Hildur „þurfti að leita ráðgjafar með nokkur smáatriði“ vegna hagsmunaskráningar

Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn vinnur að upp­færslu á hags­muna­skrán­ingu sem borg­ar­full­trúi. Hún sagði sig nýverið úr stjórn Orku­veitu Reykja­víkur til að koma í veg fyrir mögu­lega hags­muna­á­rekstra þar sem eig­in­maður hennar situr í stjórn Sýnar.

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, vinnur að því að upp­færa hags­muna­skrán­ingu sína sem borg­ar­full­trúi í sam­starfi við skrif­stofu borg­ar­stjórnar. Hún seg­ist í sam­tali við Kjarnann hafa þurft að „leita ráð­gjafar með nokkur smá­at­riði.“

Hildur sagði sig nýverið úr stjórn Orku­veitu Reykja­víkur (OR) og færði sig yfir í stjórn Faxa­flóa­hafna. Í sam­tali við mbl.is sagði hún að það hafi lengi staðið til að hún myndi færa sig úr stjórn OR í stjórn Faxa­flóa­hafna á nýju kjör­tíma­bili en að hún hafi látið verða af því nú til að koma í veg fyrir mögu­lega hags­muna­á­rekstra sem gætu tengst kjöri eig­in­manns hennar, Jóns Skafta­sonar, í stjórn Sýnar, sem er stór leik­andi á fjöl­miðla­mark­aði.

Í upp­hafi vik­unnar var greint frá því að Sýn og Ljós­leið­ar­inn ehf., fjar­skipta­fyr­ir­tæki í eigu Orku­veit­unnar sem hefur verið í sam­keppni við Sýn, hafi gert samn­ing um kaup á stofn­n­eti Sýnar. Kaup­verðið er þrír millj­arðar króna. Auk þess gerðu fyr­ir­tækin þjón­ustu­samn­ing til tíu ára.

Jón var kjör­inn í stjórn Sýnar 31. ágúst síð­ast­lið­inn á hlut­hafa­fundi sem var boð­aður af kröfu félags­ins Gavia Invest, sem keypti í sumar rúm­lega 16 pró­senta hlut í Sýn, að mestu af félagi í eigu Heiðars Guð­jóns­sonar, sem lét af störfum sem for­stjóri Sýnar í lok júlí, sem átti 12,72 pró­senta hlut.

[links]Gavia Invest er nýstofnað fjár­­­fest­inga­­fé­lag sem Jón er í for­svari fyr­­ir. Gavia Invest er í eigu þriggja félaga, Capi­­tal ehf., E&S 101 ehf. og AB 891 ehf. Eig­endur þess­­­ara félaga eru, auk Jóns, Reynir Grét­­­ar­s­­­son, Hákon Stef­áns­­­son, Jon­­at­han R. Rubini, Andri Gunn­­­ar­s­­­son og Mark Kroloff.

Jón hefur á umliðnum árum verið náin sam­­starfs­­maður hjón­anna Jóns Ásgeirs Jóhann­es­­sonar Ing­i­­bjargar Pálma­dóttur og var fram­­kvæmda­­stjóri fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Strengs og fjár­­­fest­inga hjá 365 þangað til fyrr á þessu ári. Hildur og Jón hafa verið saman um ára­bil en gengu í hjóna­band í lok síð­asta árs.

Borgarfulltrúum ber ekki skylda til að skrá fjárhagslega hagsmuni

Hildur segir í sam­tali við Kjarnann að hún sé að vinna að því að upp­færa upp­lýs­ingar um fjár­hags­lega hags­muni í hags­muna­skrán­ingu borg­ar­full­trúa í sam­starfi við skrif­stofu borg­ar­stjóra. Skrán­ingin hafi ekki verið upp­færð þar sem hún hafi þurft að leita ráð­gjafar með nokkur smá­at­riði.

Hún bendir jafn­framt á að sam­kvæmt reglum um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum borg­ar­full­trúa og trún­að­ar­störfum utan borg­ar­stjórnar, sem borg­ar­stjórn sam­þykkti í mars 2020, ber borg­ar­full­trúum og vara­borg­ar­full­trúum ekki skylda til að skrá­setja fjár­hags­lega hags­muni heldur er það val­kvætt.

Eiga að skrá hagsmuni innan mánaðar frá því að borgarstjórn kemur saman eftir kosningar

Til­gangur regln­anna er að veita almenn­ingi upp­lýs­ingar um fjár­hags­lega hags­muni borg­ar­full­trúa og vara­borg­ar­full­trúa hjá Reykja­vík­ur­borg og trún­að­ar­störf þeirra utan borg­ar­stjórnar. Regl­urnar eiga þannig að auka gagn­sæi í störfum borg­ar­stjórnar.

Í regl­unum segir að þeir borg­ar­full­trúar og vara­borg­ar­full­trúar sem kjósa að skrá hags­muni sína í sam­ræmi við regl­urnar skuli gera það innan mán­aðar frá því að borg­ar­stjórn kemur saman eftir kosn­ingar með því að gera opin­ber­lega grein fyrir fjár­hags­legum hags­munum sínum og trún­að­ar­störfum utan borg­ar­stjórnar. Fyrsti fundur borg­ar­stjórnar eftir kosn­ing­arnar í vor var 7. júní, fyrir þremur mán­uðum.

Uppfært klukkan 11:45: Hildur áréttar í sam­tali við Kjarnann að ekki hafi verið til­efni til að upp­færa hags­muna­skrán­ingu hennar eftir kosn­ingar fyrr en hún færði sig úr stjórn Orku­veit­unnar í stjórn Faxa­flóa­hafna. Það hefur nú verið gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarstjórn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár