Enn dregst leiga á myndlyklum saman en tekjur vegna sjónvarps halda áfram að aukast

Tekjur fjar­skipta­fyr­ir­tækja vegna sjón­varps­þjón­ustu hafa rokið upp á síð­ustu árum. Þær voru 3,8 millj­arðar króna á árinu 2017 en 14,9 millj­arðar króna í fyrra. Þorri nýrra tekna í fyrra var vegna sjón­varps­þjón­ustu.

Sífellt fleiri notendur kjósa að nálgast sjónvarpsþjónustu í gegnum aðrar leiðir en með leigu á myndlykli.
Sífellt fleiri not­endur kjósa að nálg­ast sjón­varps­þjón­ustu í gegnum aðrar leiðir en með leigu á mynd­lykli. Mynd: Pexels

Fjöldi þeirra sem er með sjón­­varp yfir IP-­­net, sem er það sjón­­varp sem miðlað er í gegnum ADSL- eða ljós­­leið­­ara­teng­ingar í mynd­lykla sem leigðir eru af fjar­­skipta­­fyr­ir­tækj­um, hefur fækkað umtals­vert á und­an­­förnum árum sam­hliða því að streym­isveitur á borð við Netflix, Amazon Prime, Viaplay og Disney+ hófu inn­­reið sína inn á íslenskan sjón­­varps­­mark­að. Hægt er að horfa á slíkar í gegnum öpp á sjón­­varpi og öðrum tækjum án þess að mynd­lykil þurfi til.

Tvö fyr­ir­tæki bjóða upp á mynd­lykla til að horfa á sjón­varp yfir IP-­net, Sím­inn og Vodafone, sem er hluti af Sýn­ar­sam­stæð­unni. Um mitt ár 2017 voru 103.205 áskrif­endur að sjón­varpi yfir IP-­net. Í lok árs 2020 var sá fjöldi kom­inn niður í 84.798. Þeim sem velja þá leið til að miðla sjón­varpi hefur því um tæp 18 pró­sent á fjóru og hálfu ári.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri töl­fræði­skýrslu Fjar­skipta­stofu um fjar­skipta­mark­að­inn sem sýnir stöð­una í lok árs 2021.

Báðir risarnir tapa áskrifendum

Sím­inn, sem rekur sjón­varps­þjón­ust­una Sjón­varp Sím­ans, hefur þó styrkt stöðu sína á þeim tíma þótt hann hafi tapað nokkur þús­und við­skipta­vinum og er nú með 63 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í sjón­varpi yfir IP-­net. Það er um tíu pró­sentu­stigum meiri hlut­deild en fyr­ir­tækið var með um mitt ár 2017. Áskrif­endum Símans er þó að fækka og voru tæp­lega 4.500 færri í lok árs 2021 en tveimur árum áður. Þeir voru 53.421 um síð­ustu ára­mót.

Það tap sem orðið hefur á mynd­lykla­á­skrif­endum hefur að mestu orðið hjá Vodafone, sem selur sjón­varps­á­skrift að Stöð 2 og hlið­ar­stöðvum henn­ar. Um mitt ár 2017 var fjöldi áskrif­enda að mynd­lyklum Vodafone 41.423 en í lok síð­ast árs var sá fjöldi kom­inn niður í 31.377. Áskrif­endum hefur því fækkað um rúm­lega tíu þús­und á tíma­bil­inu, eða um tæp­lega fjórð­ung.

Við bæt­ist að Sýn keypti 365 miðla á árinu 2017, en síð­ar­nefnd fyr­ir­tækið var með 5.914 áskrif­endur að sjón­varpi yfir IP-­net um mitt það ár. Þegar sá fjöldi er tekin með í reikn­ing­inn hefur áskrif­endum Vodafone fækkað um þriðj­ung. Mark­aðs­hlut­deild Vodafone er nú 37 pró­sent.

Vert er að taka fram að hægt er að vera áskrif­andi að sjón­varps­þjón­ustu án þess að leigja mynd­lykil með því að nálg­ast hana í gegnum app. Engar tölur eru í skýrslu Fjar­skipta­stofu um heild­ar­fjölda áskrif­enda hjá Símanum eða Sýn.

Sjónvarpstekjur hafa rokið upp á fáum árum

Í skýrslu Fjar­skipta­stofu er einnig fjallað um heild­ar­tekjur af fjar­skipta­starf­semi. Í þeirri sam­an­tekt kemur í ljós að þær hafa auk­ist umtals­vert á síð­ustu árum.

Árið 2017 voru heild­ar­tekjur sem féllu til vegna fjar­skipta­starf­semi hér­lendis 57,4 millj­arðar króna. Í fyrra voru þær 72,4 millj­arðar króna. Þær hafa því auk­ist um 26 pró­sent á fjórum árum.

Lang­mestu munar um nýja tekjur vegna sjón­varps­þjón­ustu. Þær voru 3,8 millj­arðar króna á árinu 2017 en 14,9 millj­arðar króna í fyrra. Því eru 11,1 millj­arður króna af þeim við­bótar 15 millj­arða króna tekjum sem fjar­skipta­fyr­ir­tækin tóku til sín í fyrra í sam­an­burði við árið 2017 vegna sjón­varps­þjón­ustu, eða 74 pró­sent.

Vert er að taka fram að í milli­tíð­inni keypti Sýn fjölda ljós­vaka­miðla af 365 miðlum og Sím­inn hefur bætt veru­lega í þá þjón­ustu sem hann selur undir hatti Sjón­varps Sím­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár