Mánaðarlegir vextir af reiðufénu sem Síminn fékk fyrir Mílu eru 160 milljónir

Ákveðið var á fundi hlut­hafa Símans, sem tók hálf­tíma, að greiða hlut­höfum félags­ins út 30,5 millj­arða króna. Stærsti eig­and­inn er senni­lega búinn að fá allt sem hann greiddi upp­haf­lega fyrir hlut­inn til baka þrátt fyrir að eiga hann allan ennþá.

Orri Hauksson er forstjóri Símans.
Orri Hauksson er for­stjóri Símans. Mynd: Síminn

Þann 30. sept­em­ber síð­ast­lið­inn fékk Síminn 32,7 millj­arða króna greidda í reiðufé. Um var að ræða hluta af kaup­verði franska sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Ardian á Mílu, en heild­ar­verðið í við­skipt­unum var 69,5 millj­arðar króna. Auk reiðu­fjár fékk Síminn fram­selj­an­legt skulda­bréf upp á 17,5 millj­arða króna vegna selj­enda­láns sem hann veitti Ardian til þriggja ára. Það sem upp á vantar í heild­ar­verðið eru yfir­tökur á skuldum Mílum.

Í fjár­festa­kynn­ingu sem Síminn birti sam­hliða upp­gjöri þriðja árs­fjórð­ungs yfir­stand­andi árs kemur fram að reiðu­féð sem Síminn fékk í lok síð­asta mán­aðar sé varð­veitt á banka­reikn­ingum og að mán­að­ar­legar vaxta­tekjur félags­ins vegna þessa séu um 160 millj­ónir króna.

Senni­leg­ast er að þær vaxta­tekjur verði þó ein­ungis inn­heimtar í einn mánuð. Hlut­hafar Símans sam­þykktu í gær að greiða sér 30,5 millj­arða króna út úr félag­inu.

Tók hálftíma að ákveða útgreiðslu á 30,5 milljörðum

Salan á Mílu gerði það að verkum að hagn­aður Símans á síð­asta árs­fjórð­ungi, sem stóð frá júlí­byrjun til sept­em­ber­loka, var 36,3 millj­arðar króna. Þar af var hagn­aður af áfram­hald­andi starf­semi 718 millj­ónir króna. Því er sölu­hagn­að­ur­inn vegna Mílu nán­ast allur hagn­að­ur­inn.

Til sam­an­burðar má nefna að mark­aðsvirði Símans er nú um 79,3 millj­arðar króna. Hagn­að­ur­inn á einum árs­fjórð­ungi er því tæpur helm­ingur af mark­aðsvirði félags­ins.

[adspot]Greiðslan frá Ardian gjör­breytir fjár­hag Símans. Óráð­stafað eigið fé hans var 56,8 millj­arðar króna um síð­ustu mán­aða­mót og eigið fé í heild 65,5 millj­arðar króna. Eig­in­fjár­hlut­fallið var 80,4 pró­sent.

Það er langt umfram mark­mið Símans og í fjár­festa­kynn­ing­unni kom fram að á hlut­hafa­fundi yrði kosið um til­lögu stjórnar þess efnis að 30,5 millj­arðar króna verði greiddir út til hlut­hafa félags­ins með því að lækka hlutafé. Sá hlut­hafa­fundur fór fram í gær og stóð í hálf­tíma. Þar var til­lagan sam­þykkt. Upphæðin verður greidd út við fyrsta tæki­færi.

Afar arðbær fjárfesting Stoða

Stærsti hlut­hafi Símans, fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir sem á 15,92 pró­sent hlut, fær rúm­lega fimm millj­arða króna í sinn hlut vegna þessa. Stoðir hófu að fjár­festa í Símanum í apríl 2019 og keyptu sig hratt upp í að verða orð­inn stærsti ein­staki hlut­haf­inn. Í kjöl­far þess fóru Stoðir fram á hlut­hafa­fund og stjórn­ar­kjör, þar sem Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Stoða og einn helsti eig­andi félags­ins, varð stjórn­ar­for­maður Símans. Ætla má að fjár­fest­inga­fé­lagið hafi greitt um og yfir sex millj­arða króna fyrir þann hlut sem félagið safn­aði sér á árinu 2019. Hlut­falls­leg eign Stoða í Símanum hefur svo auk­ist sam­hliða því að félagið hefur keypt eigin bréf af hlut­höfum sínum, og fært niður hlutafé.

Í apríl í fyrra greiddi Síminn til að mynda hlut­höfum sínum átta millj­arða króna vegna end­ur­kaupa á bréfum og arð­greiðslu upp á 500 millj­ónir króna. Af þeirri upp­hæð fengu Stoðir um 1,3 millj­arð króna. Í ár höfðu end­ur­kaup numið um 2,8 millj­örðum króna áður en ákveðið var að ráð­ast í stóru útgreiðsl­una í gær og arð­greiðslan var um 500 millj­óniir króna. Af þeirri upp­hæð má ætla að Stoðir hafi fengið rúman hálfan millj­arð króna.

Því má ljóst vera, að með­tal­inni þeirri upp­hæð sem Stoðir eiga von á að fá greidda vegna útgreiðsl­unnar sem sam­þykkt var í gær, að Stoðir hafa end­ur­heimt að uppi­stöðu það fjár­magn sem félagið lagði út til að verða stærsti eig­andi Símans vegna útgreiðslna úr félag­inu á rúmum þremur árum. Samt eru Stoðir áfram sem áður stærsti eig­andi Símans og hlutur félags­ins í honum er í dag met­inn á 12,6 millj­arða króna.

Nær allir aðrir stærstu hlut­hafar Sím­ans eru líf­eyr­is­sjóð­ir, en Líf­eyr­is­sjóður Verzlunarmanna fer með 11,76 pró­senta hlut, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins með 10,77 pró­sent og Gildi Líf­eyr­is­sjóður á 7,48 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu.

Miklar útgreiðslur úr Arion banka líka

Stoðir eru líka stærsti inn­lendi einka­fjár­festir­inn í Arion banka með 5,2 pró­sent eign­ar­hlut. Einungis þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eiga stærri hlut í bank­anum.

Hjá Arion banka hefur líka verið rekin sú stefna að reyna að greiða sem mest eigið fé út úr bank­anum und­an­farin ár. Alls greiddi bank­inn út arð eða keypti eigin bréf af hlut­höfum fyrir 31,5 millj­arða króna ​á síð­asta ári. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2022 hefur Arion banki skilað 28,9 millj­örðum króna til hlut­hafa sinna í gegnum arð­greiðslur og end­ur­kaup á bréfum. Því hefur Arion banki greitt yfir 60 millj­arða króna út til hlut­hafa sinna á tveimur árum.

[adspot]Bank­inn hefur þegar boðað áform um að greiða enn meira út til þeirra í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð þannig að útgreiðsl­urnar nálgist 90 millj­arða króna.

Auk þess­ara eigna eiga Stoðir meðal ann­ars 6,1 pró­sent í Kviku banka og eru þriðji stærsti eig­andi hans en þessar þrjár eignir í skráðum íslenskum félögum mynd­uðu um 80 pró­sent af virði fjár­fest­inga félags­ins um mitt þetta ár. Eigið fé Stoða í lok júní síð­ast­lið­ins var rúm­lega 45 millj­arðar króna.

Búist við að milljarðarnir rati inn á hlutabréfamarkaðinn

Kaup­höllin var græn í gær og ekk­ert félag lækk­aði í við­skiptum dags­ins. Nokkur hækk­uðu umtals­vert, eða um 5-6,5 pró­sent.

Ástæðan er aðal­lega rakin til boð­aðrar útgreiðslu til hlut­hafa Símans, en í ljósi þess að félagið er í 98 pró­sent eigu inn­lendra aðila, og að uppi­stöðu líf­eyr­is­sjóða sem eiga 60 pró­sent og eru margir hverjir með tak­markað svig­rúm til að fjár­festa erlendis vegna lög­bund­ins þak á erlendar eignir þeirra, þá er búist við að millj­arð­arnir 30,5 rati að uppi­stöðu inn á íslenska hluta­bréfa­markað.

Fyrir þetta fé gæti hlut­hafa­hópur Símans enda keypt nán­ast allt hlutafé í sam­keppn­is­að­il­unum Sýn og Nova ef þeir bættu 1,1 millj­arði króna við, en sam­eig­in­legt mark­aðsvirði þeirra í dags­lok í gær var 31,6 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár