Telur að Sýn geti selt innviði fyrir sex milljarða króna á þessu ári

For­stjóri Sýnar vill selja mynd­lykla­kerfi félags­ins og fast­línu­kerfi þess, sem sér um hluta af gagna­flutn­ingum. Þeim sem leigja mynd­lykla af Sýn hefur fækkað um þriðj­ung á fjórum árum.

Heiðar Guðjónsson er forstjóri Sýnar.
Heiðar Guð­jóns­son er for­stjóri Sýnar. Mynd: Sýn

Heiðar Guð­jóns­son, for­stjóri Sýnar, segir að fjar­skipta- og fjöl­miðla­fé­lagið stefni á að selja frek­ari inn­viði á þessu ári. Sýn seldi óvirka far­síma­inn­viði sína í fyrra til banda­rísku fjár­fest­anna Digital Bridge og hagn­að­ur­inn af þeirri sölu var 6,5 millj­arðar króna, en 2,5 millj­arðar af þeirri upp­hæð var bók­færður í fyrra.

Sölu­hagn­að­ur­inn af inn­við­unum gerði það að verkum að Sýn skil­aði hagn­aði á árinu 2021 í fyrsta sinn frá árinu 2018. Án ein­skipt­is­hagn­aðar af söl­unni hefði Sýn skilað tapi í fyrra.

Í við­tali við nýjasta tölu­blað Frjálsrar versl­unar segir Heiðar að verið sé að skoða að selja ýmsa aðra inn­viði á þessu ári. „Við erum að skoða að selja svo­kallað IPTV­kerfi, sem mynd­lykl­arnir okkar keyra á. Við höfum einnig tala um að selja hluta af gagna­flutn­ings­kerf­inu okkar, það er fast­línu­kerfið okkar, sem við rekum á um 800 stöðum í kringum landið.“

Var­færn­is­legt mat á sölu­hagn­aði á þessum innviðum sé um sex millj­arðar króna að sögn Heiðars.

Heiðar hefur áður boðað sölu á þessum innviðum, í við­tali við Frétta­blaðið í maí í fyrra, en þar nefndi hann ekki sér­staka tölu yfir væntan sölu­hagnað.

Þeim fækkar sem leigja mynd­lykil til að horfa á sjón­varp

Fjöldi þeirra sem er með sjón­­varp yfir IP-­­net, sem er það sjón­­varp sem miðlað er í gegnum ADSL- eða ljós­­leið­­ara­teng­ingar í mynd­lykla sem leigðir eru af fjar­­skipta­­fyr­ir­tækj­um, hefur fækkað umtals­vert á und­an­­förnum árum sam­hliða því að streym­isveitur á borð við Netflix, Amazon Prime, Viaplay og Disney+ hófu inn­­reið sína inn á íslenskan sjón­­varps­­mark­að. Hægt er að horfa á slíkar í gegnum öpp á sjón­­varpi og öðrum tækjum án þess að mynd­lykil þurfi til.

[adspot]Tvö fyr­ir­tæki bjóða upp á mynd­lykla til að horfa á sjón­varp yfir IP-­net, Sím­inn og Vodafone, sem er hluti af Sýn­ar­sam­stæð­unni. Um mitt ár 2017 voru 103.205 áskrif­endur að sjón­varpi yfir IP-­net. Í lok júní síð­ast­lið­ins var sá fjöldi kom­inn niður í 88.289 og hafði þeim sem velja þá leið til að miðla sjón­varpi fækkað um 14,5 pró­sent á fjórum árum. Þetta má lesa út úr síð­ustu birtu töl­fræði­skýrslu Fjar­skipta­stofu.

[links]Sím­inn, sem rekur sjón­varps­þjón­ust­una Sjón­varp Sím­ans, hefur þó styrkt stöðu sína á þeim tíma og er nú með 64,3 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í sjón­varpi yfir IP-­net. Það er rúm­lega tíu pró­sentu­stigum meiri hlut­deild en fyr­ir­tækið var með fyrir fjórum árum. Að sama skapi hefur áskrif­endum þó ein­ungis fjölgað um 897 á tíma­bil­inu, eða um 1,6 pró­sent.

Það tap sem orðið hefur á mynd­lykla­á­skrif­endum hefur því allt orðið hjá Vodafone, sem selur sjón­varps­á­skrift að Stöð 2 og hlið­ar­stöðvum henn­ar. Um mitt ár 2017 var fjöldi áskrif­enda að mynd­lyklum Vodafone 41.423 en í lok júní 2021 var sá fjöldi kom­inn niður í 31.524. Áskrif­endum hefur því fækkað um tæp­lega tíu þús­und á fjórum árum, eða um tæp­lega fjórð­ung.

Við bæt­ist að Sýn keypti 365 miðla á árinu 2017, en síð­ar­nefnd fyr­ir­tækið var með 5.914 áskrif­endur að sjón­varpi yfir IP-­net um mitt það ár. Þegar sá fjöldi er tekin með í reikn­ing­inn hefur áskrif­endum Vodafone fækkað um þriðj­ung. Mark­aðs­hlut­deild Vodafone er nú 35,7 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár