Ljósleiðaraáskriftir komnar yfir 100 þúsund en leiga á myndlyklum dregst áfram saman

Þeim sem horfa á sjón­varp í gegnum mynd­lykla sem leigðir eru af fjar­skipta­fyr­ir­tækjum hefur fækkað með inn­komu streymi­veitna á íslenska mark­að­inn. Alls hefur þeim fækkað um nálægt 15 þús­und frá 2017.

Neysla á afþreyingarefni hefur tekið stakkaskiptum á örfáum árum.
Neysla á afþrey­ing­ar­efni hefur tekið stakka­skiptum á örfáum árum. Mynd: Úr safni

Ljós­leið­ara­á­skriftir á Íslandi fóru í fyrsta sinn yfir eitt hund­rað þús­und á fyrri hluta árs­ins 2021. Þær voru alls 101.744 í lok júní síð­ast­lið­ins og hefur fjölgað um 21 þús­und á tveimur árum, eða 26 pró­sent. Alls eru 72 pró­sent allra inter­netteng­inga hér­lendis nú í gegnum ljós­leið­ara.

Á sama tíma hefur ADSL-teng­ingum fækkað umtals­vert og sú leið í inter­netteng­inum virð­ist á und­an­haldi. Frá miðju ári 2019 hefur þeim fækkað um næstum þriðj­ung og voru 38.311 um mitt ár 2021.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri töl­fræði skýrslu Fjar­skipta­stofu sem áður hét Póst- og fjar­skipta­stofn­un, um fjar­skipta­mark­að­inn sem sýnir stöð­una um mitt ár 2021.

Nova bætt mest við sig

Síminn er það fjar­skipta­fyr­ir­tæki sem er með mesta mark­aðs­hlut­deild á inter­net­mark­aði, eða 44,8 pró­sent. Fjöldi inter­net­við­skipta fyr­ir­tæk­is­ins dróst hins vegar saman milli ára um rúm­lega 2.500 manns og hlut­deildin minnk­aði um 2,4 pró­sentu­stig.

Vodafone, sem til­heyrir Sýn-sam­stæð­unni, hefur líka tapað við­skipta­vinum og mark­aðs­hlut­deild á und­an­förnum tveimur árum. Um mitt ár 2019 var mark­aðs­hlut­deild þess fyr­ir­tækis 32,1 pró­sent á inter­net­mark­aðnum en er nú 27,4 pró­sent. Alls hefur við­skipta­vinum Vodafone fækkað um 5.637 á tveimur árum.

Nova hefur bætt við sig á þessu tíma­bili og fjölgað áskrif­endum að inter­net­þjón­ustu hjá sér um 48 pró­sent frá miðju ári 2019. Þeir eru nú 22.133 og mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins er 15,6 pró­sent.

[adspot]Hringdu hefur líka styrkt stöðu sína á tíma­bil­inu og fjölgað áskrif­endum um fjórð­ung, í 13.143. Mark­aðs­hlut­deild þess fyr­ir­tækis var 9,3 pró­sent um mitt ár 2021.

Aðrir leik­endur á mark­aðnum eru með 2,8 pró­sent mark­aðs­hlut­deild.

Þeim fækkar sem leigja myndlykil til að horfa á sjónvarp

Fjöldi þeirra sem er með sjón­varp yfir IP-­net, sem er það sjón­varp sem miðlað er í gegnum ADSL- eða ljós­leið­ara­teng­ingar í mynd­lykla sem leigðir eru af fjar­skipta­fyr­ir­tækj­um, hefur fækkað umtals­vert á und­an­förnum árum sam­hliða því að streym­isveitur á borð við Netflix, Amazon Prime, Viaplay og Disney+ hófu inn­reið sína inn á íslenskan sjón­varps­mark­að. Hægt er að horfa á slíkar í gegnum öpp á sjón­varpi og öðrum tækjum án þess að mynd­lykil þurfi til.

Tvö fyr­ir­tæki bjóða upp á mynd­lykla til að horfa á sjón­varp yfir IP-net, Síminn og Vodafone, sem er hluti af Sýn­ar­sam­stæð­unni. Um mitt ár 2017 voru 103.205 áskrif­endur að sjón­varpi yfir IP-net. Í lok júní síð­ast­lið­ins var sá fjöldi kom­inn niður í 88.289 og hafði þeim sem velja þá leið til að miðla sjón­varpi fækkað um 14,5 pró­sent á fjórum árum.

Síminn, sem rekur sjón­varps­þjón­ust­una Sjónvarp Símans, hefur þó styrkt stöðu sína á þeim tíma og er nú með 64,3 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í sjón­varpi yfir IP-net. Það er rúm­lega tíu pró­sentu­stigum meiri hlut­deild en fyr­ir­tækið var með fyrir fjórum árum. Að sama skapi hefur áskrif­endum þó ein­ungis fjölgað um 897 á tíma­bil­inu, eða um 1,6 pró­sent.

[adspot]Það tap sem orðið hefur á mynd­lykla­á­skrif­endum hefur því allt orðið hjá Vodafone, sem selur sjón­varps­á­skrift að Stöð 2 og hlið­ar­stöðvum hennar. Um mitt ár 2017 var fjöldi áskrif­enda að mynd­lyklum Vodafone 41.423 en í lok júní 2021 var sá fjöldi kom­inn niður í 31.524. Áskrif­endum hefur því fækkað um tæp­lega tíu þús­und á fjórum árum, eða um tæp­lega fjórð­ung.

Við bæt­ist að Sýn keypti 365 miðla á árinu 2017, en síð­ar­nefnd fyr­ir­tækið var með 5.914 áskrif­endur að sjón­varpi yfir IP-net um mitt það ár. Þegar sá fjöldi er tekin með í reikn­ing­inn hefur áskrif­endum Vodafone fækkað um þriðj­ung. Mark­aðs­hlut­deild Vodafone er nú 35,7 pró­sent.

Sjónvarpsþjónusta skilar 75 prósent af tekjuaukningu

Í skýrslu Fjar­skipta­stofu er einnig fjallað um heild­ar­tekjur af fjar­skipta­starf­semi. Í þeirri sam­an­tekt kemur í ljós að þær hafa auk­ist umtals­vert á síð­ustu fjórum árum.

[links]Á fyrri hluta árs­ins 2017 voru heild­ar­tekjur fyr­ir­tækja af fjar­skipta­starf­semi hér­lendis 27,5 millj­arðar króna. Þær voru 34,8 millj­arðar króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2021, eða 7,3 millj­örðum krónum meiri.

Þar munar lang­mestu um auknar tekjur af sjón­varps­þjón­ustu. Þær voru 1,9 millj­arðar króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2017 en 7,4 millj­arðar króna á sama tíma­bili í ár. Því er 75 pró­sent af tekju­aukn­ing­unni til­kom­inn vegna nýrra tekna af sjón­varps­þjón­ustu. Vert er að taka fram að í milli­tíð­inni keypti Sýn fjölda ljós­vaka­miðla af 365 miðlum og Síminn hefur bætt veru­lega í þá þjón­ustu sem hann selur undir hatti Sjón­varps Símans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár