Arion banki kominn með yfir tíu prósent hlut í Sýn – Átök um völd yfir félaginu framundan

Skömmu fyrir versl­un­ar­manna­helgi hófust umfangs­mikil upp­kaup á hluta­bréfum í fjöl­miðla- og fjar­skipta­fé­lag­inu Sýn. Þau hafa haldið áfram í þess­ari viku og alls hafa vel á þriðja tug pró­senta af hlutum í Sýn skipt um hendur á örfáum dögum.

Arion banki er nú skráður fyrir 10,27 pró­sent hlut í fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu Sýn. Hlutur bank­ans í félag­inu hefur á einni viku farið úr því að vera 3,4 pró­sent í ofan­greint hlut­fall. Nær öruggt er að Arion banki sé ekki að kaupa hluti í Sýn fyrir eigin bók heldur sé hlut­ur­inn sem skráður er á bank­ann til­kom­inn vegna fram­virkra samn­inga sem bank­inn hefur gert við valda við­skipta­vini sína um kaup á hluta­bréfum í Sýn.

Í fram­virkum samn­ingi felst að Arion banki kaupir hlut­inn en gerir sam­hliða samn­ing við við­skipta­vin sinn um að kaupa hlut­inn af sér á til­teknum degi í fram­tíð­inni á fyr­ir­fram ákveðnu verði. Hinn end­an­legi eig­andi hlut­ar­ins kemur því ekki fram á hlut­haf­alista þess félags sem keypt er í fyrr en fram­virki samn­ing­ur­inn er gerður upp.

Sýn er stór leik­andi á fjöl­miðla­mark­aði. Fyr­ir­tækið á og rekur sjón­varps­stöðv­arnar Stöð 2 og Stöð 2 Sport, vef­mið­il­inn Vísi og útvarps­stöðv­arnar Byglj­una, FM957 og X977. Innan veggja fyr­ir­tæk­is­ins er rekin stór frétta­stofa, sam­eig­in­leg frétta­stofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unn­ar. Þá á Sýn einnig fjar­skipta­fyr­ir­tækið Voda­fo­ne.

Arion banki kom að fjármögnun á kaupum Gavia Invest

Þessi þróun er nýjasti lið­ur­inn í bar­áttu um áhrif innan Sýnar sem farið hefur fram á síð­ustu dögum. Í byrjun síð­ustu viku var greint frá því að Heiðar Guð­jóns­son, sem hafði um ára­bil verið á meðal stærstu hlut­hafa Sýnar, verið stjórn­ar­for­maður þess á árunum 2014-2019 og setið í for­stjóra­stóli félags­ins frá því snemma árs 2019, hefði selt allan 12,72 pró­sent hlut sinn í félag­inu á tæp­lega 2,2 millj­arða króna. Heiðar sagði í tölvu­pósti til starfs­fólks að honum hefði verið ráð­lagt að minnka við sig vinnu af heilsu­fars­á­stæðum.

[adspot]ÍKaup­and­inn var Gavia Invest, nýstofnað fjár­fest­inga­fé­lag sem Jón Skafta­son er í for­svari fyrir. Gavia Invest sé í eigu þriggja félaga, Capital ehf, E&S 101 ehf og AB 891 ehf. Eig­endur þess­ara félaga eru Reynir Grét­ars­son, Hákon Stef­áns­son, Jon­athan R. Rubini, Andri Gunn­ars­son, Mark Kroloff og áður­nefndur Jón Skafta­son. Hann hefur á umliðnum árum verið náin sam­starfs­maður hjón­anna Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar Ingi­bjargar Pálma­dóttur og var fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­inga­fé­lags­ins Strengs og fjár­fest­inga hjá 365 þangað til fyrr á þessu ári. Hann er auk þess giftur Hildi Björns­dóttur, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans kom Arion banki að kaupum hóps­ins á hlut í Sýn og fjár­magn­aði þau að hluta.

Í gær­morgun keypti svo annar hópur fjár­festa um sex pró­sent hlut í Sýn fyrir um einn millj­arð króna. Gengið var frá við­skipt­unum fyrir opnun mark­aða á þriðju­dag. Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) var meðal selj­enda en sjóð­ur­inn seldi um 1,9% hlut fyrir 320 millj­ónir króna.

Við­mæl­endur Kjarnans sem starfa á mark­aði segja að óhjá­kvæmi­legt sé annað en að miklu upp­kaup á bréfum í Sýn á örfáum dögum teng­ist til­raun Gavia-hóps­ins til að ná yfir­ráðum yfir félag­inu.

Gavia Invest fer enda með atkvæð­is­rétt fyrir 16,08 pró­sent hlut í Sýn, sem er vel umfram þann hlut sem félagið er skráð fyrir, og fór fram á það í síð­ustu viku að stjórn Sýnar boð­aði til hlut­hafa­fundar í félag­inu. Þar ætlar hóp­ur­inn að krefj­ast þess að ný stjórn verði kjörin og að hann fái tvö af fimm stjórn­ar­sætum.

Stærstu hlut­hafar Sýnar fyrir utan áður­nefnda eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Gildi líf­eyr­is­sjóður á 12,83 pró­sent hlut, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna 10,92 pró­sent, LSR á sam­tals 8,2 pró­sent og Birta líf­eyr­is­sjóður 5,11 pró­sent. Þessir fjórir stóru sjóðir eiga því sam­tals um 37 pró­sent í Sýn. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafa full­trúar Gavia Invest fundað með ein­hverjum þeirra sjóða sem eru fyr­ir­ferða­miklir í hlut­hafa­hópnum. Það gerð­ist í síð­ustu viku. Á þeim fundum komu þó ekki fram neinar upp­lýs­ingar um áform félags­ins umfram það að ætla sér að sækj­ast eftir stjórn­ar­sætum. Orðrómur er þó um að Gavia Invest vilji fá sinn mann í for­stjóra­stól­inn og er Jón Skafta­son þá helst nefndur.

Vilji til að selja fleiri innviði á þessu ári

Rekstur Sýnar hefur heilt yfir ekki gengið vel á síð­ustu árum. Félagið seldi óvirka far­síma­inn­viði sína í fyrra til banda­rísku fjár­­­fest­anna Digital Bridge og hagn­að­­ur­inn af þeirri sölu var 6,5 millj­­arðar króna, en 2,5 millj­­arðar af þeirri upp­­hæð var bók­­færður í fyrra.

Sölu­hagn­að­ur­inn af inn­við­unum gerði það að verkum að Sýn skil­aði hagn­aði á árinu 2021 í fyrsta sinn frá árinu 2018. Án ein­skipt­is­hagn­aðar af söl­unni hefði Sýn skilað tapi á árinu 2021.

Sýn hagn­að­ist svo um 207 millj­ónir króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2022 og margt í rekstr­ar­tölum félags­ins bendir til þess að und­ir­liggj­andi rekstur sé að batna umtals­vert frá því sem áður var. Sýn birtir upp­gjör sitt fyrir annan árs­fjórð­ung í lok ágúst­mán­aðar. Félagið hefur líka verið að skila pen­ingum sem féllu til vegna sölu á eignum til hlut­hafa í gegnum end­ur­kaup á bréfum, en alls námu þau um tveimur millj­örðum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins.

Í við­tali við Frjálsra versl­un í mars sagði Heiðar, þá enn for­stjóri og stór hlut­hafi í Sýn, að verið væri að skoða að selja ýmsa aðra inn­viði á þessu ári. „Við erum að skoða að selja svo­kallað IPTV­kerfi, sem mynd­lykl­arnir okkar keyra á. Við höfum einnig tala um að selja hluta af gagna­flutn­ings­kerf­inu okk­ar, það er fast­línu­kerfið okk­ar, sem við rekum á um 800 stöðum í kringum land­ið.“

Var­færn­is­legt mat á sölu­hagn­aði á þessum innviðum sé um sex millj­arðar króna að sögn Heið­ar­s.

Þeim fækkar sem leigja mynd­lykil til að horfa á sjón­­varp

Fjöldi þeirra sem er með sjón­­­varp yfir IP-­­­net, sem er það sjón­­­varp sem miðlað er í gegnum ADSL- eða ljós­­­leið­­­ara­teng­ingar í mynd­lykla sem leigðir eru af fjar­­­skipta­­­fyr­ir­tækj­um, hefur fækkað umtals­vert á und­an­­­förnum árum sam­hliða því að streym­isveitur á borð við Netflix, Amazon Prime, Viaplay og Disney+ hófu inn­­­reið sína inn á íslenskan sjón­­­varps­­­mark­að. Hægt er að horfa á slíkar í gegnum öpp á sjón­­­varpi og öðrum tækjum án þess að mynd­lykil þurfi til.

[adspot]Tvö fyr­ir­tæki bjóða upp á mynd­lykla til að horfa á sjón­­varp yfir IP-­­net, Sím­inn og Vodafone, sem er hluti af Sýn­ar­sam­stæð­unni. Um mitt ár 2017 voru 103.205 áskrif­endur að sjón­­varpi yfir IP-­­net. Í lok árs 2020 var sá fjöldi kom­inn niður í 84.798. Þeim sem velja þá leið til að miðla sjón­­varpi hefur því um tæp 18 pró­­sent á fjóru og hálfu ári.

Þetta má lesa úr töl­fræði­skýrslu Fjar­skipta­stofu um fjar­­skipta­­mark­að­inn sem sýnir stöð­una í lok árs 2021.

Það tap sem orðið hefur á mynd­lykla­á­­skrif­endum hefur að mestu orðið hjá Vodafone, sem selur sjón­­varps­á­­skrift að Stöð 2 og hlið­­ar­­stöðvum henn­­ar. Um mitt ár 2017 var fjöldi áskrif­enda að mynd­lyklum Vodafone 41.423 en í lok síð­ast árs var sá fjöldi kom­inn niður í 31.377. Áskrif­endum hefur því fækkað um rúm­lega tíu þús­und á tíma­bil­inu, eða um tæp­­lega fjórð­ung.

Við bæt­ist að Sýn keypti 365 miðla á árinu 2017, en síð­­­ar­­nefnd fyr­ir­tækið var með 5.914 áskrif­endur að sjón­­varpi yfir IP-­­net um mitt það ár. Þegar sá fjöldi er tekin með í reikn­ing­inn hefur áskrif­endum Vodafone fækkað um þriðj­ung. Mark­aðs­hlut­­deild Vodafone er nú 37 pró­­sent.

Vert er að taka fram að hægt er að vera áskrif­andi að sjón­varps­þjón­ustu án þess að leigja mynd­lykil með því að nálg­ast hana í gegnum app. Engar tölur eru í skýrslu Fjar­skipta­stofu um heild­ar­fjölda áskrif­enda hjá Sím­anum eða Sýn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár