muni ekki setj­ast í meiri­hluta eftir að hafa beðið afhroð í síð­ustu kosn­ing­um. Án Við­reisnar getur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ein­ungis náð ell­efu borg­ar­full­trúum með sam­starfi við Fram­sókn og Flokk fólks­ins, sem dugir ekki í meiri­hluta.

Hildur er þó ekki sam­mála því mati Einars Þor­steins­sonar að Framsókn standi ein­ungis frammi fyrir einum mögu­leika. Í stöðu­upp­færslu sinni sagði hún að það þurfi eng­inn að und­ir­gang­ast þær þving­anir sem banda­lagið bjóði upp á að hennar mati. „Það eru margir mögu­leikar á borð­inu við myndun meiri­hluta. Ekki síst ef flokk­arnir velja að svara ákalli kjós­enda eftir mál­efna­legum stjórn­málum og auk­inni sam­vinnu um mik­il­væg fram­fara­mál. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er reiðu­bú­inn til sam­tals við alla flokka um verk­efni næsta kjör­tíma­bils. Við gengum óbundin til kosn­inga, boð­uðum breyt­ingar og vorum heið­ar­leg gagn­vart okkar kjós­end­um. Nú reynir á Fram­sókn­ar­flokk­inn – og auð­vitað alla flokka innan borg­ar­stjórnar - að hafa hug­rekkið til að svara kröfu kjós­enda um breytt stjórn­mál.“

Einar sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær­kvöldi að hann skildi vel að Hildur væri súr yfir því að nokkrir flokkar hefðu úti­lokað sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. „Hún þarf kannski bara að horfast í augu við það og finna út úr því hvers vegna það er.“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár