5G-væð­ingin hafin að fullu – Kortunum fjölgaði úr 119 í tólf þúsund á sex mánuðum

Fyrsti 5G sendir­inn var tek­inn í gagnið hér­lendis árið 2019. Búist var við því að notkun á tækn­inni yrði nokkuð almenn hér­lendis í fyrra, en af því varð ekki. Nú hefur það breyst hratt.

Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2021 fór fjöldi virkra 5G-síma­korta hér­lendis úr 119 í yfir tólf þús­und. Þau eru nú 2,5 pró­sent af öllum virkum síma­kortum hér­lendis. Búast má við því að virkum 5G-kortum fjölgi hratt í nán­ustu fram­tíð og að virkum 4G kortum fækki sam­hliða þegar not­endur upp­færa sig í hrað­ari teng­ingu.

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri töl­fræði skýrslu Fjar­skipta­stofu sem áður hét Póst- og fjar­skipta­stofn­un, um fjar­skipta­mark­að­inn sem sýnir stöð­una um mitt ár 2021.

Um liðin ára­mót voru 85 pró­sent allra virkra síma­korta á far­síma­neti 4G kort. Í lok júní árið 2014 voru 14,8 pró­sent allra síma­korta þannig, en 4G-væð­ingin hófst af alvöru á Íslandi á því ári.

4G teng­ingar innan far­síma­nets­ins fela í sér tíu sinnum meiri hraða en 3G teng­ingar gera. Þær eru auk þess um þrisvar sinnum hrað­ari en hröð­ustu ADS­L-teng­ing­ar.

[adspot]Fyrsti 5G sendir­inn var svo tek­inn í gagnið hér­lendis árið 2019 og í kjöl­farið hófust próf­anir á slíkri þjón­ustum en með 5G fá not­endur að með­al­tali tíu sinnum meiri hraða en með 4G.

Stefnt var að því að notkun á 5G-kortum yrði nokkuð almenn á síð­asta ári en af því varð ekki. Sú þróun er hins vegar komin á fullt nú og búast má við því að breyt­ist í nán­ustu fram­tíð þar sem öll stærstu fjar­skipta­fyr­ir­tækin á Íslandi ætla sér í öfl­uga upp­bygg­ingu á 5G-­þjón­ustu á næstu árum.

Gagnamagnsnotkun jókst um 31 prósent milli ára

Fyrir rúmum ára­tug, nánar til­tekið 2009, voru ekki margir sem not­uðu snjall­tæki tengt við far­síma­net sem helstu leið sína til að nálg­ast afþr­ey­ingu og frétt­ir. Það ár not­uðu íslenskir far­síma­not­endur alls 243 þús­und gíga­bæti af gagna­magni á far­síma­netum fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna.

Á þessum tíma var snjall­síma­væð­ingin enn stutt á veg komin – fyrsta iPhone-inn var kynntur til leiks sum­arið 2007 – og enn tvö ár í að spjald­tölvur voru útnefndar sem jóla­gjöf árs­ins af Rann­sókn­ar­setri versl­un­ar­inn­ar.

Síðan þá hefur gagna­magns­notk­unin hins vegar auk­ist skarpt. Raunar er það svo að á ell­efu árum hafði hún 337fald­ast.

Þessi þróun heldur áfram sam­hliða því að fleiri fær­ast yfir í 5G. Á fyrri hluta árs 2021 not­uðu íslenskir far­síma­not­endur 48,1 milljón gíga­bæti, sem er 31 pró­sent meira en þeir gerði á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2020 og 102 pró­sent meira en þeir gerðu á sama tíma­bili árið 2019.

Nova enn með sterkustu stöðuna

Mest var notk­unin á meðal við­skipta­vina Nova var með 62,7 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á gagna­magns­mark­aði á far­síma­neti á fyrri hluta árs­ins 2021. Við­skipta­vinir Sím­ans not­uðu 23,8 pró­sent af gagna­magn­inu og þeir sem eru með í við­skiptum við Vodafone, sem til­heyrir Sýn-­sam­stæð­unni, nýttu 11,4 pró­sent. Aðrir minni leik­endur voru svo með 3,6 pró­sent af mark­aðnum sam­tals.

[adspot]Frá miðju ári í fyrra hefur þró­unin verið sú að Nova hefur misst um tvö pró­sentu­stig af mark­aðs­hlut­deild, Síminn og Vodafone bætt lít­il­lega við sig og aðrir þátt­tak­endur stækkað mark­aðs­hlut­deild sína um eitt pró­sentu­stig.

Þetta er við­snún­ingur frá þróun und­an­far­inna ára. Þá var Nova að bæta við sig mark­aðs­hlut­deild á kostnað helstu tveggja sam­keppn­is­að­ila sinna.

Það þarf þó að taka fram að þar er um að ræða þá notkun sem fer fram í gegnum far­síma­net­ið, ekki þá sem nýtt er með teng­ingu við beini (WiFi), en margir far­símar tengj­ast slíkum beini heima hjá not­anda og/eða á vinnu­stað hans. Sím­inn er það fyr­ir­tæki sem er með flesta við­skipta­vini þegar kemur að hefð­bundnum inter­netteng­ing­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár